Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1954, Blaðsíða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1954, Blaðsíða 7
Kólumbus kemur heim til Spánar úr frægðarför sinni. Hann sýnir Spánarkonungi indíána. fimmtándualdarmanna á sumum sviðum (eink- um í hagnýtum efnum) — þá eru þó til þau þekkingaratriði, sem næstum hver maður þeirr- ar aldar var vel að sér í, en alþýða manna nú á dögum er með öllu ókunnug. Fimmtánda öldin, eitthvert viðburðaríkasta tímabil veraldarsögunnar, var dögun nýs tíma. Þeir gömlu múrar, sem einangruðu þjóð frá þjóð, tóku óðum að falla. Allir þeir, sem vilja höfðu á og sæmilegar gáfur, gátu orðið borgarar í því ríki lista og bókmennta, sem blásið hafði verið í nýju lífi eftir næstum tíu alda niðurlægingu og aftur- för. — Og vísindin urðu ekki eftirbátur listar- innar. Ekkert svið mannlegra viðfangsefna var ríkara af ævintýrum og hvatti jafn mikið til hugsunar og landafræðin, því að við hana voru tengdar fjölmargar aðrar vekjandi fræðigrein- ar, eins og siglingafræði og stjörnufræði, flat- armálsfræði, veðurfræði og mannfræði, svo að nokkrar séu nefndar. Næstum hver einasti borg- ari lenti út í einhverja þessara fræðigreina eft- ir hneigð sinni og gáfum, — og margir þeirra náðu merkilegum árangri á sínu sviði. Þeir fylgdust vandlega með því, hvað Hindrik sæ- fari, prins af Portúgal, aðhafðist í einkahá- skóla sínum við Sagres, en hann var landa- fræðiháskóli allrar Evrópu, þótt því væri ekki opinberlega lýst yfir. Þeir fylgdust með þeim leiðangri, sem hann gerði út til Guineustrandar, og þeir vissu um allar tilraunir hans til að gera Azoreyjar að nýlendu. Þeim lék hugur á að vita, hve mikið væri satt í þeim sögum, sem einn skipstjóri hans sagði af gullfljóti því, sem kæmi frá stórri borg inn í miðri Sahara, og þeim lék hugur á að vita, hvort það væri sú hin sama Timbuktu, sem arabíski ferðalangurinn Ibn Batuta hafði skrifað um, þá fyrir einni öld síð- an. Þeir glímdu við sömu vandamálin og ara- bísku og júðsku stærðfræðingarnir, og þeir báru sín eigin tæki saman við þau, sem komu frá Lissabon eða Cape Vinset. Landakort teiknað af slíkum snillingi sem meistara Pedro, korta- gerðarmanni prinsins sjálfs, var hlutur, sem ríkir menn buðu of fjár fyrir. í stuttu máli sagt gengu Evrópuþjóðirnar á fimmtándu öld allar upp í landafræði, og hver sá, sem fram kom með nýja hugmynd, átti ekki einungis að fagna skilningsríkum áhuga, heldur voru kaupmenn og þjóðhöfðingjar reiðubúnir að veita honum fjárhagslegan stuðning. Vasco da Gama fékk til dæmis til sinnar Ind- VIKINGUR 133

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.