Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1945, Síða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1945, Síða 4
ÞAU, SEM KOMUST AF Farþegar: Ólafur Björn Ólafsson, Akranesi. Páll Bjarnason Melsted, stórkaupmaður. Skúli Petersen, Laufásveg 66. Bjarni Árnason. Sigrún Magnúsdóttir, hjúkrunarkona. Eugenie Hallgrímsson Bergin, frú, Miðtúni 7. Davíð Sigmundur Jónsson. Lárus Bjarnason, Bárugötu 16. Erla Kristjánsson, Hólavallagötu 5. Ragnar Guðmundsson. Theódór Helgi Rósantsson, Laufásvegi 41. Skipsmenn: Jóhas Böðvarsson, skipstjóri. Ólafur Tómasson, 2. stýrimaður. Eiríkur Ólafsson, 3. stýrimaður. Hallgrímur Jcnsson, 1. vélstjóri. Hafliði Hafliðason, 2. vélstjóri. Ásgeir Magnússon, 3. vélstjóri. Valdemar Einarsson, loftskeytamaður. Bogi Þorsteinsson, loftskeytamaður. Kristján Símonarson, háseti. Erlendur Jónsson, háseti. Sigurjón Sigurjónsson, yfirkyndari. Kolbeinn Skúlason, kyndari. Sigurgeir Svanbergsson, kyndari. Gísli Guðmundsson, 1. matsveinn. Anton Líndal, matsveinn. Tryggvi Steingrímsson, þjónn. Nikolína Kristjánsdóttir, þerna. Baldvin Ásgeirsson, þjónn yfirmanna. ÞEGAR DETTIFOSS SÖKK FRÁSÖGN JÓNASAR BÖÐVARSSONAR skipstjóra. Skipið var á siglingu í sæmilegu veðri. Klukkan var 8,29 að morgni, er allt í einu varð gríðarleg sprenging í framhluta skipsins. Far- þegar voru flestir í rúmum sínum, en skipverj- ar höfðu nýlega lokið við að skipta um vakt. Frammi í voru 6 hásetar, einn þeirra í rúmi sínu, en hinir voru að matast í borðsal skipsins frammi í. Enn fremur munu nokkrir kyndarar hafa verið frammi í, en þar voru vistarverur háseta og kyndara, ofanþilja. Strax og sprengingin vai’ð, þusti fólk út á þilfar, og munu allir hafa komizt úr klefum sínum, nema þeir, sem voru frammi í. Er ekki vitað, hvort einhverjir hafa slasazt þar. En sprengingin mun hafa rifið upp skipið und- ir sjávarmáli, og enn fremur gengu þilfars- plankar að framan upp lítillega. Hversu miklar skemmdir urðu frammi í skipinu, er ekki hægt að segja með neinni vissu, en ekki mun gangur- inn, sem lá milli herbergja skipverja frammi í, hafa teppzt. Eini hásetinn, sem var í rúmi sínu, Kristján Símonarson að nafni, komst lífs af. Skipið tók brátt að hallast á bakborðshiið. Þannig hagaði til á Dettifossi, að tveir björg- unarbátar voru á bátaþilfari miðskips, en einn bátur á palli aftast á skipinu, en auk þess voru björgunarflekar á skipinu. Ekki var viðlit að reyna að koma nema einum bátnum út, en það var bakborðsbáturinn miðskips. Vegna þess, hve skipið hallaðist á bakborða, var ekki hægt að koma út stjórnborðsbáti. Einn fleki losnaði frá skipinu við spreng- inguna og annar komst á flot skömmu síðar. Munu hafa liðið um 3 mínútur frá því að spreng- ingin varð í skipinu og þar til búið var að koma út bátnum og flekunum. En skipið var það fljótt að sökkva, að litlu munaði, að skipverjar kænm bátnum frá skipshliðinni áður en það hallaðist á bátinn. Ekki munu hafa liðið nema 5 mínútur frá því að sprengingin varð og þar til skipið, var sokkið. Flestir, sem björguðust af skipinu, fleygðu sér í sjóinn, en komust síðan í bátinn eða á flek- ana. AUs komust 11 manns fyrst í bátinn, en 17 á stærri flekann og tveir á hinn minni. Síðar var þeim tveimur, er komust á minni flekann, bjarg- að upp í bátinn. Fólkið var um klukkustund í bátnum og á flekanum. Sást alltaf á milli báts og fleka. Veður hafði verið sæmilegt, en brátt tók að hvessa. Voru allir blautir og margir fáklæddir, þar sem þeir höfðu farið upp úr rúmum sínum og ekki unnizt tími til að bjarga neinu með sér. Varð hver að hugsa um sig, eftir því, sem bezt hann gat. Allir þeir, sem björguðust, voru ómeiddir að kalla og flestir furðu hréssir í bátnum og á flekanum. En einn af farþegunum var meðvit- undarlaus, er honum var bjargað frá björgunar- bátnum. Var það frú Eugenie Bergin. En eftir góða aðhlynningu hresstist hún. Hún var þó lögð inn í sjúkrahús í nokkra daga, er í land kom. Henni líður nú vel, og er maður hennar, Bergin lcapteinn, kominn til hennar, þar sem hún dvelur í Skotlandi. Er fólkið hafði verið um klukkustund í bátn- um og á flekanum, bar að brezka hersnekkju. Fóru allir um borð í hana. Þar var mjög vel tekið á móti skipbrotsfólkinu, og vildu brezku sjómennirnir allt fyrir það gera. Létu þeir það fá þurr föt og hressingu og hlynntu að fólkinu á annan hátt. Þegar til hafnar kom, var þar fyrir fulltrúi frá Eimskipafélagi Islands, frá brezka hernum 44 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.