Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Blaðsíða 31
V'egabréfasUyldu ínlenzkra farmanna.
Dóms- og kirkjiunálaróóuneytió hcfir sent F.F.S.f. bróf, þar
sem sendiráð íslands í Þýzkalandi brýnir fyrir hlulaðeigend-
nm, að íslenzkir sjómenn, sem sigla til Þýzkalands, hafi gild
Islenzk vegabréf, en síðan 1062 hefir engum útlendingi verið
lieimilt að stíga á land í ■•ýzkalandi án vegabréfs eða annarra
viðurkcnndra persónuskilrikja.
IVýlega hefir íslenzknr sjómaður verið dwmdnr I fangelsis-
refsingu í Dýzkalandi fvrir m.a. brot á þessnm reglum.
F.F.S.f. vill hérmeð vckja athygli íslenzkra sjómanna á
þessari aðvörun scndiráösins og vrnntir þess, að þeir fylgi af-
dráttarlanst settum reglum I þessum efnnm.
hækkun á kryddaðri og sykur-
saltaðri síldartunnu. — Norskir
síldarseljendur telja sig tæplega
geta fullnægt eftirspurn Svíanna,
m.a. vegna þess að þeir verða að
gæta þess að fullnægja öðrum
mörkuðum.
*
Rúmenskur fiskveiðileiðangur
var nýlega sendur til veiða á N,-
Atlantshafi. Voru í flota þessum
tvö verksmiðjuskip 4000 tonn
hvert.
fiskveiðar
Skipin stækka óSum.
Kockums skipasmíðastöðin í
Malmö hefir nýlega hleypt af
stokkunum 91.100 rúmlesta túr-
bínutankskipi „Malmöhus" fyrir
skipafélag í Trelleborg í Svíþjóð.
Með þessu skipi hækkaði stærð-
armetið í sænska farskipaflotan-
um um 17.5 þús. rúmlestir og
met Kockmus í smíði risaskipa
um 1200 rúml.
Fyrra met skipasmíðastöðvar-
innar var mótortankskipið „Sov-
ereign Clipper," sem hljóp af
stokkunum í október 1964.
Síðasta stærðarmetið verður
slegið á næsta ári með smíði
113.450 lesta túrbínutankskips.
Þá mun sænska verzlunarfotan-
um bætast annað 91 þúsund tonn
fyrir skipafélag í Malmö.
Þegar tonnastærð hinna ný-
tízku tankskipa er á hraðri
„siglingu“ uppeftir, — allt að
200 þúsundum, og Rússar „skák-
uðu" ameríkönum nýlega á flug-
vélasýningu í París með 720 far-
þega, flugvél með 60.000 hestöfl-
um, má geta þess til fróðleiks, að
stærsta seglskip heims mun hafa
verið fimmmastraði fullriggarinn
„Preussen,“ sem byggður var ár-
ið 1902, en skipið fórst árið 1911.
„Preussen“ var 133 metrar á
lengd, 16.4 m breiður og djúp-
rista 8.3 m. Skipið var 8000 rúm-
lestir og bar 43 segl. Áhöfnin var
40manns.
Vf KINGUR
Leiðangurinn átti að veiða við
Grænland, en komst aldrei lengra
en til Islands og þaðan hvarf
hann til síns heima eftir algjör-
lega misheppnaða veiðiför.
Kanada hefur s.l. vikur flutt
inn mikið magn frá Noregi af
hraðfrystum urriða á mjög hag-
stæðu verði. — Kanadískir fiski-
kaupmenn líta þessi kaup óhýr-
um augum vegna þess, að þeir
liggja með stórar birgðir af
dönskum urriða.
NorSmenn byggja skuttogara fyrir ísrael og Ghana.
Skipasmíðastöðin Akers Mek Verksted í Osló er að byggja
„syrpu“ af skuttogurum fyrir Israel og Ghana og hefir þegar lokið
við þann fyrsta.
Stærð togaranna er 231 fet milli stafna og breiddin 37 fet. Aðal-
vélin er Burmeister & Wain dieselvél 1900 hö. með 300 snúninga á
mínútu, með skiptiskrúfu. Flökunarvélarnar afkasta 24 tonnum af
fiskflökum á sólarhring.
Frystivélar togaranna frysta flökin niður í 28 stig á Celsíus
miðað við 29 stiga sjávarhita, svo að auðsýnt er að skipin munu leita
til fanga á suðlægum stöðum.
201