Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 17
inn. Ég hafnaði boðinu, kvaðst ætla að halda
áfram til gistihússins. Hann sagði, að vinir
sínir mundu með ánægju veita mér gistingu,
það sem eftir væri næturinnar, en ég afþakk-
aði boðið. Ljós var í stofu á neðstu hæðinni, og
tjöldin ekki dregin fyrir gluggana. Þar sat
maður sofandi í stól við stóran ofn, og þar
stóðu glös á bakka, viskýflaska, tvær bjórflösk-
ur og löng og uppmjó flaska af Rínarvíni. Ég
gekk til hliðar, en hann fór inn, og svo til sam-
stundis fylltist stofan af fólki, sem heilsaði hon-
um glaðlega. Þar var kona í greiðslusloppi og
ung stúlka, sem sat hringuð í stól með beinaber
hnén upp við hökuna, og þrír karlmenn, tveir
þeirra nokkuð við aldur. Ekki drógu þau tjöld-
in fyrir gluggana, þótt.hann hlyti að gruna, að
ég stæði fyrir utan og horfði á þau. Það var
kalt í garðinum og blómabeðin þakin arfa. Ég
rak höndina í þyrnóttan runna. Það var engu
líkara en þau væru að sýna mér samhug sinn
og góðan félagsskap af ásettu ráði. Vinur minn
— ég kalla hann vin minn, þótt við værum
raunverulega aðeins kunningjar og ekki vinir
nema meðan við vorum báðir drukknir — hann
sat mitt á meðal þeirra allra, og ég sá það á
því, hvernig varir hans bærðust, að hann var
að segja þeim margt, sem hann hafði aldrei
sagt mér. Einu sinni sýndist mér á vörum
hans, að hann segði: „Ég sparaði mér dag“.
Hann virtist einfaldur og góðlyndur og ham-
ingjusamur. Ég gat ekki þolað þessa sjón til
lengdar. Það var ósvífni af honum að halda
slíka sýningu á sjálfum sér frammi fyrir mér.
Og síðan bið ég þess sí og æ, að þessi dagur,
sem hann sparaði sér, megi geymast og geym-
ast þar til loks að hann verður að þola hinar
áttatíu og sex þúsund og fjögur hundruð sek-
úndur hans þegar hann á eins bágt og frekast
má verða, þegar hann fylgir einhverjum öðrum
eins og ég fylgdi honum, sem skugginn hans
eins og sagt er, svo að hann verður að staldra
við, eins og ég varð að gera, til þess að segja
við sjálfan sig: Menn geta þefað af mér, menn
geta þreifað á mér, menn geta heyrt til mín,
ég er enginn skuggi, ég er Fotheringay, Wales,
Canby, ég er Robinson.
Skipskettir
Margir sjómenn telja skipskettina góða veður-
vita. Sé kötturinn órólegur og æði fram og aftur,
er von á þrumuveðri. Sé værð á kisu, veit það á
langvarandi veðurblíðu. Von er á þoku og dimm-
viðri, ef kisa er ófáanleg til koma undir þiljur. —
Það veit á rok, ef kisa mjálmar ámátlega, og kemur
það úr þeirri átt, sem hún snýr höfðinu, meðan á
söngnum stendur.
Frá hafi til hafnar
Hafnaryfirvöldin í Singapore eru í vandræðum vegna
þess, að smyglarar vaða þar uppi. Smyglvaran er mót-
að gull frá Honkong, Siam og Indlandi, sem flutt er
til Indonesíu.
*
300 olíuflutningaskip, yfir 24 þús. brúttótonn, eru
ýmist fljótandi, í smíðum eða í pöntun.
*
Þrátt fýrir mikla samkeppni flugvéla í flutningi far-
þega, náði farþegaflutningur með skipum frá Banda-
ríkjunum og Canada til Evrópu hámarki 1952.
*
Indverska stjórnin hefur tvöfaldað öll vitagjöld, til
þess að flýta fyrir upphyggingu vitakei'fisins meðfram
ströndum Indlands.
*
Sovétstjórnin er sögð undirbúa fastar áætlunarferðir
frá Odessa til Austurlanda, með þýzkum línuskipum,
sem sökkt var í stríðinu, en hefur verið náð upp og
endurnýjuð.
*
Franska björgunarskipinu, sem unnið hefur að því
að bjarga úr rómversku skipi, sem sökk út af Ile de
Riou á 3. öld, hefur tekizt að ná úr lestum skipsins
talsverðu af mjög merkilegum fornminjum.
*
Tankskipafloti Panama nam í júnílok 193 skipum,
samtals 2,9 millj. tonn, en 144 af þessum skipum voru
mjög gömul og léleg.
*
Bretar flytja nú inn % af hveiti, er þeir neyta, Vs af
eggjum, % af osti, næstum því allt sem þeim neyta af
smjöri, helming af svínsfleski, kinda- og lambakjöti og
fjórða hluta af nautakjöti.
*
Skandinaviskir sjómenn eru sagðir heimta að björg-
unarflekar, svipaðir og notaðir voru á stríðsárunum,
verði settir um borð í skipin aftur.
*
Þrátt fyrir endurbætur á höfnunum í Ástralíu, kvarta
skipaeigendur yfir því, að losun skipa taki helmingi
lengri tíma en 1939.
*
Alþjóðasamband gimsteinaframleiðenda hefur heitið
16 þús. sterlingspunda verðlaunum fyrir upplýsingar,
sem leiða kynnu til stöðvunar á smyglfaraldri þeim,
sem á sér stað á skipum, sem eru í förum milli heims-
álfanna, en talið er að skipshafnirnar séu virkir þátt-
takendur í slíku smygli í mjög stórum stíl.
*
Kanadiskir hagfræðingar, sem vinna að því að ná
verzlunarjöfnuði milli Kanada og Bretlands, hafa bent
á að ef Kanada kaupi 6% meir frá Bretlandi, á kostnað
innflutningsins frá Bandaríkjunum, muni verzlunar-
jöfnuðurinn tryggður.
V I K I N □ U R
17