Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Síða 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Síða 36
2/12. Verkfall nær 30 verka- lýðsfélaga hófst í gær. Börn- um og sjúklingum verður tryggð mjólk meðan á verkfallinu stend- ur. — Loftskeytamastur útvarps- stöðvarinnar laskast. Lá við stór- tjóni, en veður var stillt. — Jökul- fellið stöðvað vegna verkfallsins. — 60 tonna vélbátur er í smíð- um fyrir Bolungavík. — Frost- laust var í gær upp í 1500-2000 m hæð hér á landi. • 3/12. Milli 50-60 býli í Skaga- firði hafa fengið rafmagn. — Saltfiskframleiðsla þessa árs 55 þúsund smálestir. — Háseti af Bjarnarey drukknar, er togarinn var að karfaveiðum úti fyrir Vest- fjörðum. — í athugun er, að ís- Iendingar fari til starfa við flug- velli í Grænlandi. Eru þar erfið starfsskilyrði, en há laun. — Hluti af afla „Jörundar“, sem iandað var í Þýzkalandi, fluttur með járnbraut til Frakklands. • 4/12. Undanþága veitt til við- gerðar á varðskipum. — Stórar ísbreiður skammt út af Vest- fjörðum. • 5/12. Viðskiptasamningur milli Spánar og íslands hefur verið framlengdur. — Kúffiskveiði til beitu eða jafnvel útflutnings ráð- gerð á Siglufirði. • 6/12. 15 þúsund síldartunnur bíða flutnings á Seyðisfirði. — Góður afli og vaxandi útgerð í Ólafsfirði. — Mývetningar heyja á jólaföstu. Slá starengi og tjarn- ir á ísum með dráttarvél. — Sól- eyjar bera blóm í desember í túninu að Bjargi í Selvogi. — Arnarfellið og Gullfoss fá ekki afgreiðslu og hefur verið lagt bann á afgreiðslu rúmlega 400 póstpoka, sem komu með Gull- fossi. • 10/12. Verkfallið er talið ná til 18 þúsund manna, en nokkur fé- lög hafa hafnað beiðni um sam- úðarverkfall. • 11/12. Mikið magn af ávöxt- um er í Arnarfellinu. Hafa blásarar verið í gangi og lestir hafðar opnar til að varna að hitni í ávöxtunum. — 300 börn hafa skrifað „jólasveininum á Is- landi“ og fengið svar. — Alþingi samþykkti í gær aðild íslands að Norðurlandaráðinu. — Á annað hundrað trillubátar gerðir út frá Reykjavík næsta sumar. Fjöldi báta er í smíðum. — Fiskaflinn í október varð nær 29.000 smá- lestir. — Fiskhjallar í Hafnar- firði verða stækkaðir um helm- ing í vetur. — Öllum ísfisksölum íslenzkra togarar til Þýzkalands lokið. — I danska blaðinu Jyl- landsposten er sagt, að kröfur íslendinga til handritanna spretti af ágirnd. • 12/12. Nýi Hekluvikurinn not- aður til holsteinagerðar á Stokks- eyri. — Isfisksölur togaranna er- lendis í ár námu 54,1 milljón kr. Söluhæstur í átta ferðum er Jón forseti. 13/12. Verkfallsstjórnin leitar fjárhagslegs stuðning á Norður- löndum, Bretlandi og U.S.A. 14/12. Harðfiskframleiðslan er 2500 lestir, og er öll þegar seld. — Sæmileg silungsveiði hefur verið að undanförnu í Þingvalla- vatni. 16/12. Forn sjóður af gang- silfri fundinn í kumli að Itetu á Skaga. Er sjóðurinn talinn vera frá 9. eða 10. öld. — 30 smálestir af fiski seldar bæjarbúum af þil- fari togarans Ingólfs Arnarson- ar. — Árni Friðriksson telur, að síldveiðisvæðið hafi færzt 500 sjó- mílur austur á bóginn og geti íslendingar, sem aðrir, veitt þar. 17/12. Vöruskiptajöfnuðurinn er nú óhagstæður um 246 millj. kr. — Elzta tryggingarfélag lands- ins, Bátaábyrgðarfélag Vest- mannaeyja, er 90 ára um þessar mundir. Gefur það Landakirkju 30 þúsund kr. • 19/12. Vínveitingar á opinber- um stöðum bannaðar frá ára- mótum. Jafnframt hefur dóms- málaráðherra ákveðið, að til fram- kvæmda skuli koma lögin um héraðabönn. • 20/12. Verkfallinu er nú lokið. Lækkun dýrtíðarinnar og aukinn kaupmáttur er markmið sam- komulagsins. — Þrír menn biða bana af að drekka frostlög. • 23/12. Vígsla tveggja íslenzkra kristniboða til starfa í Konsó í Etiópíu. — Tugir tonna af pósti afgreiddir á þremur dögum í pósthúsinu. • 24/12. Þýzkur togari fórst í gærmorgun með allri áhöfn út af Látrabjargi. Leki kom að honum í stórsjó og fárviðri. Skip og flug- vélar leituðu árangurslaust í gær. • 30/12. í marzmánuði verður lagður kjölur að nýju vöruflutn- ingaskipi, sem Eimskip ætlar að Iáta smíða. Er það annað tveggja af sömu gerð, og eru þau talin sérlega heppileg til flutninga á smærri hafnir. — Þýzkur togari bjargar tveim Patreksfirðingum frá drukknun. Litlum bát livolfdi undir þeim. 31/12. Mjög friðsamt gamlárs- kvöld. Allt mátti heita með kyrr- um kjörum í Reykjavík. 36 V í K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.