Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Blaðsíða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1941, Blaðsíða 29
M.b. Hermóður frá Akranesi íyrs+ur með Gray-diesel SigurSur Hallbjarnarson útgerðarm. hef- ir nýlega látið setja Gray-dieselvél í m.b. Her- móð frá Akranesi og þannig innleitt í íslenzka fiskibátaflotann hina léttustu, fyrirferðar- minnstu og hraðgengustu, en jafnframt ein- hverja fullkomnustu gerð dieselvéla, sem nú þekkist. Það hafa verið skiftar skoðanir um það meðal hérlendra mampa, hvort hinar létt- byggðu vélar ættu framtíð fyrir sér í íslenzk- um fiskibátum. Hafa birzt um þetta efni greinar m. a. í áð- ur útkomnum blöðum af Víkingi, eins og menn e. t. v. rekur minni til. Nú er hinsvegar reynzlan ólýgnust, og það er því ekki að ástæðulausu, að menn fylgjast af áhuga með því, hvernig Gray-vélin reynist í Hermóði. 3» Hermóður er að stærð 18,87x4,96x1,82 metrar, mældur 33 tonn og var áður með 80 hestafla Skandia vél, er mun hafa verið um 6 tonn. Hin nýja vél er 6 cylindra Gray-dieselvél, er getur með hæfilegri skrúfu afkastað 165 hest- öflum. Er hún 206 cm. löng, 71 cm. breið og 109 cm. á hæð. Þyngd aðeins 1330 kg. Vélin er með öðrum orðum helmingi kraft- meiri og nær fimm sinnum léttari en sú sem fyrir var, eða um 10 sinnum kraftmeiri miðað við þunga. Vélin er með ábyggðu dráttargíri 4,4:1, er gerir það að verkum, að skrúfan gengur rúm- lega fjórfa’t hægar en vélin. Með tilliti til þess, að óþarft þótti að nota nema 130 hestöfl af vélarorku Gray-dieselsins í ekki stærri bát en Hermóði, var skrúfan á- VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.