Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1945, Page 4
ÞAU, SEM KOMUST AF
Farþegar:
Ólafur Björn Ólafsson, Akranesi.
Páll Bjarnason Melsted, stórkaupmaður.
Skúli Petersen, Laufásveg 66.
Bjarni Árnason.
Sigrún Magnúsdóttir, hjúkrunarkona.
Eugenie Hallgrímsson Bergin, frú, Miðtúni 7.
Davíð Sigmundur Jónsson.
Lárus Bjarnason, Bárugötu 16.
Erla Kristjánsson, Hólavallagötu 5.
Ragnar Guðmundsson.
Theódór Helgi Rósantsson, Laufásvegi 41.
Skipsmenn:
Jóhas Böðvarsson, skipstjóri.
Ólafur Tómasson, 2. stýrimaður.
Eiríkur Ólafsson, 3. stýrimaður.
Hallgrímur Jcnsson, 1. vélstjóri.
Hafliði Hafliðason, 2. vélstjóri.
Ásgeir Magnússon, 3. vélstjóri.
Valdemar Einarsson, loftskeytamaður.
Bogi Þorsteinsson, loftskeytamaður.
Kristján Símonarson, háseti.
Erlendur Jónsson, háseti.
Sigurjón Sigurjónsson, yfirkyndari.
Kolbeinn Skúlason, kyndari.
Sigurgeir Svanbergsson, kyndari.
Gísli Guðmundsson, 1. matsveinn.
Anton Líndal, matsveinn.
Tryggvi Steingrímsson, þjónn.
Nikolína Kristjánsdóttir, þerna.
Baldvin Ásgeirsson, þjónn yfirmanna.
ÞEGAR DETTIFOSS SÖKK
FRÁSÖGN JÓNASAR BÖÐVARSSONAR
skipstjóra.
Skipið var á siglingu í sæmilegu veðri.
Klukkan var 8,29 að morgni, er allt í einu varð
gríðarleg sprenging í framhluta skipsins. Far-
þegar voru flestir í rúmum sínum, en skipverj-
ar höfðu nýlega lokið við að skipta um vakt.
Frammi í voru 6 hásetar, einn þeirra í rúmi sínu,
en hinir voru að matast í borðsal skipsins
frammi í. Enn fremur munu nokkrir kyndarar
hafa verið frammi í, en þar voru vistarverur
háseta og kyndara, ofanþilja.
Strax og sprengingin vai’ð, þusti fólk út á
þilfar, og munu allir hafa komizt úr klefum
sínum, nema þeir, sem voru frammi í.
Er ekki vitað, hvort einhverjir hafa slasazt þar.
En sprengingin mun hafa rifið upp skipið und-
ir sjávarmáli, og enn fremur gengu þilfars-
plankar að framan upp lítillega. Hversu miklar
skemmdir urðu frammi í skipinu, er ekki hægt
að segja með neinni vissu, en ekki mun gangur-
inn, sem lá milli herbergja skipverja frammi í,
hafa teppzt.
Eini hásetinn, sem var í rúmi sínu, Kristján
Símonarson að nafni, komst lífs af.
Skipið tók brátt að hallast á bakborðshiið.
Þannig hagaði til á Dettifossi, að tveir björg-
unarbátar voru á bátaþilfari miðskips, en einn
bátur á palli aftast á skipinu, en auk þess voru
björgunarflekar á skipinu. Ekki var viðlit að
reyna að koma nema einum bátnum út, en það
var bakborðsbáturinn miðskips. Vegna þess,
hve skipið hallaðist á bakborða, var ekki hægt
að koma út stjórnborðsbáti.
Einn fleki losnaði frá skipinu við spreng-
inguna og annar komst á flot skömmu síðar.
Munu hafa liðið um 3 mínútur frá því að spreng-
ingin varð í skipinu og þar til búið var að koma
út bátnum og flekunum. En skipið var það fljótt
að sökkva, að litlu munaði, að skipverjar kænm
bátnum frá skipshliðinni áður en það hallaðist
á bátinn. Ekki munu hafa liðið nema 5 mínútur
frá því að sprengingin varð og þar til skipið,
var sokkið.
Flestir, sem björguðust af skipinu, fleygðu
sér í sjóinn, en komust síðan í bátinn eða á flek-
ana. AUs komust 11 manns fyrst í bátinn, en 17
á stærri flekann og tveir á hinn minni. Síðar var
þeim tveimur, er komust á minni flekann, bjarg-
að upp í bátinn.
Fólkið var um klukkustund í bátnum og á
flekanum. Sást alltaf á milli báts og fleka. Veður
hafði verið sæmilegt, en brátt tók að hvessa.
Voru allir blautir og margir fáklæddir, þar sem
þeir höfðu farið upp úr rúmum sínum og ekki
unnizt tími til að bjarga neinu með sér. Varð
hver að hugsa um sig, eftir því, sem bezt hann
gat.
Allir þeir, sem björguðust, voru ómeiddir
að kalla og flestir furðu hréssir í bátnum og á
flekanum. En einn af farþegunum var meðvit-
undarlaus, er honum var bjargað frá björgunar-
bátnum. Var það frú Eugenie Bergin. En eftir
góða aðhlynningu hresstist hún. Hún var þó
lögð inn í sjúkrahús í nokkra daga, er í land
kom. Henni líður nú vel, og er maður hennar,
Bergin lcapteinn, kominn til hennar, þar sem
hún dvelur í Skotlandi.
Er fólkið hafði verið um klukkustund í bátn-
um og á flekanum, bar að brezka hersnekkju.
Fóru allir um borð í hana. Þar var mjög vel
tekið á móti skipbrotsfólkinu, og vildu brezku
sjómennirnir allt fyrir það gera. Létu þeir það
fá þurr föt og hressingu og hlynntu að fólkinu á
annan hátt.
Þegar til hafnar kom, var þar fyrir fulltrúi
frá Eimskipafélagi Islands, frá brezka hernum
44
VlKINGUR