Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Blaðsíða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Blaðsíða 7
Osló séð í norður. Til hœgri er Vippetangen, og á vinstri hönd er City Hall og Piper- víken-bryggja. OSLÓ Stærsta og afkastamesta höfn Noregs er staðsett í sérstæðu og fögru umhverfi og hefur upp á mikla náttúrufegurð að bjóða. Osló-fjörðurinn er langur og tiltölulega þröngur fjörður, er gengur inn úr Skagerak til norð- ur, innst inn í fjarðarbotninum stendur hin fagra borg Osló. Siglingin upp eftir firðinum á skipi er eins og fagur forleikur, að því sjónarspili sem í vændum er. Á sumum stöðum eru þrengsl- in það kröpp, að ferðamanninum á dekkinu finnst, að hann geti teygt sig í land og snert hinar bröttu, ójöfnu fjallahlíðar, er gnæfa á báðar hendur. Áhrifin af þessu eru stórkostleg. En allt í einu er eins og skipið skjótist út úr þessum þrengslum og ótrúleg fegurð blasir við aug- um. Loksins tekur við sjálf inn- siglingin til Oslóar, sem er sann- arlega ein af fegurstu höfuðborg- um heimsins og stærsta við- skiptahöfn Noregs. Hæðirnar, sem liggja að borg- inni á þrjá vegu, gefa borgar- stæði þessu áhrifamikinn og fagran svip. — Haraldur harð- ráði virtist fyllilega hafa skil- ið fegurðargildi þessara hæða, er hann valdi þetta borgarstæði árið 1050. Frá þeim tíma hefur Osló byggzt, hægt í fyrstu, en stækkað og vaxið ótrúlega á síð- ustu hundrað árunum, og náð því að vera í dag heimili 500.000 Norðmanna, sem er sjötti hluti norsku þjóðarinnar. Viðskiptalega er borgin þýð- ingarmikil efnahagslífi Noregs, því að þaðan og þangað er enda- laus straumur innflutnings- og útflutningsverðmæta. Þó er þýð- ingarmesti atvinnuvegur borgar- innar siglingar og skipakostur. Þar er heimahöfn margra skipa er annast siglingar á heimshöf- unum, allt í kringum hnöttinn, og koma þau sjaldan heim, því þau taka flutning hvar sem hægt er að fá eitthvað til að flytja. Það er ekki sjaldgæft að flutn- ingaskip fari frá Osló í Jómfrú- VÍKINGUR ferð sína, en komi ekki til heima- hafnar í fimm ár eða meir. — Kannske aldrei. Tekjurnar af þessum atvinnuvegi skapa mis- muninn á hagstæðum og óhag- stæðum viðskipta-jöfnuði í Nor- egi. Vegna erfiðra landskosta og tiltölulegrar mannfæðar, flytur Noregur inn mun meira af vör- um en nemur framleiðslu til út- flutnings, en þeim hefur tekist að leysa þetta vandamál með út- flutningi á leiguskipum, og er það sérstakt og athyglisvert. Líf og tilvera Oslóborgar hvíl- ir eingöngu á þessum erlendu flutninga-viðskiptum, og segja má að gæfa hennar og framtíð grundvallist á hinni fögru og góðu höfn, sem frá náttúrunnar Björn Olafsson þýddi hendi er einhver sú bezta í heimi. Þar er enginn munur flóðs og fjöru, hún er íslaus allt árið, þó hún sé á 60 gráðu norðlægrar breiddar, þar er skjól í öllum átt- um, og þar er mikið dýpi. Nær ótakmarkað legupláss og velupp- byggð viðlegupláss hringinn í kringum höfnina. Náttúran hef- ur sannarlega verið örlát í fram- lagi sínu, og hafnarstjórnin hef- ur heldur ekki legið á liði sínu í því að hagnýta sér þær gjafir, og hefur skapað þama nýtízku höfn, sem fyllilega er sambærileg við stærstu og tæknilega fullkomn- ustu hafnir veraldar. Afgreiðsla öll í höfninni er vel skipulögð, og hafnarstjómin reynir eins og við verður komið að skipta afgreiðslu skipa þann- 177

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.