Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Side 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Side 11
14. sept. kom ítalska skipið „Lariano“ inn til Calcutta, og skipstjóri þess veitti upplýsingar um „Emden,“ sem urðu til þess að mikill floti var sendur af stað til að reyna að eyðileggja „Em- den,“ en daginn áður hafði Von Muller stöðvað „Lariano" en sleppt því aftur. Húrra fyrir óvinunum. Fréttir bárust aftur af „Em- den“ til Calcutta 16. sept. Og sú frétt varð sannarlega til að gera hár margra Bandamanna grá. — Brezka skipið „Kabinga“ kom nefnilega í höfn með áhafnir fimm annarra brezkra skipa, sem „Emden“ hafði sökkt á Bengal- flóa. Ensku sjómennirnir skýrðu frá því, hversu vel Þjóðverjarnir hefðu komið fram við þá, þeir sögðust einnig hafa hrópað húrra fyrir flotaforingjanum á „Em- den“ þegar hann sleppti „Kab- ingu.“ Heima í Englandi óx reiðin stöðugt og þess var krafizt að gert yrði út af við „Emden.“ Þess fundust greinileg merki heima á Englandi að „Emden“ hafði áhrif á styrjöldina, þrátt fyrir staðsetningu skipsins hin- um megin á hnettinum. Brezku skipin, sem „Emden“ sökkti voru með vaming til Bretlands, sem hafði mikla hernaðarþýðingu og var milljóna króna virði. I þess- um varning var meðal annars te, leður og tin. Og þessir atburðir urðu þess valdandi að vöruverð þessara tegunda hækkaði mikið. 14. sept. fyllti „Emden“ kola- geymslur sínar inni á False Bay, hérumbil 125 sjómílur frá Cal- cutta. Þetta fréttist þangað dag- inn eftir, og héldu þá 3 brezkir tundurspillar og jafnmargir franskir út samstundis til að elta hinn skæða „óvin Kyrrahafsins." 18. sept. sá kaupskip „Emden“ í 19 sjómílna fjarlægð frá Ran- goon. Og þar sökkti „Emden“ brezka skipinu „Clan Matheson," sem flutti bifreiðir. „Emderí' skýtur skoti a& brezku kaupskipi og stöSvar þaS. Árósin á Madras. Japanir tóku nú einnig þátt í því að reyna að eyða „Emden.“ Og ekki hvað minnst þessvegna varð Miiller enn áræðnari í störf- um sínum. 22. sept. hélt hann þvert yfir Bengalflóann og kom inn að kvöldi til Madras. Einn af áhöfn „Emdens“ hafði unnið í borginni og vissi hvar benzíngeymamir voru staðsettir við höfnina. „Emden“ læddist nær og skyndilega voru benzíngeymarnir uppljómaðir frá Ijóskösturum skipsins. Lét Von Miiller skjóta á geymana nokkrum skotum og slökkti síðan á ljóskösturunum og skaut úr fallbyssunum yfir höfn- ina í 15 mínútur. Sumar kúlurnar hittu skip í höfninni, loftskeytastöðina og aðrar byggingar. Brátt stóðu olíu- og benzíngeymamir í björtu báli. Varnarvirkin í landi hófu skot- hríð á „Emden“ en hittu ekki og tókst skipinu að komast undan. Von Múller vildi láta Banda- menn halda að hann stefndi til Calcutta, en þegar hann var staddur 100 sjómílur frá Madras, snéri hann við og setti stefnu á austurströnd Ceylons.“ Á næstu tveim dögum náði „Emden“ fimm brezkum kaup- skipum og kom í höfn í „Pondi- cherry“ þann 24. sept. Hér voru kol tekin og póstur. Hafði „Em- den“ gefið þennan stað upp fyrir póstsendingar til sín, en Bretar vildu ekki trúa þessu — héldu það gert til að villa sýn. f mörgum höfnum lágu skip um kyrrt af ótta við að verða „Emden“ að bráð. Múller hélt fljótt út aftur og leitaði að skipum á leiðinni Cey- lon—Aden. Og hálfri stund fyrir miðnætti 25. sept. stöðvaði hann brezkt gufuskip, „Tymerice.“ Á- höfnin fékk 10 mínútur til að fara í björgunarbátana og síðan var skipinu sökkt. Fimm dögum síð- ar sökkti „Emden“ enn þremur brezkum skipum, en það fjórða var sent að landi með áhafnir skipanna. — o — „Emden“ var nú búin með öll kolin, sem fengin voru úr sam- starfsskipinu „Markomannia,“ en um nóttina 1. okt. komst „Em- den“ í feitt, þar sem brezka kola- skipið „Buresk“ varð á vegi Múllers. Lét hann þegar losa 7000 lestir kola úr kolaskipinu yfir í „Markomannia" eftir að skipunum hafði verið lagt upp- undir landið. Bandamenn hertu eftirleitina að „Emden“ og mörg skip voru send út til að sökkva „Emden.“ Með- an á þessari leit stóð, lá „Em- den“ í Diego Garcia á Chargos- eyjum og var unnið að hreinsun VÍKINGUR 181

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.