Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Blaðsíða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Blaðsíða 13
Varizt óhekhta „vini“ í erlendum hafnarborgum íslenzk kaupskip sigla nú víða um heim, bæði austur og vestur um haf og lengra suður á bóg- inn en nokkru sinni fyrr. íslenzkir farmenn kanna því oft nýjar og áður óþekktar slóðir og sigla til nýrra hafnarborga, en þar eru fyrir margir sauðir og harla misjafnir, sem hætta getur stafað af, sérstaklega fyr- ir unga og óreynda sjómenn, og er þá aldrei of varlega farið. Fyrir skömmu birtist í sænska tímaritinu Sjömannen frásögn af einu slíku „ævintýri," sem 17 ára viðvaningur á sænska skipinu Industria lenti í. Skipið lá í höfninni í borginni Agadir í Marokkó, en í þessari borg urðu miklir jarðskjálftar fyrir nokkrum árum, sem lögðu í rúst hluta hennar. Uppi á f jallstindi uppfrá miðri borginni stóð gömul kastalabygg- ing, sem freistaði hinna sænsku sjómanna, sem langaði mjög til að sjá hana að innanverðu. Hinn ungi Svíi, Börje Grenfelt að nafni, var á gangi meðfram höfninni þegar einkabifreið ók upp að hlið hans. Ökumaðurinn, velbúinn og kurteis Marokkóbúi, gaf sig á tal við piltinn og spurði hvort hann langaði ekki til að skoða kastalann og bauðst til að aka honum þangað. Grenfelt tók þessu ágæta boði fegins hendi, þakkaði hinum kurteisa manni og settist við hlið hans í bifreiðina. ökumaður var hinn skraf- hreifnasti við farþega sinn og tjáði honum meðal annars að hann starfaði við lögregluna í borginni. Þegar komið var um miðja vegu upp fjallshlíðina stöðvaði hann bifreiðina skyndi- lega og á fáförnum stað. Skipti þá engum togum að Marokkóbú- inn gerðist nærgöngull við pilt- VÍKINGUR Hinn ungi sjómaSur í reifum eftir heljar- stökkið. inn, sem skyldi þegar að hér var kynvillingur á ferðinni. Greip hann þá ofsahræðsla, og reif hann upp bílhurðina, henti sér út með þeim afleiðingum að hann féll átta metra niður fjalls- hlíðina. Þegar Grenfelt kom til sjálfs síns eftir fallið var bifreið- in horfin. Hann náði við illan leik um borð í skip sitt og kom þá í ljós að hann hafði meiðst illa á fæti og hálsi, þá hafði hann rifbeins- brotnað og vinstri handleggur var einnig brotinn. Sænska velferðarráðið hefir sent út viðvörun vegna atburðar þessa og sem hið sænska blað undirstrikar sérstaklega: Ferðizt aldrei einsamlir með út- lendum og óþekktum persónum. Trúið ekki að þeir séu það, sem þeir látast vera, jafnvel lög- reglufulltrúar. Leggið aldrei trúnað á hvað ó- þekktir menn í erlendum höfnum reyna að fá ykkur til að halda um þá. í mörgum tilfellum getur einfeldni og trúgirni kostað ykk- ur lífið sjálft. G. J. ENGIN KEÐJA ER STERKARI EN VEIKASTI HLEKKURINN TRYGGING ER NAUÐSYN ALMENNAR TRYGGINGAR PÓSTHÚSSTRÆTI Sími 17700 217 XIL 0)

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.