Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1945, Side 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1945, Side 9
skiprúm og stundaði svo, næstu árin á eftir, sjó- inn allan ársins hring, nema á sumrum. Formaður varð hann á 18. árinu, fyrst á vor- vertíð, svo á haustvertíð og vetrarvertíð ávallt frá þeim tíma. Segir hann sér það minnisstætt frá þessum tímum, hve fiskur hafi verið mikill hér í flóanum, bæði á grunni og á dýpi. Frá Skildinganesi fluttist Sigurður að Görð- unum 27 ára gamall og keypti þá árið eftir. Það ár gekk harni að eiga Ólöfu Guðmundsdóttur frá Skildinganesf, og áf þreinur börnum þeirra ei' Erlendur skipstjóri einn á lífi. Ólöfu, konu sína, missti hann 1901. Síðar gekk hann að eiga Guðrúnu Pétursdótt- ur frá Hrólfsskála á Seltjarnarnesi; eignuðust þau 11 börn, og eru 9 þeirra á lífi. Sigurður tók próf frá Stýrimannaskólanum í tíð Markúsar Bjarnasonar. Hann var á J il- skipi fyrst 1884, skipstjóri á þilskipi 1887; var það „Einingin“ frá Seltjarnarnesi, og var hann skipstjóri á þilskipum til ársins 1912. Hann sótti þilskipið Svaninn til Englands og gerði það út ásamt þilskipinu Haffara og mótor- bátnum Hrþlfi. Jafnframt þessari útgerð stundaði hann bú- skap á jörð sinni og hafði 14 stórgripi í fjósi, og lét á þeim tímum heyja uppi í Borgarfirði, og í 30 ár flutti hann þaðan árlega 400 hesta, sem hann heyjaði af flæðiengjum. Eftir að kútterarnir hurfu, tók Sigui'ður þátt í linuveiðaskipaútgerð og togaraútgerð allt til ársins 1935. Af þessu sést, að Sigurður hefur verið einn af hinum framsæknu og leiðandi mönnum í upp- byggingarstarfi hinnar íslenzku útgerðar, fram- kvæmdasamur og athafnamaður, sem sjálfur bar hita og þunga dagsins og var í fararbroddi og í formannssæti á þeim skipum, sem voru á útvegi hans. Þó að Sigurður sé áttræður, er hann enn beinn í baki, léttur í spori, skemmtilegur við kynningu og höfðinglegur maður í sjón, svo að af ber. Óska ég þessum vini mínum og sóknarbarni góðrar heilsu og bjartra stunda meðal barna sinna, ættingja og vina á leiðinni, sem fyrir er. Jón Thorarensen. Auðmýktin glatast á þeirri stund, sem maður heldur sig hafa öðlazt hana. * Eina örugga aðferðin til þess að sigrast á óvin- um, er að gera sér þá að vinum. Títuprjónninn er atliyglisverður. Þa'ö er höfuSið, seni iiindrar það, að hann gangi of langt,. Ingvar Kjaran skipsfjóri fimmtugur Ingvar, — þig hollvinir hylla í dag og hafaídan syngur þér afmælisbrag, í Ægishöll efnt er til gleöi. Sæmeyjar dansandi drekka þér skál, hver djarfhugi, er siglir um freyöandi ál, á ást þeirra og er þeim a'ö geöi. ViÖ kynntumst, er eldmóöur æsku og þrár sló ævintýrs Ijóma á komandi ár og lífiö var lokkandi draumur. Við læröum þaö seinna, aö sær breytir svip og sólstafir hverfa. Viö draumanna skip er haröleikinn stormur og straumur. Og saman viö átt höfum alvörustund og. áinxgju notiö viö góövina fund og harmaö og glaözt, eins og gengur. En hvort sem aö sigldum viö blásandi byr, eöa bauð okkur hamstola Ægir í styr, varstu alltaf hinn öruggi drengur. Ég árna þér heilla meö hálfnaöa öld og hönd þína, vinur, ég þrýsti í kvöld meö þökk fyrir þaö, sem ég reyndi. Ég fann eklá trúrri né traustari vin, — í töfrandi sóldýrö né stófviöra dyn, þitt ágæti aldrei sér leyndi. 1. marz 1945. Ögm. VÍKINGVR 49

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.