Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 32
Björgunarskipið „María Júlía“. Kvennadeildir. I flestum deildum félagsins starfa bæði kon- ur og karlar, en þó eru starfandi 23 kvenna- deildir, og eru þær í öllum kaupstöðum og mörg- um stærri kauptúnum landsins. Fyrsta kvenna- deildin var stofnuð í Reykjavík 1930. Hafa kon- umar reynst frábærlega fórnfúsar og áhuga- samar um vöxt og viðgang félagsins, og sér- staklega afkastamiklar í sambandi við fjáröfl,- un til starfseminnar. Árangur starfsins. Skýrslur sýna, að á þeim 25 árum, sem Slysa- varnafélag íslands hefur starfað, hefur verið forðað úr lífsháska 5251 manni. í þessum hóp eru 796 menn, sem björgunarsveitir hafa bjarg- að úr bráðri hættu beinlínis með tækjum S.V. F.í. Dauðsföll af skipströndum, sem áður voru hér mjög tíð, eru nú orðin sjaldgæf. Þótt þeir séu því orðnir margir, sem félagið hefur bjargað beinlínis, eru hinir vafalaust miklu fleiri, sem það hefur orðið að liði með aldarfjórðungsstarfi að auknu öryggi skipa svo og með því að kalla á hjálp og liðsinna á ann- an hátt. Félagið hefur stöðugt verið að færa út verk- svið sitt, og telur sér engar slysavarnir óvið- komandi, hvort heldur sem er á sjó eða landi. Stjórn og starfslið. Fyrstu stjórnar félagsins er áður getið. — Forsetar þess hafa verið fjórir: Guðmundur Björnsson (1928-1931), Þorsteinn Þorsteinsson (1932-1937), Friðrik Ólafsson (1938-1939) og Guðbjartur Ólafsson (frá 1940). Núverandi stjórn er skipuð eftirtöldum mönn- um: Forseti Guðbjartur Ólafsson, hafnsögu- maður; varaforseti Sigurjón Á. Ólafsson, fyrr- verandi alþingismaður; gjaldkeri Árni Árna- son, kaupmaður; ritari Friðrik V. Ólafsson, skólastjóri. Meðstjórnendur frá Guðrún Jónas- son, frú Rannveig Vigfúsdóttir og Ólafur Þórð- arson, skipstjóri. Ennfremur sitja í stjórn fé- lagsins fyrir hönd landsfjórðunganna: Fyrir Vestfirðingafjórðung Þórður Jónsson, bóndi; fyrir Sunnlendingafjórðung Gísli Brynjólfsson, prestur; fyrir Norðlendingafjórðung Júlíus Havsteen, sýslumaður, og fyrir Austfirðinga- fjórðung Árni Stefánsson, útgerðarmaður. Fyrsti starfsmaður félagsins og hinn eini um langt skeið var Jón E. Bergsveinsson, erindreki. * * * Slysavarnafélagið hefur stöðugt verið aið færa út kviarnar. Einhver yngsti þáttur starfsemi þess er rekst- ur sjúkraflugvélar, er félagið á og rekur ásamt Birni Pálssyni flug- manni. Bætir sú starfsemi úr brýnni þörf og hefur þegar bjargað manns- lífum. Myndin til hægri er af sjúkraflug- vél S.V.F.I. og Birni Pálssyni flug- manni. * * * 32 V I K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.