Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1960, Síða 23
Undirforingjar hans voru orðnir
kvíðafullir yfir ástandi Walkers.
Þeir reyndu að létta honum
störfin, með því að taka ákvarð-
anir, sem hingað til höfðu heyrt
undir hann. Þeir önduðu léttara,
begar skip þeirra hélt til Liver-
Pool 2. júlí.
Nafn Johnnie Walkers var
lofsungið í blöðunum á borð við
helztu hershöfðingja banda-
uianna, eins og Patton, Bradley,
Montgomery og Mountbatten.
Fulltrúi brezku flotamálastjórn-
arinnar heimsótti konu hans Ei-
leen og tilkynnti henni, að kon-
ungurinn mundi slá til riddara
Usestu daga.
Kvöldið eftir heimkomuna
fóru Eileen og Johnnie á bíó og
sáu „Madame Curie“. Síðar
kvartaði hann um svima og suð
í höfðinu. Hann var orðinn al-
varlega veikur og var ekið í
skyndi á herspítalann til rann-
sóknar.
,,Allt sem maður yðar þarfn-
ust er alger kyrrð og hvíld“,
sögðu læknarnir. En daginn eft-
ir var augljóst að eitthvað meira
°u lítið var að Johnnie Walker.
bau óvæntu tíðindi, að ef til vill
væri líf hans í hættu, bárust
eins og eldur í sinu, til Sir Max
Horton og yfirherstjórnarinnar.
Á miðnætti hinn 9. var Eileen
kölluð í skyndi að sjúkrabeði
hans.
Hún kom of seint. Johnnie
Walker var dáinn.
Hin opinbera dauðaorsök var:
heilablóðfall. Sannleikurinn var
hinsvegar sá. að hann dó af of-
þreytu. Líkami og sál var yfir-
keyi-t, út yfir öll takmörk. Hann
fórnaði sjálfum sér fyrir ætt-
jörðina, dó af stríðsþreytu.
Um borð í Starling ríkti
kyrrð meðal hinna hraustu fé-
laga Walkers. Fáninn drúpti, og
það var eins og öllu lífi hefði
verið blásið burtu. Hinum
traustu, hugrökku brezku sjó-
mönnum fannst lífið óbærilegt,
við fall hins ástsæla foringja,
sem hafði leitt þá gegnum ótal
hættur og erfiðleika fram til
frægðar og sigurs. Þeir sáu hann
í anda standandi á stjórnpalli,
klæddan leðurjakka, í bardaga
upp á líf og dauða við hina
hættulegu þýzku kafbáta.
Á meðal hinna ótal samúðar-
kveðja sem Eileen bárust var
eitt frá Stark aðmírál: „Her-
sveitir Bandaríkjamanna í Evr-
ópu óska að flytja yður hinar
dýpstu samúðarkveðjur við lát
manns yðar, hins hugrakka
brezka sjóliðsforingja. Enda þótt
vér hörmum missi hans, mun
baráttuhugur hans lifa meðal
vor“. Líkami Johnnie Walkers lá
á viðhafnarbörum í dómkirkj-
unni í Liverpool í 3 daga. Þús-
undir manna voru við jarðarför-
ina, og Sir Max Horton aðmír-
áll, sem ásakaði sig harðlega fyr-
ir að hafa ekki athugað í tíma
ástand Walkers, flutti hjart-
næma kveðjuræðu. Hann endaði
ræðu sína með þessum orðum:
„Við höfum unnið sigur, og hann
hlaut að vinnast með slíkum
mönnum sem Walker. Mætti
okkur í framtíðinni aldrei skorta
slíka yfirburðamenn, að hug-
rekki, drengskap og stjórnsemi,
en um leið lítillæti og sönnu ótta-
leysi. Hafssvæðið þar sem hann
vann síðustu afrek sín skal
verða hans gröf“. Líkkistu Wal-
kers var ekið um götur Liver-
pool um borð í brezkan tundur-
spilli. Skip af öllum stærðum og
gerðum létu fánana síga í heið-
ursskyni, meðan tundurspillirinn
seig hægt út úr höfninni.
Síðla kvölds náði skipið á-
kvörðunurstaðnum. Himininn
var þakinn dimmum skýjum og
það hvítfexti í öldurnar. Óveður
var í aðsigi. Á þeirri stundu var
iíkkista Johnnie Walkers látin
síga í faðm hafsins.
(Þýtt úr Cavalier).
G. Jensson.
TIL LANDS OG SJÁVAR
þarfnast véltækni nútlmans traust
og nákvæmt vlðhald.
VÉR BJÓÐUM YÐUR:
Þaulvana fagmenn.
Ákjósanleg vlnnuskilyrSl.
Vélaverzlun vor er jafnan birg af
hverskonar efni til járnsmiða
ng pipulagna.
VÉLSMIÐJAN HÉÐINN H.F.
Simar 2 42 00 - 2 42 66. — Seljaveg 2.
lesUmálning, vfctrttlinum&liVmg
ufanijordsmálniní*
HARPA HF.
vÍKINGUR
96