Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Blaðsíða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Blaðsíða 20
Ný aðferð við skipasmíðar: 60 feta bátur úr aluminium Síðastliðið sumar fór stærsti aluminíumbát- ur, sem smíðaður hefur verið í Englandi, í reynsluför sína hjá Southampton. Það var Tonquin, 14 smálestir, smíðaður hjá Grimston Astor, Ltd í Bideford. Bátur þessi sýnir marga kosti fram yfir eldri gerðir: ganghraðinn er mikill, hann er léttur í vöfum og lætur fljótt og vel að stjórn, reksturskostnaður og viðhalds ei stórum lægri, og þetta þakka skipasmiðirnir hinni nýju aðferð, sem þeir hafa tekið upp við smíði slíkra skipa og kalla mætti „spennu-að- ferðina". Þessi aðferð minnir nokkuð á það, sem tíðkast við smíði flugvéla. Alumíníumplöt- urnar, sem mynda eiga skipsskrokkinn, eru mótaðar flatar og tengdar saman og þverbönd- unum komið fyrir. Síðan eru hliðarnar spennt- ar upp, eins og lögun skipsins á að vera, en af því leiðir, að fjaðrakraftur myndast >g helzt við í skipsskrokknum. Áður hafði sama félag smíðað bát af þessari gerð fyrir Pakistan- stjórn, eftirlitsbátinn Ain-al-Bahr, sem notaður er á fljótum austur þar. Mikill kostur við „spennu-aðferðina“ er það, að bát, sem ætlaður er til útflutnings, má senda sem flatar plötur og setja hann svo saman á áfangastað. Til m.s. Tonquin hefur verið vandað svo sem mest má verða og hann búinn hverskonar þæg- indum, þar á meðal sal, sem breyta má í svefn- sal í skjótri svipan. Þilfarið er lagt tekviðar- borðum yfir aluminíumplöturnar, og hinn létti efniviður skipsins veldur því, að allur viðhalds- kostnaður verður óvenjulega lítill. Tonquin var smíðaður fyrir Mr. John Astor, og á að kynna hina nýju skipasmíðaaðferð, þegar hann heim- sækir erlendar hafnir. ZD V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.