Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 24
Stundvísa konan SAGA EFTIR JOHN O’HARA Lára var fyrsti farþeginn, sem tók sér sæti í járnbrautarvagninum, eins og hennar var von og vísa. Hvort sem hún ætlaði í ferðalag, til tannlæknisins, í leikhús eða heimboð, var Lára alltaf stundvís kona. Það var nærri því galli á Láru, hve stundvís hún var. Til dæmis var henni vel kunnugt um það, að heima í bænum, þar sem hún bjó, litu kunningjar hennar út um gluggann og sögðu, er þeir sáu hana á leið til veizlu eða á eitthvert annað mannamót: „Það liggur ekkert á. Hún Lára er rétt að leggja af stað“. Stundvísi hennar varð þess valdandi, að hún varð oft að bíða- eftir öðru fólki. Fyrir nokkru síðan hafði hún til dæmis verið látin bíða mjög lengi. Og nú var maðurinn hér kom- inn, sem hafði látið hana bíða, og var að setjast í hinum enda vagnsins. Þótt tíu ár væru síðan, þekkti hún hann strax, áður en hún sá andlit hans. Hann var líka óvenju glæsilegur í vexti. Henni varð hugs- að til þess, er hún sá þessar herðar, hvernig hann hafði kreist hana og kramið, og um leið fylltist hún þrá, sem hún hataði og fyrirleit. Þó áttaði hún sig í tíma og bar höndina fyrir augun, um leið og hann sneri sér við og settist niður. Lestin rann af stað. Frank var niðursokkinn í blaðið sitt, og tíu stólum frá honum sat Lára með hinar auðmýkjandi minningar sínar um dag einn fyrir áratug, þegar hún hafði beðið, og beðið ein og árangurslaust. Hún mundi svo glöggt eftir staðnum, og ekki að ástæðulausu. Það var ódýr og fremur leiðinleg knæpa, sem hann hafði valið vegna þess, að enginn þekkti hana þar. „Ég skal hringja þangað og biðja þá að búast við þér, og þú skalt ganga beint gegnum salinn og setjast í innsta básinn. Þú munt engan þekkja þar, en það er samt viss- ara“. Hann hafði verið svo yndislega nærgæt- inn, eins og alltaf, en það var hrokafull nær- gætni hins sterka. Þegar hún kom inn í knæpuna, var engu líkara en að veitingamaðurinn þekkti hana. „Já, frú, þér ætlið að hitta herra Hillman. Þessa leið, gerið þér svo vel“. Hann fylgdi henni inn í básinn, og hún pantaði fyrsta vínglasið. Hún hafði skilið töskurnar sínar eftir frammi í veit- ingasalnum, og eflaust grunaði hann, hvað um væri að vera. Hann var að reyna að taka þessu á afar heimsborgaralega vísu, afar franska vísu, eins og það væri honum daglegur við- burður að taka á móti ungum konum, sem voru að strjúka frá eiginmönnum sínum og hlaupast á brott með öðrum mönnum. Það var aðdáun, en engin ósvífni, í augna- ráði hans, er hann færði henni fyrsta glasið. Aðdáunin vék fyrir meðaumkun og örlítilli hæðni, þegar hún hafði beðið í tvær klukku- stundir og drukkið sex glös. Þá fór hún heim. Frank hafði seinna reynt að komast í samband' við hana eftir venjulegum leiðum þeirra, en hún hafði ekki svarað. „Hádegisverðurinn er tilbúinn, matvagninn fremst“. Hann stóð yfir henni og brosti niður til hennar. „Sæl, Lára“. „Nei, er það Frank“, sagði hún og var dálítið upp með sér af því, að geðshræringin heyrðist ekki á rödd hennar. „Viltu brjóta brauð með mér?“ „Já, auðvitað“. Hún reis á fætur, og þau gengu fram í matvagninn, en töluðu ekki saman fyrr en þau voru búin að panta. Hún vonaði, að aldurinn og sólarbirtan væru henni eins miskunnsöm og honum. Hann var enn mjög laglegur maður. „Ég er þér mjög þakklátur", sagði hann. „Hvers vegna? Fyrir hvað?“ „Fyrir að þú vilt tala við mig. í tíu ár hef ég þráð að geta sagt þér frá þeim degi. Ég veit, að þú álítur mig auðvirðilegan þorpara, að þér finnst, að ég hefði að minnsta kosti átt að hringja til þín. En þú gafst mér aldrei tæki- færi til að segja þér, hvað kom fyrir. Veiztu, hvað það var?“ „Hvað var það, Frank?“ „Ég fótbrotnaði, í bókstaflegri merkingu. Ég varð fyrir bil á leiðinni til knæpunnar. Þegar ég raknaði úr rotinu í sjúkrahúsinu, var orðið of seint að hringja til þín, jafnvel þótt ég hefði getað komizt fram úr rúminu, en það komst ég ekki í nærri því þrjá mánuði“. „Var það svo ?“ sagði hún. 24 VIKING.UR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.