Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1954, Blaðsíða 30
Sextugur:
Gunnar Einarsson
prentsmiðjustjóri
Hinn 26. desember s. 1. varð Gunnar Ein-
arsson prentsmiðjustjóri sextugur. „Gunnar í
ísafold", eins og hann er oftast nefndur, er
einn af kunnustu borgurum Reykjavíkurbæjar,
enda atkvæða-duglegur maður, sem margt hefur
látið til sín taka.
Gunnar Einarsson.
Gunnar er af reykvískum ættum. Foreldrar
hans voru Einar Ólafsson sjómaður og kona
hans, Katrín Gunnarsdóttir. Ungur að aldri
nam Gunnar prentiðn og gerðist prentari.
Framhaldsnám í þeirri list stundaði hann í
Danmörku um skeið.
Snemma kom það í ljós, að Gunnar var
gæddur óvenjulegri atorku, enda leið ekki á
löngu unz hann með hæfileikum sínum ruddi
sér braut til áhrifa og frama. Hann hefur á
þriðja tug ára veitt forstöðu stærstu prent-
smiðju og bókaútgáfu landsins, og hefur það
fyrirtæki vaxið mjög í höndum hans. Jafn-
framt hefur hann gegnt mörgum trúnaðar-
störfum í þágu stéttar sinnar. Formaður Hins
íslenzka prentarafélags var hann um skeið.
Formaður Félags íslenzkra prentsmiðjueigenda
hefur hann verið frá 1930 og Bóksalafélags ís-
lands frá 1934. Almenn félagsmál hefur hann
iátið mjög til sín taka og aldrei verið hræddur
við að segja meiningu sína umbúðalaust, hvort
sem möiinum „á æðri stöðum" líkaði betur eða
ver. Gunnar hefur ritað allmikið um bæjarmál
og þjóðmál, enda prýðilega ritfær og harð-
skeyttur baráttumaður, þegar því er að skipta.
Hann er hamhleypa til starfa, enda ber vöxtur
þess fyrirtækis, sem hann hefur stjórnað, ljós-
an vott um það.
Ég minnist þess glögglega, er ég hitti Gunnar
Einarsson í fyrsta sinn. Ég sótti hann heim,
feiminn og uppburðarlaus, nýkominn úr ver-
inu, með handritið að fyrstu bók minni í tösk-
unni. Bjóst ég helzt við að hitta fyrir hátíð-
legan og óaðgengilegan forstjóra, stuttan í
spuna. Þess í stað kynntist ég hinum glettna,
hispurslausa og kumpánlega „borgara", sem
flestir Reykvíkingar þekkja. Síðan er nú liðinn
meira en tugur ára, og hafa góð kynni okkar
Gunnars haldizt síðan. Þó að við séum ósam-
mála um fleira en „Vatnsberann" og önnur
listaverk Ásmundar Sveinssonar, hefur jafnan
farið hið bezta á með okkur, enda er Gunnar
Ijúfmenni hið mesta, vinfastur og með afbrigð-
um hjálpsamur. Sjómannablaðið Víkingur hef-
ur frá upphafi verið prentaður hjá Gunnari og
mönnum hans, og hefur jafnan átt þar að mæta
lipurð og greiðasemi. Fyrir mína hönd og Vík-
ings vil ég færa Gunnari beztu þakkir og flytja
honum einlægar heillaóskir í tilefni afmælis-
ins.
Gils GuSmundsson.
3D
V I K I N □ U R