Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Page 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Page 19
^Ti&nimaóur: * Landhelgi Islands Það er mikið ritað og rætt um nýju land- helgislínuna. Hin nýja reglugerð gekk í gildi 15. maí 1952, um fjögra sjómílna landhelgi, friðun fjarða og flóa fyrir botnvörpu- og dragnótaveiðum allra þjóða. Þessar sjálfsögðu og lífsnauðsynlegu aðgerðir stjórnarvaldanna hafa eðlilega valdið sums- staðar óánægju. Hjá því varð ekki komizt. Til þess liggja ýmsar ástæður. Rýmkun landhelg- innar breytti og nam á brott áratuga gamlar venjur, sem óhjákvæmilega komu verulega við athafnir og afkomu fjölda innlendra og erlendra einstaklinga, a. m. k. til að byrja með. Rýmkun landhelginnar er tvímælalaust mesta hagsmunamál Islendinga í bráð og lengd, sem verður einnig til hagsbóta þeim þjóðum, er sækja á fiskimiðin hérlendis. Þörfin var knýj- andi. Eins og komið var, horfði til auðnar. Með síaukinni tækni við veiðarnar, stærri og fleiri skipum og veiðnari veiðarfærum, varð afla- magnið þverrandi hjá öllum þeim, er fiskveiðar stunduðu. Er það ekki ein af ömurlegustu stað- reyndunum, um þverrandi fiskimagn á miðun- um og rányrkju síðustu tíma, að glæsilegustu fiskiskipin, nýsköpunartogararnir íslenzku, hafa síðustu árin í æ ríkara mæli orðið að flýja á fjarlæg fiskimið til fanga? Þessi margumtalaða, dáða og lofaða „gullkista", fiskimiðin djúpt og grunnt við strendur landsins, voru að tæmast og svaraði ekki kostnaði að gera út á þau, vegna ofveiði og rányrkju erlendra og innlendra botn- vörpuskipa, og ekki hvað minnst dragnótaveið- anna, sem stundaðar hafa verið allt upp að landsteinunum í áratugi. Með reglugerðinni frá 15. maí er horfið frá auðn og tortímingu, en lagður grundvöllur að friðun og vernd grunnmiðanna. Það veltur á mjög miklu, að friðunar- og fiskiræktarsvæðið fáist viðurkennt af þeim aðilum, sem sótt hafa á þessi svæði, að þeir skilji að þessar ráðstaf- anir eru einnig í þeirra þágu. Sjórinn, sjósókn og fiskveiðar er óaðskiljanleg þrenning fyrir líf og afkomu íslendinga. Gegnum aldirnar hafa fiskveiðar í sjó verið önnur lífæðin, sem fætt hefur og klætt landsmenn, og veitt þeim mann- dóm og menningu fram á þennan dag. Ef sjór- inn bregst, er vá fyrir dyrum. Sjórinn og mold- in eru þær lindir, sem íslenzka þjóðin hefur á öllum tímum sótt í og ausið úr. Misjafnlega mikið á hverjum tíma, en þó það mikið, að frá þessum auðlindum hefur hún náð þeim andlega þroska og efnislegu framförum, er nú blasa við öllum þeim, er vilja sjá. Landhelgislínan nýja er því umgjörð, um fjöregg þjóðarinnar, upp- eldis- og þroskastöðvar nytjafisksins. Þar er sá lundur, sem Islendingar verða að set ja metn- að sinn og manndóm í að vernda og viðhalda. Ef þeir ekki gera það, hverjir gera það þá? Það er vitað, hve botnvörpu- og dragnótaskip- in brugðust drengilega við, þegar reglugerðin gekk í gildi. Þá fóru þau ýmist í höfn og hættu veiðum eða færðu sig út fyrir nýju línuna. Þetta er þegnskapur, sem ber að virða, þar sem það er vitað, að mörg þessara skipa og báta verða að hætta þessari veiðiaðferð fyrir fullt og allt, sökum þess að víðast hvar geta þau ekki stundað veiðarnar með sæmilegum árangri utan nýju línunnar. Með sárafáum undantekningum hafa menr. á dragnótabátum og smærri og stærri botnvörpu- skipum skilið nauðsyn friðunarinnar og sýnt, löghlýðni og drenglyndi. En það háfa, því mið- ur, sannast á nokkra menn ólöglegar veiðar í landhelgi síðan landhelgin var stækkuð, og vitað er um aðra, sem ekki hefur þó verið hægt að sanna á brotið. Þeir menn, sem þannig haga sér, eru illa séðir í sínum eigin heimahögum. Þeir koma stundum með mikla veiði og storka þannig heiðarlegum og löghlýðnum mönnum, sem breytt hafa um veiðiaðferðir. Því er jafn- vel dróttað að íslendingum, að þeir ívilni sínum fiskimönnum um botnvörpuveiðar í landhelgi, og að þeir hafi sézt veiða þar. Það er erfitt um vík að afsanna slíkan söguburð, þó að vitað sé, að hann er ósannur, þegar sannanlegt er, að íslenzkir fiskimenn hafa verið teknir að óliig- legum veiðum í landhelgi og aðrir grunaðir. Framh. á bls. 21. VÍKI N □ UR 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.