Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Blaðsíða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Blaðsíða 9
OslófjörSurinn er þakinn eyjum. tonna þunga, og eru þeir ein- göngu notaðir til þungavöruflutn- inga. í viðbót við allt þetta eru tveir þrýstilofts-kornblásarar, til upp- skipunar á komi, og einnig er þar sérstakur afhleðsluútbúnaður fyrir banana. Áætlun um stækkun núverandi hafnar hefur verið gerð, og er þar reiknað með miklum breyt- ingum, og stærra athafnasvæði, og miklum viðbótarútbúnaði til hleðslu og afhleðslu skipa. —• í þeirri áætlun er reiknað með nýrri bryggju við Filipstad-garð- inn, og þar á að verða 36 feta dýpi. Nýjan garð á að byggja á strandlengjunni á austurhlið Sjursöya, með útbúnaði til stór- kostlegra olíuflutninga. Björvika hefur einnig verið stækkuð samkvæmt þessari áætl- un, og nokkrir garðar, er hafa mikið dýpi, hafa verið byggðir þar til að bæta úr bryggjuþörf- inni, vegna ört váxandi viðskipta við útlönd. Ákveðið hefur verið að byggja ný vöruhús til viðbótar, og þar af eitt með hraðfrysti-útbúnaði fyrir frystar vörur og kæli- geymslur, og á hús þetta að vera upp á sex hæðir. Flutningatæki verða einnig auk- in, og pantaðir hafa verið 15 nýir rafmagnsdrifnir sporkranar. Þegar þessar framkvæmdir og aðrar, er í ráði eru, verða komn- ar til framkvæmda, má reikna með að þörfunum verði fullnægt í bili. Kostnaði við þessar og aðrar framkvæmdir hafnarstjórnar, er mætt með ýmsum gjöldum af skipum og flutningi er um höfn- ina fer. Skip er væri 5.000 brútto- tonn og losaði 1.000 tonn af vör- um og tæki 500 tonn, borgaði 28 dollara í hafnargjöld, þar af inni- falið bryggju- og rúmlestargjald, sem er reiknað 6 dollarar á dag fyrir fyrstu 10 dagana. Landaðar vörur eru geymdar gjaldlaust í vöruskemmu hafnarinnar 48 klukkustundir, helgidagar ekki með reiknaðir, ekkert aukagjald er sett á umskipaðar vörur utan af landi fyrstu 6 dagana og ekki heldur á umskipaðar vörur utan- lands frá fyrsta mánuðinn eftir umskipun. Höfnin í Osló lofar sig sjálf hvað snertir eindæma góða sam- vinnu allra þeirra er sjá um ferm- ingu og affermingu skipa, og annarra starfsmanna hafnarinn- innar, verkföll og vinnustöðvanir eru þar alls óþekkt, og vinnuaf- köst eru þar mjög góð, vegna góðs skipulags og kaups, er mið- ast við afköst, ýmis fríðindi eru þar meðtalin, svo sem eftirlaun, slysatryggingar, þægilegir og vel reknir matsölustaðir, bókasafn o. fl. o. fl., sem gert er með það fyrir augum að gera starfið aðlaðandi og eftirsótt. Við samtök verkamanna er Frh. á bls. 204 í Osló ncer nokkra kílómetra upp frá ströndinni. VÍKINGUR 179

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.