Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Blaðsíða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Blaðsíða 22
Upphafsár vélvæðingar í Vestmannaeyjum Gunnar lngimundarsson. Sigurjón Jónsson. Jón Bergur Jónsson. „Laxfoss“ 38,00 tonn. SmíSaSur í Noregi 1916. ,JSoffí“ 38,88 tonn. SmíSuS í Danmörku 1924. „Sísí“ 31,17 tonn. SmíSuS í Danmörku 1924. Jón Bergur Jónsson, Ólafshús- um, var fæddur að Ólafshúsum í Vestmannaeyjum 15. júní 1900. Foreldrar: Jón Jónsson og Elín Sigurðardóttir, búandi þar. Jón missti móður sína 5 ára gamall og ólst upp hjá föður sínum og stjúpu, Jórunni Erlendsdóttur. Jón byrjaði ungur sjómennsku á útveg föður síns. 16 ára gam- all fór hann á m/b Svan hjá Jóni Ingileifssyni og er á honum til 1919, að hann fór í Stýrimanna- skóla íslands og þaðan lauk hann prófi eftir lýa vetur með I. eink- unn, enda greindur maður, og var hann þriðji í röðinni, sem það próf tók frá Eyjum. Eftir það er Jón ýmist á varðskipum eða tog- urum. 1925 byrjar Jón for- mennsku í Eyjum með m/b „Lax- foss“ og var hann stærsti bátur Frh. á bls. 199 Gunnar Ingimundarson, Hellu- koti, var fæddur að Hellukoti á Stokkseyri 31. júlí 1887. Foreldr- ar: Ingimundur Gunnarsson og Guðrún Andrésdóttir, búandi þar og hjá þeim ólst hann upp. Gunnar byrjaði ungur sjó- mennsku á vélbátum á Stokks- eyri og síðar formaður þar. Öðru hvoru reri Gunnar frá Vest- mannaeyjum og byrjaði for- mennsku á m/b „Enok“ 1924 og síðar á „Soffí“, sem þá var nýr bátur í eigu Gísla J. Johnsen og svo „Sverrir", sem hann átti ásamt fleiri mönnum. Eftir það hætti Gunnar formennsku í Eyj- um og stundaði sjó á Stokkseyri. Gunnar var heppnisformaður þær vertíðir sem hann var í Eyj- um. Hann var talinn með allra beztu sjómönnum Stokkseyringa. Gunnar lézt 23. júní 1964. Sigurjón Jónsson, Háagarði, er fæddur í Holti í Álftaveri 18. jan. 1906. Foreldrar: Jón Sverrisson og Sólveig Magnúsdóttir. Sigur- jón fór alfarinn til Vestmanna- eyja með foreldrum sínum 1910 og byrjaði sjómennsku á „Mín- ervu, sem faðir hans keypti hið sama ár og er síðar sjómaður á ýmsum bátum. 1928 kaupir Sigurjón „Rapp“ með Sigurði Bjarnasyni , Hlaðbæ 0 g síðar „Fylki“ með Sigurði og var há- seti það tímabil. Formennsku byrjar Sigurjón 1931 á „Gull- fossi“ og síðar „Maí“ og loks „Sísí“. Þá hætti Sigurjón sjó- mennsku og flutti úr Eyjum. Sig- urjón var góður sjómaður og fiskimaður í bezta lagi. 192 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.