Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1960, Blaðsíða 7
Gjaldeyiisviðskipti Eimskipafélags Islands
M.s. Fjallíoss
F'ráleitum ásökunum hrundið.
Vegna skrifa, sem birzt hafa í
opinberu blaði um gjaldeyriseign
Eimskipafélags Islands í First
National City Bank of New
York, New York, vill félagið
taka fram eftirfarandi:
Fyrir tæpum 9 árum síðan tók
félagið einnar milljón dollara lán
hjá banka þessum til kaupa á
m. s. Reykjafossi. Til þess að
gera félaginu kleift að endur-
greiða þetta lán, sem var til
Imiggja ára, tjáði þáverandi rík-
isstjórn félaginu með bréfi dags.
17. september 1951, að ríkis-
stjórnin hefði ekkert við það að
athuga, að þær dollaratekjur,
sem félagið fær greiddar í
Bandaríkjunum frá varnarliðinu
hér, fyrir flutningsgj ald og ann-
an kostnað, gangi til greiðslu á
ofangreindu láni til skipakaupa,
og að sjálfsögðu beri félaginu að
gera fulla grein fyrir þessum
viðskiptum til gjaldeyriseftirlits-
ins.
með flugbrautum, sem eingöngu
voru fyrir Albatrossana! Fyrir
nokkrum mánuðum síðan var
hafizt handa um byggingu þess-
ara nýju flugbrauta á eyjunni
Kure sem er rétt hjá Midway
en er aðeins minni um sig. Með
stórum jarðýtum og ýmiskonar
öðrum tækniverkfærum hefur
jarðvegurinn verið sléttaður og
lagfærður og stórt svæði skipu-
lagt fyrir fluglendingar og að-
setursstaði, og nú er vonast eftir
því, að Albatrossarnir geri sig
ánægða með þessar nýju ráð-
stafanii'. Og það eru einnig veik
von sjóhersins, að Albatrossarn-
ir séu enn ekki orðnir svo háðir
flugvélunum, að þeir geti ekki
hugsað sér að sofa annarsstaðar
en undir vængjum þeirra. En
reynist svo, verður ekki hjá því
komist að gefa þeim einnig
Uokkrar gamlar flugvélar til eig-
in afnota á hinum nýju flugvöll-
um þeirra!!
VÍKINGUR
Árið 1956 var fengið nýtt lán
hjá sama banka til kaupa á m.s.
Selfossi, einnig að upphæð ein
milljón dollara, og er nú búið að
endurgreiða af því 200 þús. doll-
ara, þannig að eftirstöðvar láns-
ins eru nú 800 þús. dollarar. Hef-
ur það fyrirkomulag haldizt síð-
an, að félagið hefur lagt inn á
reikning hjá First National Cit.v
Bank of New York tekjur í doll-
urum og varið þeim til greiðslu
á andvirði nýrra skipa félagsins,
(þ. e. Tungufoss og Fjallfoss sem
smíðaðir voru á árunum 1952 til
1954). Gjaldeyrisstaða Eim-
skipafélagsins við Bandaríkin
hinn 31. marz s. 1. var sú, að fé-
lagið skuldaði þar $425.172.50 og
er þá framangreint 800 þús. doll-
ara lán talið með, svo og ógreidd-
ar skuldir vegna afgreiðslu skip-
anna í New York.
Eimskipafélagið hefur ávallt
sent gjaldeyriseftirlitinu ná-
kvæmar skýrslur um allar tekjur
og gjöld félagsins í erlendum
gjaldeyri. Er þar gerð grein fyr-
ir hvers konar gjaldeyristekjum,
flutnings og fargjöldum, sem
greidd eru í erlendum gjaldeyri,
tekjum af afgreiðslu erlendra
skipa, svo og gjaldeyristekjum
vegna viðskipta við varnarliðið
á Keflavíkurflugvelli. Jafnframt
hefur gjaldeyriseftirlitinu á
hverjum tíma verið gerð grein
fyrir skuldum og inneignuip fé-
lagsins í erlendum bönkum, hjá
umboðsmönnum félagsins erlend-
is, skipa&míðastöðvum og öði;um
viðskiptamönnum félagsins. Þess-
ar gjaldeyris-skýrslur hafa aldrei
sætt gagnrýni af hálfu gjaldeyr-
iseftirlitsins. Það væri fjarri öll-
um sanni að Eimskipafélagið
hefði nokkra ástæðu til, eða á-
huga á því, að safna gjaldeyris-
innstæðum erlendis umfram það,
sem rekstur félagsins útheimtir,
enda skuldar félagið að jafnaði
margar milljónir króna erlendis
vegna skipagjalda, sem miklir
erfiðleikar hafa verið á að fá
yfirfærðar.
Eins og kunnugt er, á Ríkis-
sjóður Islands 100 þús. kr. hluta-
fé af 1.680 þús. kr. hlutafé fé-
lagsins, og skipar ráðherra einn
mann í stjórn félagsins af sjö,
er búa hérlendis, svo og einn end-
urskoðanda af þremur endur-
skoðendum félagsins, (einn end-
urskoðendanna er löggiltur end-
urskoðandi). Ætti þetta að
skapa tryggingu fyrir því, að
rekstur Eimskipafélagsins sé
jafnan með löglegum hætti.
Hf. Eimskipafélag Islands.
79