Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Síða 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Síða 1
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 34. ÁRGANGUR — 7.-8. TÖLUBLAÐ 1972 Guömundur Jensson: Island — arðrændasta nýlenda á N-Atlantshafi EFNISYFIRLIT: Island arðrændasta nýlenda á N-Atlantshafi Guöm. Jensson 265 Reglugerðin um 50 sjómílna útfærsluna 270 1 aldaraðir hefur Island orðið að þola yfirgang og arðrán erlendra þjóða Matthías Þóröarson 272 Yfirgangur erlendra togara um aldamótin EinarBogason frá Hringsdal 274 Eyðing fiskimiðanna Sigurjón Einarsson 276 Hugleiðingar í tilefni útfærslu landhelginnar Garðar Pálsson 279 íslenzka landhelgisgæzlan Pétur Sigurðsson 280 Kvenkokkur G. Jensson þýddi 284 Einn á móti þremur P. Björnsson, G. frá Rifi 286 Bezta ræðan í Genf 305 Gleymt er þá gleypt er Jón Otti Jónsson 306 Hvers vegna vilja Islendingar færa út Iandhelgina? Jóhann J. E. Káld 310 Er sofið á verðinum? Gils Guðmundsson 312 Einhuga þjóð Hermann Jónasson 313 Frívaktin o. fl. Forsíðan, m. a.: Leiðarljóð 1944 eftir Magnús Ásgeirsson SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi F. F. S. 1. Ritstjórar: Guðmundur Jensson (áb.) og örn Steinsson. Ritnefnd: Böðvar Stein- þórsson, formaður, Henry Hálf- dansson, varaformaður, Páll Guð- mundsson, Karl B. Stefánsson, Haf- steinn Stefánsson, Bergsveinn S. Bergsveinsson, Helgi Hallvarðs- son. — Blaðið kemur út einu sinni í mánuði og kostar árgangurinn 650 kr. Ritstjórn og afgreiðsla er að Bárugötu 11, Reykjavík. Utaná- skrift: „Víkingur", pósthólf 425 Reykjavík. Sími 15653. Prentað í ísafoldarprentsmiðju hf. VlKINGUR Nú, þegar ein afdrifaríkustu þáttaskil í sjálfstæðisbaráttu ís- lenzku þjóðarinnar eru að nálg- ast, fer vart hjá því og ekki illa, að landsmenn, eldri sem yngri, leiði hugann að fortíðinni; athugi í sannsögulegu ljósi heimildir um framkomu margra fiskveiðiþjóða V-Evrópu við íslandsstrendur. Við staðreyndir þær er þá við blasa, er ekki ólíklegt, að mönn- um hrjósi hugur við þeim óhugn- anlega yfirgangi og hrottaskap, sem íslendingar urðu að þola um hálfrar sjöttu aldar skeið. En allar þær aldir var hún hrein- lega bitbein og fótaskinn ágengra stórþjóða, er sóttu á okkar grunn- slóðir og uppeldisstöðvar nytja- fiska óhemju verðmæti fiskaf- urða, án þess að íslendingar fengju rönd við reist til verndar sínum eigin óskoraða forgangs- rétti. Við skulum nú um stund dvelja við upphaf okkar fiskveiði- sögu. Fornar heimildir, bæði í ís- lendingasögum og allt aftur til Landnámu herma að landnáms- menn og þeirra niðjar hafi frá upphafi fslandsbyggðar og um aldaskeið stundað fiskveiðar af miklu kappi hér við land. Hefir hinn óþreytandi máls- svari okkar Júlíus Havsteen sýslumaður í ritgerðum sínum m. a. dregið fram í dagsljósið ótal dæmi, sem renna stoðum undir slíkar óumdeilanlegar heimildir í riti sínu: „Úr fiskveiðisögu ís- lands“. Verða hér tilfærð nokkur dæmi en st.klað á stóru. Túlkun sögunnar er á þá leið, að landnámsmenn hafi haft opin augu fyrir og margir hverjir sózt eftir að festa sér búsetu þar, sem sækja mátti útróðra og mikið var um fiskifang; firðir og flóar fullir af veiðiskap. Hnekkir það þeirri almennt ríkjandi skoðun, að forfeður okkar hafi einungis verið bændur, sem fengust við landbúnað gegnum aldirnar. Ein af söguhetjunum til forna var Þuríður sundafyllir. Kom hún til íslands frá Há- logalandi, helgaði sér „Kvíamið" í Isafjarðardjúpi og tók sauði af bændum fyrir afnot þeirra. Ketill flatnefr flúði ofríki Har- alds konungs hárfagra og leitaði til íslands ásamt sonum sínum Birni og Helga. Vissu þeir feðgar þar hvalreka mikinn og laxveiðar og fiskistöðvar öllum missirum. Þorgeir önundarson tréfóts bjó á Reykjafirði á Ströndum: Réri jafnan til fisJca, því at þá voru firöimir fullir af fiskum“. Ingjaldur í Hergilsey var á sjó en hann leyndi Gísla Súrssyni, er Börkur digri leitaði hans. íslendingasögur greina víða frá, að snemma fóru fornmenn í ver. Á Breiðafirði og undan Jökli hefur fjölmenni sótt til veiði- fanga og fyrir norðan eru til- greind fiskiver, svo sem á Strönd- um og á Vatnsnesi, en þangað sótti Oddur ófeigsson með sveit 265

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.