Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Blaðsíða 22
Bátar og formenn í Vestmannaeyjum
„GlaSur“ 16.00 tonn.
SmíðaSur í Noregi 1925.
„Gúlla“ 15.57 tonn.
Smíðuð í Noregi 1924.
„Gunnar Hámundarson“ 17.00 tonn.
SmíSaSur í Noregi 1924.
Sigurður Þorsteinsson, Nýja-
bæ, er fæddur 2. febr. 1888 á ísa-
firði. Foreldrar: Þorsteinn Þor-
steinsson og Elísabet Jakobsdótt-
ir.
Sigurður byrjaði ungur sjó-
mennsku á ísafirði. 17 ára er
hann orðinn formaður í Þorgeirs-
firði og upp frá því er Sigurður
formaður víðsvegar við Eyja-
fjörð í fjölda sumur, en á vetr-
um er hann á Isafjarðarbátum.
Sigurður fór alfarinn til Vest-
mannaeyja 1922 og er þá véla-
maður á bát þar í einn vetur.
1925 byrjar Sigurður formennsku
á „Kára I,“ síðar er Sigurður
með eftirtalda báta: „Glað,“
„Hjálpara," „Auði“ allt fram til
1938. Sigurður var mesti dugnað-
arformaður og er hann löngu
þekktur maður um Norðurland
og Vestfirði fyrir dugnað. Hann
var alla tíð góður aflamaður.
226
Benóný Friðriksson, Gröf, er
fæddur að Gröf í Vestmannaeyj-
um 7. jan. 1904. Foreldrar: Frið-
rik Benónýsson og Oddný Bene-
diktsdóttir.
Benóný byrjaði sjómennsku um
fermingu á opnum bát og varð
fljótlega formaður og aflasæll. Á
vertíð réri Benóný fyrst á „Nan-
sen“ með Jóhanni á Brekku allt
til 1926, þá byrjar Benóný for-
mennsku á m.b. „Gúllu.“ Eftir
það er Benóný með eftirtalda
báta: „Gottu,“ „Heklu,“ sem var
enskur bátur, „Gulltopp," „Sæv-
ar,“ „Þór,“ „Andvara,“ allt til
1954, þá tók hann við „Gullborgu“
og var aflakóngur á henni allt til
1959 að báðum árum meðtöldum
og aftur 1961. Benóný hefur alla
tíð verið í toppnum sína löngu
formannstíð og er fyrir löngu
Framh. á bls. 235
Vigfús Sigurðsson, Pétursborg,
er fæddur á Seyðisfirði 24. júlí
1893. Foreldrar: Sigurður Vig-
fússon og Ingibjörg Bjömsdótt-
ir. Vigfús flutti með foreldrum
sínum alfarið til Vestmannaeyja
1908.
Vigfús byrjaði ungur sjó-
mennsku í Eyjum á ýmsum bát-
um allt til 1920. Þá byrjar hann
formennsku á m.b. Blíður. Eftir
það er hann með eftirtalda báta:
„Gústaf,“ „Kap,“ „Gunnar Há-
mundarson," sem hann átti á-
samt fleiri mönnum og hafði for-
mennsku á honum fram yfir 1930
og síðast er Vigfús með m.b.
„Snig.“ Eftir það hætti Vigfús
formennsku og stundaði útgerð í
nokkur ár.
Vigfús var þrekmaður við sjó-
inn og aflamaður góður.
* *
VÍKINGUR