Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Síða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1965, Síða 24
Úr fundargerð Öldunnar Guðm. H. Oddsson tók saman Fundur, 12. júlí 1923. Þá voru teknir inn 9 félagsmenn frá Stýrimannafélaginu Ægi, sem áður var samþykkt. 7 nýir félags- menn sóttu um upptöku í félagið og voru þeir allir mættir. Voru skil- ríki þeirra rannsökuð og þeim öll- um veitt upptaka í félagið. Lögð var fram af Jóni Bergsveinssyni fund- argjörð og tillaga fyrir hönd nefnd- ar þeirrar, sem kosin var af hálfu Öldunnar til að ræða við Vélstjóra- félag íslands. Til máls tóku allir nefndarmennirnir, og voru hvetj- andi því, að myndaður yrði félags- skapur millum þessara félaga, til samvinnu á málum, er snerta þessi félög, og til að halda uppi sameigin- legum rétti þessara félagsmanna. Kosin 3ja manna nefnd til að út- búa reglugerð fyrir þennan félags- skap, sem síðar yrði lagt fyrir fundi í báðum félögunum. Samþykkt tillaga um að fela stjóm Öldunnar í samráði við Fiskifélag íslands, að rannsaka sem fyrst, hvort stýrimenn og skipstjór- ar á skipum á norður- og vestur- landi, hefðu fullan rétt til að vera yfirmenn skipa og einnig verði rann- sakað, hvort öll skip, sem nú sigla undir íslenzkum fána hafi löglega hér á landi. Fundur, 20. nóvember 1923. Samþykkt að taka á leigu fundar- sal verzlunarráðs og hafa þar fundi einu sinni í viku á hverjum þriðju- degi, annar hver fundur verði skemmti- og spilafundur. Húsa- leigan er 15 krónur fyrir hvem fund. Skýrt var frá tilraunum þeim, sem Matthías Þórðarson hefur gert á sölu á saltfiski á smáum umbúð- um, og sem hann nú hefur fengið einkaleyfi fyrir erlendis. Sala þessi hefur gengið vel þann stutta tíma, sem hún hefur verið reynd. Fundur, 18. desember 1923. Tillaga kom fram frá Geir Sig- urðssyni: „Skipstjórafélagið Aldan skorar á þing og stjórn, að veita svo fljótt sem auðið er, fé til bygg- ingar fullkomins landtökuvita við suðurströnd landsins, á svæðinu frá Dyrhólaey að Meðallandstöngum.“ Samþykkt samhljóða. Aðalfundur, 15. janúar 1924. Formaður: Jón Bergsveinsson. Ritari: Jón Árnason. Gjaldkeri: Kristinn Magnússon. Styrktarsjóður kr. 16.246.31. Kristján Bergsson skýrði frá, að mörg skip er stundað hefðu síld- veiðar fyrir Norðurlandi síðastliðið sumar og væm talin íslenzk eign og undir íslenzkum fána, en með engin íslenzk skilríki. Las hann upp kæru, er hann hafði ritað síðastliðið sum- ar til bæjarfógetans á Siglufirði, út af skipinu „Rolf.“ Fundur, 12. nóvember 1924. Formaður ræddi um nauðsyn þess, að auka styrktarsjóð félags- ins, og urðu það nokkrar umræður, en engin ákvörðun tekin. Fundur, 26. nóvember 1924. Samþykkt að sækja um leyfi til að halda hlutaveltu, til að efla styrktar s j óðinn. Fundur, 10. desember 1924. Rætt um að gefa minningar- spjöld til eflingar styrktarsjóðnum. Sigurður Oddsson talaði um nauð- syn þess að koma á slysatrygging- um fyrir félagsmenn. Samþykkt var, að stjórn Öldunnar talaði við stjórn Vélstjórafélagsins um sam- vinnu um að koma á slíkum trygg- ingum. Samþykkt að fara þess á leit við skólastjóra Stýrimannaskólans, að hann kæmi á fund Öldunnar og skýrði frá ástandi Stýrimannaskól- ans. Fundur, 19. desember 1924. Samþykkt að skrifa hafnarnefnd og skora á hana að sjá um, að næg- ar og upplýstar landgöngubrýr væru fyrir hendi við hvert skip, er leggð- ist við uppfyllingu, einnig lausir stigar. Rætt um reglugerð fyrir Stýri- mannaskólann. Aðalfundur, 14. janúar 1925. Formaður: Guðmundur Kristjáns- son. Ritari: Jón Árnason. Gjaldkeri: Sigurður Oddsson. Styrktarsjóður kr. 17.112.47. Samþykkt að verja kr. 1.500.oo til kaupa á munum til að koma á stofn happdrætti fyrir styrktarsjóð- inn. Fundur, 22. október 1925. Lesin upp greinargerð og nefnd- arálit varðandi minningarspjöldin, og samþykkt að láta ganga frá spjöldunum. Formaður gat um, að stýrimenn á Hellind Brors., vildu fá réttindi sem á innlendum skip- um væru. Var því mótmælt, þar sem ekki væri hægt að lögskrá þá á út- lend skip sem stýrimenn. Fundur, 12. nóvember 1925. Kristján Bergsson hélt fróðlega ræðu um undirbúning og áhrif heimskulegra ráðstafanar varðandi siglingalögin. Var málið mikið rætt og frestað til næsta fundar. Fundur, 3. desember 1925. Hafsteinn Bergþórsson tók fyrst- ur til máls og skýrði fyrirætlanir þeirra með nokkrum orðum, sem var að því er virðist sú, að starfandi skipstjórar og stýrimenn hefðu sér- félag meðan þeir væru starfandi á botnvörpungum, en enginn fengi inngöngu í þann félagsskap, nema hann væri félagi í Öldunni. Miklar umræður urðu um þetta. Eftirfar- andi tillaga samþykkt: „Öidufélagið er því meðmælt, að styrkja og vinna í sameiningu með VÍKINGUR 228

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.