Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Side 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Side 7
Lúðvík Jósepsson, sjávarútvegsráðherra til hægri og Jón L. Arnalds ráðuneytis- stjóri undirrita reglugerðina. fjölda veiðiskipa og hámarksafla hvers einstaks skips. 6. gr. Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum sam- kvæmt ákvæðum laga nr. 62 18. maí 1967, um bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu ásamt síðari breytingum, laga nr. 40 9. júní 1960, um takmarkað leyfi til dragnótaveiða í fiskveiði- landhelgi íslands undir vísinda- legu eftirliti, laga nr. 33 19. júní 1922, um rétt til fiskveiða í land- helgi, með síðari breytingum, eða ef um er að ræða brot, sem ekki fellur undir framangreind lög, sektum frá kr. 1.000.00 til kr. 100.000.00. 7. gr. Reglugerð þessi er sett sam- kvæmt lögum nr. 44 5. apríl 1948, um vísindalega verndun fiski- miða landgrunnsins, sbr. lög nr. 81 8. desember 1952, og fellur með gildistöku hennar úr gildi reglu- gerð nr. 3 11. marz 1961, um fisk- veiðilandhelgi íslands. 8. gr. Reglugerð þessi öðlast gildi 1. september 1972. Sjávarútvegsráðuneytið, 14. júlí 1972. Luðvík Jósepsson. Jón L. Arnalds. Landgrunnslögin frá 1948 Á árinu 1948 voru svonefnd landgrunnslög samþykkt á alþingi, en þar er gert ráð fyrir að færa smám saman út fiskveiðilögsöguna og öðlast yfirráðarétt yfir öllu landgrunninu umhverfis Island. Lög þarf því ekki að setja um útfærsluna, heldur hafa stjórn- völd hverju sinni heimild til reglugerðarsamþykktar um útfærslu eftir því sem þörf og ástæða er fyrir. Á kortinu hér að ofan sést 50 mílna svæðið, eins og nú hefur verið samþykkt, en að neðan sést fyrsta útfærslan, sem gerð var árið 1952. Var þá fært út í 4 mílur og fjörðum og flóum lokað. VlKINGUR 271

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.