Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Síða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1965, Síða 24
Úr fundargjörð Öldunnar Guðm. H. Oddsson tóh saman Fundur, 30. október 1918. Formaður las upp ávarp frá Fiskifélagi íslands. Lagt til að skora á Stjómarráð íslands, að viti verði reistur á Með- allandstöngum. Fundur, 4. desember 1918. öldufélagið hefir misst 4 félags- menn í þeim veikindum, er yfir gengu (Spánska veikin?),, þar á meðal Þorstein J. Sveinsson og var Þorsteinn Þorsteinsson kosinn til að taka við störfum hans. Rætt um undanþáguveitingar til vélstjórnar, er gefin var af for- manni félagsins. Nokkrar umræður um það mál. Tillaga frá Þorsteini Þorsteins- syni um að fela stjórn Öldunnar að spyrja Stjórnarráð íslands, hvenær það myndi breyta skírteinum ís- lenzkra skipa í samræmi við hinn nýfengna fána. Fundur, 18. desember 1918. Lagt fram nefndarálit um laun skipstjóra og stýrimanna, einnig um Siglingalagabrot. — Nefndarálitin rædd og síðan bæði samþykkt. Fundur, 8. janúar 1919. Lagt til að skora á Stjómarráðið að fylgja í öllum atriðum tillögum Öldunnar í vita- og siglingamálum. Kristján Bergsson minntist á, að hafnarstjórastaða væri veitt og skoraði á formann félagsins að skrifa meðlimum þeim, er sætu í hafnarnefnd og bæjarstjórn og skora á þá að mæta á næsta fundi. Fundur, 15. janúar 1919. Formaður: Magnús Magnússon. Ritari: Jón Ámason. Gjaldkeri: Ellert Schram. Styrktarsjóður kr. 13.143.36. Lagabreytingar. Skipstjórafélagið Aldan í Reykja- vík ályktar að lýsa megnri óánægju og vantrausti fyrir framkomu þeirra meðlima sinna, sem sæti eiga í hafnamefnd og bæjarstjórn og láta þá óhæfu viðgangast mótmælalaust, að lítt hæfum manni var veitt hafnarstjórastaðan við höfnina í Reykjavík, án þess að staðan væri áður auglýst til umsóknar, og hæf- um mönnum gefinn kostur á að sækja um hana. Fundur, 1. október 1919. Formaður las upp bréf sent af Fiskveiðafélagi íslands, skrifað af Stjórnarráðsskrifstofunni í Kaup- mannahöfn, um gagnkvæmi íslend- inga og Dana í siglingum. Skipuð 5 manna nefnd til að íhuga málið. Fundur, 29. október 1919. Nefndarálitið um gagnkvæmi Dana og íslendinga í siglingum lagt fram og rætt mikið, og síðan borið undir atkvæði og samþykkt: að veita Dönum engin sérréttindi varð- andi siglingar á ísl. skipum. Fundur, 12. nóvember 1919. Kosin nefnd til að athuga siglinga- löggjöfina frá 3. nóvember 1915. Fundur, 3. desember 1919. Gestur Kr. Guðmundsson fram- ber ósk frá skipstjórum og stýri- mönnum á botnvörpuskipum um að koma á nokkru ákvæði um laun þeirra. Kosin var 7 manna nefnd. AðaJfundur, 14. janúar 1920. Sama stjórn. Styrktarsjóður kr. 13.878.21. Rætt um lög um atvinnu við sigl- ingar. Geir Sigurðsson lagði til að kosin yrði nefnd í kauptaxtamálið, sem væri þannig skipuð: 1 skipstjóri og 1 stýrimaður af botnvörpuskipum, 1 skipstjóri og 1 stýrimaður af milliferðaskipum, 1 skipstjóri og 1 stýrimaður af fiskikútter, 1 skip- stjóri og 1 stýrimaður af vélskipi, og var samþykkt að kjósa 8 menn og formann félagsins sem 9. mann. Jón Arnason. Fundur, 21. janúar 1920. Nefndarálit um lög um atvinnu við siglingar lagt fram og rætt lið fyrir lið og borið undir atkvæði og samþykkt með smávægilegum breyt- ingum. Hafsteinn Bergþórsson kosinn formaður kauptaxtanefndar, þar sem Björn Ólafs taldi ekki hægt að fastákveða nú kaup skipstjóra á togurum. Fundur, 29. janúar 1920. Kauptaxtamálið: Lagt var fram uppkast að kröfum fyrir skipstjóra og stýrimenn, að undanteknum skipstjórum á togurum. Var þetta rætt nokkuð mikið, síðan voru kaup- kröfutillögur nefndarinnar fyrir skipstjóra og stýrimenn á allskon- ar skipum yfir 30 tonn og við veið- ar og flutninga, bornar upp og sam- þykktar með litlum breytingum. Fundur, 4. febrúar 1920. Kauptaxtamálið: Nefndin skýrði frá, að þeir hefðu átt fund með út- gerðarmönnum skipa þeirra, sem færafiskinn stunda og náð sam- komulagi fyrir skipstjóra og stýri- menn á þeim, svohljóðandi: I. Skipstjórar á færaskipum: Stundi skipið handfæraveiðar kr. 150,oo á mánði og 4% af brúttóafla skipsins og kr. 2,oo af hverri lifrartunnu er á land kemur, eða kr. 200,oo á mánuði og kr. 7,50 af hverju skippundi er skipið aflar og kr. 2,oo af hverri lifrartunnu er á land kemur. 194 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.