Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1960, Page 9
Að tilhlutun Skipstjóra- og stýrimannaíélag:sins Aldan var Kvenfélagið Aldan
stofnuð í febrúar 1959. Stofnendur voru 47. Fyrsti aðalfundur félagsins var 24.
febrúar s.l. og- var öll stjómin endurkjörin, félagskonur eru nú yfir 80 og hefur
félagið starfað með miklum blóma. — Myndin hér að ofan er af stjóm félagsins.
Fremri röð talið frá vinstri Friðrikka Jónsdóttir, gjaldkeri. Laufey Halidórsdóttir,
formaður. Fórhildur Ólafsdóttir, ritari. Aftari röð talið frá vinstri: Hildur Jóns-
dóttir, Fríða Ingólfsdóttir. Soffía Guðmundsdóttir. og Kristín Finnsdóttir
Keflavík. En hann hefir einnig
hugsað mikið um tilraunir til
breytinga á lagi fiskibáta, og
gerði t. d. árið 1956 tilrauna-
teikningar að frambyggðum bát-
um. Varð árangurinn af viðræð-
um þessara manna sá, að Egill
tók að sér að teikna fyrir þá fé-
laga, fullkomna smíðateikningu
af frambyggðum vélbát, er
skyldi vera um 40 rúml. að
stærð.
Egill Þorfinnsson er kunnur
skipasmíðameistari og hefur
teiknað tugi vélbáta fyrir ís-
lenzka aðila víðsvegar um land.
Ymist til byggingar hér innan-
lands eða erlendis. Eru allmargir
þeirra báta landskunnir fyrir
aflasæld, eins og t. d. Víðir II.,
Mummi úr Sandgerði o. fl.
I viðtali við þá Ólaf Björnsson
og Egil Þorfinnsson, skýrðu þeir
svo frá, að þessi nýi bátur hefði
um 8V2 metra vinnupláss fyrir
aftan dekkspilið, en það stendur
aftan við yfirbyggingu. Er það
sama stærð á vinnuplássi eins og
almennt er á 70 til 80 rúmlesta
bátum. Á þessum 40 lesta bát
yrði hægt að stunda allar þær
veiðiaðferðir sem tíðkast hafa
hingað til á minni og stærri vél-
bátum, svo sem línu- og netja-
veiði á vetrarvertíð, og herpi-
nótaveiði á sumarsíldveiðum. En
auk þess væri auðvelt á þessum
bát að koma við hinum nýrri
veiðiaðferðum, sem nú er verið
byrja á. svo sem kraftblökk við
síldveiðar. Ennfremur flotvörpu-
veiðar fyrir síld og þorskveiðar,
þar sem báturinn er útbúinn með
fullkomnum togveiði útbúnaði.
Má í þessu sambandi benda á,
að Svíar hafa síðastliðin ár, eft-
ir undangengnar tilraunir með
flotvörpu, náð svo öruggum á-
rangri, að mikið af síldveiði
þeirra fer nú þannig fram. Hafa
Danir og Norðmenn nú lagt mik-
ið kapp á að ná sama árangri og
Svíar að þessu leyti.
Þrátt fyrir þá stórfelldu fyrir-
komulagsbreytingu, sem gerð er
á þessum bát, verður byggingar-
kostnaður hans sízt meiri, held-
ur en nú er á bátum sömu stærð-
VÍKINGUR
ar, með hinu venjulega smíða-
lagi. Kemur þar ýmislegt til
greina, en einkum hagkvæmari
vinnubrögð við leiðslukerfi og
innréttingu, sem verður allt ein-
faldara, þar sem yfirbygging,
vélarúm og íbúðir er samfellt og
er innangengt úr brúnni í véla-
rúm og vistarverur.
Fiskimálasjóður hefur veitt
nokkurn fjárhagsstuðning við
byggingu þessa nýja báts, þar
sem hér er um algjöra nýsmíði
að ræða, hvað fyrirkomulag
snertir á íslenzkum fiskibát.
Kristján G. Gíslason hf. Reykja-
vík, hefur haft milligöngu að fá
bátinn smíðaðan. Var fyrst
reynt fyrir sér hér innanlands,
en þeir aðilar sem ætlað var að
gætu framkvæmt þetta og leitað
var til, höfðu svo mörgum verk-
efnum að sinna, að þeir töldu
sig ekki geta tekið að sér þessa
nýsmíði. Kristján G. Gíslason
leitaði þá fyrst erlendis, og tókst
samkomulag um smíði á bátnum
í Svíþjóð. Er áformað um að
smíði hans verði lokið í nóv-
ember næstkomandi.
Ekki er ólíklegt, að þessi nýi
frambyggði bátur eigi eftir að
valda straumhvörfum í bygging-
arlagi og útgerð vélbáta hér á
landi.
Af öllum íslenzkum vélbátum
frá 30 til 100 rúmlestir eru um
75% af stærðargerð frá 40 til 67
rúmlestir. En það þýðir að sú
bátastærð muni víðast hvar um
landið vera talin heppilegust og
koma að beztum notum. Stofn-
kostnaður við 40 rúmlesta vél-
bát, er nær helmingi lægri, held-
ur en t. d. við 70 til 80 rúmlesta
báta. Að ýmsu leyti verður
reksturskostnaður einnig tals-
vert lægri. Með því byggingar-
lagi sem hér er farið inn á, get-
ur bátur af þessari stærð, full-
nægt flestum þeim kröfum, sem
gerðar eru til stærri bátanna.
Með þessu nýja bátalagi geta
því skapazt möguleikar fyrir
menn víðsvegar um land, er
vilja fást við sjávarútveg, til
þess að eignast vélbát til fisk-
veiða, með viðráðanlegum fjár-
hagskjörum.
1
81