Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 25
Jón Dúason: Sækjum fram i Grænlandsmálinu! Veiðar botnvörpunganna við Grænland tvö síðastliðin sumur hafa beinlínis bjargað botnvörpungaútgerðinni frá algeru hruni. Núverandi skipafloti Færeyinga hef- ur beinlínis verið byggður fyrir ábatann af veiðum Færeyinga við Grænland. A árunum 1930 og fram að stríði, þegar allt var í þrengingum og fjárhagsnauðun hér, blómgaðist atvinnulífið í Færeyjum, og færeyski skipastóllinn var beinlínis byggður upp af gróðanum af fiski Færeyinga við Grænland. Hinn mikli afli færeyska vélbátaflotans við Grænland síðastliðið sumar hefur nú alveg bjargað Færeyjum út úr fjárhagsvandræðunum, svo þar er allt með blóma nú. Eg er ekki í neinum vafa um, að hefðu botnvörp- ungarnir okkar haft frjáls afnot af svo sem fimm eða sex höfnum á Vestur-Grænlandi, getað lagt þar upp afla sinn og getað fengið þar allar útgerðarvörur með eðlilegum kjörum, mundi afli þeirra í fyrra og nú hafa verið meiri en tvöfaldur við það, sem hann var i fyrra og nú. Ég er líka viss um, að hefði íslenzki vél- bátaflotinn haft slíkan aðgang að höfnum Grænlands og fiskimiðum eins og færeysku vélskipin hafa haft, mátt veiða inni í sundum og fjörðum eins og þau, væri nú stórum bættur hagur hjá vélbátaeigendum og sjó- mönnum, og hefði íslenzki vélbátaflotinn haft slíka að- „Og auðvitað gat ég engan annan fengið til að hringja til þín, jafnvel þótt ég hefði verið með fullri rænu. Það vissi enginn annar um okkur“. Allt í einu sá hún sér leik á borði til að þurrka út auðmýkingu þessara tíu ára og þessa eina, hræðilega dags. „Frank, ég hef játningu að gera þér“, sagði hún. „Svo? Komdu þá með hana“. „Ég var þar ekki“. Hún horfði fast á hann og hún vissi, að augnaráð hennar var sann- færandi. „Hvað segirðu?" „Ég fór aldrei inn í þessa knæpu. Ég kom til New York og ætlaði að hitta þig. En á síð- ustu stundu brast mig kjark“. „En Lára“, sagði hann, og nú örlaði ekki á neinum hroka í fari hans. „Þegar ég komst á fætur, spurði ég Luigi, veitingamanninn, og hann sagði já. Hann sagðist muna eftir konu, sem beðið hefði eftir mér“. stöðu síðastliðin átta síldarleysisár, mundu hér ekki hafa verið og ekki vera nokkur fjárhagsvandræði, held- ur blómlegur, batnandi hagur allra landsmanna og miklar framfarir. Getur það verið, að allir stjórnmálamenn landsins hafi verið blindir fyrir þessu allan þennan tíma, allir nema einn, Pétur Ottesen. Á hverju Alþingi síðan 1945 hefur hann flutt þetta mál og barizt ágætri baráttu fyrir því, að atvinnu- og yfirráðaréttur íslendinga á Grænlandi og við strendur þess yrði viðurkenndur. En hví hafa sjómenn og útgerðarmenn ekki veitt Pétri Ottesen meiri og handfastari stuðning í þessu máli en raun er á orðin? Nægan tíma til umhugsunar hafa þeir haft. Og nægt hefur tilefnið ekki síður verið þessi átta sildarleysisár. Hví sniðganga sjómenn og útgerðarmenn svo þennan einasta stjórnmálamann, sem lætur sér hag og velferð þeirra nokkru skipta? Og eru sjómenn og útgerðarmenn ekki einnig þess minnugir, hvernig Danir hafa leikið oss i þessu máli? Man nú enginn lengur eftir því, hvemig færeysk og dönsk skip í stríðslokin og árum saman eftir stríðið þurrsópuðu hér hafnbæina af öllum dollaravörum á sama verði og þær voru seldar innlendum mönnum? En í fyrra og nú í sumar hafa íslenzk skip þar á móti að- „Það hlýtur að hafa verið einhver önnur vin- kona þín. Að minnsta kosti var það ekki ég. Ég gat ekki gert það, þegar til kastanna kom. Ég gat ekki hlaupizt þannig á brott frá mann- inum mínum. Og svo þegar kom heim, blygð- aðist ég mín fyrir hugleysið. Þess vegna svar- aði ég þér aldrei. Ég var of huglaus til þess“. „Þú komst þar aldrei", sagði hann hægt og hálf-aulalega. „Ég get ekki trúað því. Mér er ómögulegt að trúa því“. „Það var öllum fyrir beztu“, sagði hún. Hún var harðbrjósta og miskunnarlaus, en það var ómótstæðileg freisting að losna við tíu ára auð- mýkingu á örfáum mínútum. „Já, ég geri ráð fyrir því“. Hann jafnaði sig fljótt og tók þessu mjög vel, reyndi jafnvel að brosa. „Stundvísa Lára. 1 eina skiptið, sem þú hefðir átt að koma á mínútunni, komstu alls ekki“. „Betra seint en aldrei, eins og þar stendur", sagði hún blíðum rómi. VÍ KI N G U R 25

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.