Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Qupperneq 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Qupperneq 34
Minningarorð: Sigurður Guðni Jónsson sklpst|órl Árið 1952 er liðið hjá, aðeins minningarnar hafa numið staðar hjá okkur. Margar þessara minninga eru bjartar og fagrar, aðrar daprar og sorgblandnar. Meðal þeirra minninga, sem einna dýpst mótuðust í þjóðarsál- ina, er ein frá fyrstu dögum ársins. Ofsaveður æddi yfir sjó og land og gerði margs konar tjón. í því veðri fórst vélbáturinn „Yalur“ frá Akranesi með allri áhöfn. Formaður á honum var Sigurdur Guðni Jónsson, sem ég vil minnast hér fáum orðum. Hann var sonur Jóns Sigurðssonar, Guðmundssonar í Lokinhömrum í Arnar- firði. Móðir hans er Guðrún Guðjónsdóttir, ættuð úr Haukadal í Dýrafirði. Sigurður Guðni fæddist í Lokin- hömrum 21. október 1918, og var því aðeins 33 ára, þegar hann lézt. Það var stuttur æviferill, ef eingöngu er miðað við árin, en sé einnig miðað við atorku, af- köst og lífsreynslu, var ævi hans raunverulega orðin mun lengri. Þegar Sigurður Guðni var 7 ára gamall, varð hann fyrir fyrstu þungu reynslunni, er hann missti föður sinn í sjóinn. Næstu ár var hann á ýmsum bæjum í Auðkúluhreppi í Arnarfirði með móður sinni. Þótt Guðrún ætti við ýmsa erfiðleika að etja, reyndi hún af fremsta megni að ala drenginn sinn þannig upp, að hann yrði sem nýtastur maður. Og þeir eðlisþættir voru til staðar í piltinum, að vonir og óskir móðurinnar urðu sér ekki til skammar. Sigurður Guðni var meðalmaður á hæð, fremur grann- vaxinn, ljóshærður, laglegur. Svipurinn var hýr og góð- legur og lék oft hlýlegt bros um hraustlegt andlitið. Þótt hann væri hvorki hár né þrekinn, var hann vel knár. Hann var góður verkmaður, bæði á sjó og landi, lagtækur í betra lagi, og fékkst um tíma talsvert við smíðar. Hann var félagslyndur og bráðskemmtilegur í hópi góðra vina. Kom það þá fyrir, að hann tók „skál“ með félögum sínum, en aldrei varð neitt mein að því, svo ég vissi til. Hann var greiðvikinn og góðgjarn. Orðvar var hann vel, en stundum góðlátlega glettinn og gamansamur. Honum varð vel til vina og var hann vinfastur. Tryggur var hann móður sinni, og bar þá von í brjósti, að sér mætti verða auðið að launa henni liðin ár með því að styrkja hana og styðja á efri ár- um hennar. En forlögin höguðu því á annan veg. Þegar Sigurður Guðni var 15 ára fór hann fyrsta skipti á vertíð. En þótt hann síðar fengizt við ýmis störf, auk sjómennskunnar, var hún þó alltaf óska- starf hans. Hann kvæntist 15. júní 1944 Sigríði Ólöfu Sigurðar- dóttur frá Króki á Skagaströnd, afbragðs konu. Voru þau fyrst að Dynjanda í Arnarfirði hjá Guðrúnu móð- ur Sigurðar og síðari manni hennar, Guðmundi Jó- hannssyni frá Horni í Arnarfirði. En þar festu þau ekki yndi, einkum vegna þess, að Sigurður vildi brjót- ast áfram til efnalegs sjálfstæðis, og hugur hans stóð meira til sjávar- en sveitarstarfa. Fluttu þau því suður á Vatnsleysuströnd. Hófust nú baráttutímar hinna ungu hjóna við að lyfta sér til gengis og góðrar afkomu. En loks kom þó að því langþráða atriði í lífi Sigurð- ar, að hann komst í Stýrimannaskólann. Það var að vísu erfitt fyrir fjölskyldumann að brjótast áfram á menntaveginum, þar sem ekki var af öðrum efnum að taka en afköstum tápmikils ungs manns. En allt fór að óskum. Sigurður tók svo próf vorið 1951, og hafði þar með náð því stigi á náms- og skólabrautinni, sem honum nægði. Tveimur árum áður hafði hann flutt til Akraness. Þar gerðist hann fljótt stýrimaður á vélbátn- um „Ásmundi". Á síldarvertíðinni 1951 var hann for- maður á vélbátnum „Fylki“. En um áramótin 1951- 1952 tók hann svo við skipstjórn á vélbátnum „Val“. Þetta var traust og gott skip. Vökudraumar arnfirzka ungmennisins voru orðnir að veruleika. En honum átti aðeins að auðnast að sjá drauminn rætast að mestu, en ekki njóta hans, því að „Valur“ fórst með allri áhöfn 5. janúar 1952. Sigurður lét eftir sig ekkju og 4 börn, en þau höfðu misst elzta barn sitt, elskulegan dreng, á fyrsta ári. Þannig er í fáum dráttum ævisaga þessa ágæta, djarfa og dugmikla amfirzka sveins. Það er ekki að undra, þótt skyndileg burtför slíks manns móti djúpar og munasárar minningar meðal ástvina og vina. Um 34 V í K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.