Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Page 16
'®SR
Úr kennslustund í siglingafrœSi — sjókortin.
Þessi fyrsti árgangur skólans
stóð sig með ágætum og fengu 3
menn ágætiseinkunn, en allir aðr-
ir 1. einkunn.
Ágætiseinkunn hlutu:
Hörður Elíasson 173 stig eða
7,52,
Sævald Pálsson 172% stig eða
7,51,
Kolbeinn Ólafsson 7,38 í meðal-
einkunn.
Aðrir sem útskrifuðust voru:
Benedikt Sigurðsson
Jóhann Guðjónsson
Einar Guðlaugsson
Kristján S. Guðmundsson
Georg Stanley Aðalsteinsson
Már Lárusson
Stefán Jón Friðriksson
Valbjörn Guðjónsson
Willum Pétur Andersen
Guðjón Aanes
Hólmar Albertsson
Meðaleinkunn bekkjarins var
6,76, en hæst er gefið 8.
Skólastjóri er Guðjón Ármann
Eyjólfsson og er hann jafn-
framt aðalkennari í siglingafræði
og tungumálum.
Fastur kennari við 1. bekk var
ráðinn Steingrímur Arnar stýri-
maður, en aðrir kennarar skólans
voru ráðnir sem stundakennarar:
Eiríkur Guðnason kennari í ís-
lenzku.
Magnús Magnússon, símstöðv-
arstjóri, í meðferð loftskeyta
og lórantækja.
Brynjólfur Jónatansson raf-
virkjameistari, í radar- og
f iskileitartæk j um.
Sverrir Bergmann læknir, í
heilsufræði.
Júlíus Magnússon frkvstj., í
bókfærslu.
Magnús Magnússon og Ingólf-
ur Theodórsson, netagei’ðar-
meistari í verklegri sjó-
vinnu.
Birgir Helgason verksmiðju-
stj., í vélfræði.
Jón Óskarsson, fulltrúi bæjar-
fógeta, í sjórétti.
Guðmundur Sigurmonsson í-
þróttakennari, í íþróttum.
í skólanum hefur verið lögð á-
herzla á tækjakennslu og viðgerð-
ir veiðarfæra. Kennsla í siglinga-
fræði, tungumálum og öðrum
greinum er þó að sjálfsögðu hin
sama og verið hefur undir hið
meira fiskimannapróf.
Á liðnum vetri voru 4 tímar á
viku kennsla í meðferð siglingar-
og fiskileitartækja og var bætt
heilum kafla um þessi efni í próf-
reglugerð fyrir stýrimannaskól-
ana:
Voru prófkröfur í meðferð og
notkun nýrra siglingar- og fiski-
Ieitartækja þessar: „Nemendur
þekki stillingar á öllum þeim
tækjum, sem á hverjum tíma
kunna að vera í skólanum og bæt-
ast mega í fiskiskipaflota lands-
manna. Þekking á öllum stilling-
um ratsjár. Kunna skil á sýndar-
hreyfingu og hraða skipa í ratsjá
(kunna plott), kunna að víkja
eftir ratsjá. Þekking á öllum still-
ingum fiskileitartækis (Simrad), *
þekking á öllum stillingum dýpt-
armælis (Atla-Pelikan), þekking
á öllum stillingum Loran-tækis,
kunna að taka staðarákvörðun -
með Loran-tæki og setja út í sjó-
kort. Þekking á öllum stillingum
Ijósmiðunarstöðvar (Koden) og
geta tekið staðarákvörðun með
VÍKINGUR
220