Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1960, Qupperneq 6
arnir hefðu orðið smeykir og
flæmst í burtu, og að minnsta
kosti var reiknað með að svo
færi. — En það fór alveg á öf-
uga leið. Þeir urðu ákaflega á-
nægðir með hinar nýju aðgerð-
ir. Því að hinir stóru fuglar, með
nær tveggja metra vænghaf,
þurfa gott rými til þess að hefja
sig til flugs og þó einkum til
þess að lenda. Og aldrei höfðu
þeir áður kynnzt því að hafa svo
glæsileg flug- og löndunarskil-
yrði einsog fyrir lágu á hinum
amerísku sementsbrautum! Þeir
lögðu hreiðrin sín þétt upp við
flugbrautirnar, og þeir flugu
upp í stórum þéttum hópum,
fagnandi á móti hverri flugvél,
sem kom inn á flugbrautirnar.
Amerísku flugmennirnir voru í
standandi vandræðum að geta
komið flugvélunum fvrir til flug-
taks vegna hópa af Albatrossum,
sem höfðu ,,parkerað“ á flug-
brautunum undir flugvélunum. t
stuttu máli, ameríski flugherinn
fékk ekki við neitt ráðið og var
í standandi vandræðum.
Alvarlegastir voru hinir tíðu
árekstrar flugvélanna við fugl-
ana á flugi. Á einu ári var tjónið
komið yfir fimm milljónir króna.
Þá var tekið til þess ráðs að
reyna að skjóta niður Albatross-
ana frá flugvélunum. En hvað
gagna nokkrar byssukúlur gegn
650.000 fuglum? Þá var reynt að
hræða þá með eldkösturum, fall-
byssuskothríð og með því að
bræla hjá þeim gömul bíldekk,
semfylgir hi-oðalegur óþefur. En
fuglarnir létu ekkert af þessu á
sig fá. Þá var tekið til þess ráðs
að mölva sem mest af eggjum
Midway er eyja í Kyrrahafinu
á leiðinni milli Hawaii og Japan.
Menn hafa ekki sózt eftir að búa
á þessari eyju. En aftur á móti
hafa Albatrossar kunnað þar vel
við sig. — En Albatrossar eru
stóru fuglarnir, sem um langan
aldur hafa gengið munnmæla-
sögur um meðal sjómanna að
væru boðberar óhamingju eða
vandræða. Allskonar hjátrú er
bundin við Albatrossana. Þeir
eru taldir vera sálir framliðinna
s.jómanna, sem boða storm og
stórviðri þar sem þeir fara um,
þeir leiti aldrei til lands og séu
á flugi einnig þegar þeir sofa.
Því hefur einnig verið haldið
fram, að kvenfuglinn ungi út
eggjum þeirra á baki karlfugls-
ins, á meðan þau séu á sínu sí-
fellda flugi. En á Midway-eyju
eru Albatrossfuglarnir ekkert að
leyna því, hvernig hið raunveru-
lega líf þeirra er. Þar eru taldir
dvelja um 650,000 fuglar, og
þeir standa þar og liggja svo
þétt eins og bezt gerist á eftir-
sóttustu baðströndum mann-
fólksins.
Á Midway unguðu þeir eggj-
um sínum út í friði, nærðu unga
sína og lifðu eðlilegri tilveru um
þúsundir ára. En, svo kom mað-
urinn loks inn í tilveru þeirra
fyrir nokkrum árum síðan. Am-
eríkumenn byggðu flugvöll á
eyjunni, og gerðu þar bækistöð
fyrir ameríska sjóherinn. Nú
skyldi maður ætla að Albatross-
þeirra, eftir því sem til náðist
— en fuglarnir lögðu innan ör-
stutts tíma nýjum eggjum í stað-
inn!
Ekkert dugði. Það varð að
reyna nýjar og vísindalegri að-
gerðir Fuglasérfræðingar voru
fengnir til ráðagerða. Þeir lögðu
til, að fuglarnir yrðu fluttir með
valdi til fjærliggjandi eyjaklasa.
Eitt þúsund fuglar í slíkri til-
raunamiðstöð myndu án efa geta
komið þar upp nýjum stofni á
tiltölulega skömmum tíma. En á
sama tíma yrði gerð gangskör að
því að útrýma algjörlega Alba-
tross-nýlendunni á Midway. Og
án þess að hika, var þegar haf-
ist handa. En áhafnir flugvél-
anna fengu fljótt að kynnast því
á hinni löngu flugleið til Guam
og Kwajalein-eyja að fátt mun
vera til, sem gefur frá sér jafn
slæman þef, eins og leggur af
nokkur hundruð sjóveikum Alba-
trossum. 1 vísindalegum tilgangi
höfðu fuglasérfræðingarnir
merkt alla fuglana, sem þannig
voru fluttir burtu, með ranðri
litarsamsetningu á höfuð þeirra.
Á þann hátt myndi verða auð-
velt að sjá, hvort þeir dreifðu
sér eitthvað annað, eða héldu
kyrru fyrir á hinum nýju stöðv-
um. En varla var ein vika liðin,
þegar allur hópurinn, sem flutt-
ur hafði verið, var kominn aftur
til baka af sjálfsdáðum til Mid-
way.
Að lokum missti stjórn sjó-
hersins alveg þolinmæðina og
ákveðið var að veita verðlaun
fyrir hvert Albatrosshöfuð, sem
lagt væri fram. En þessi ákvörð-
un varð aldrei að veruleika, því
að dýravinir í Bandaríkjunum
höfðu nú komist á snoðir um
það, sem var að gerast og frétt
af hinni þolinmóðu baráttu þess-
ara stóru fugla, til þess að fá að
halda heimkynnum sínum. Það
voru send mótmæli og bæna-
skrár til þjóðþingsins. Árangur-
inn varð samkomulag. Alveg
einstætt samkomulag, ef svo
mætti kalla, milli manna og
fugla. Ameríski sjóherinn gekkst
inn á að byggja nýja flugvelli —
VÍKINGUR
78