Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Síða 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Síða 24
reiði eða smán yfir að láta fara svona með sig, sennilega hvort- tveggja, en ég var svo miður mín að ég gat ekkert sagt, og gat ekki hugsað neina hugsun rökrétta til enda. Þær mösuðu og hoppuðu í kringum mig, eins og kettir sem leika sér að bráð sinni. Ég gafst alveg upp. Mér fannst að minn karlmannsheiður væri al- veg horfinn. Eg lagðist á aðra hliðina, studdi hönd undir kinn og horfði niður í sandinn, reif upp strá og fór að naga það og beið þess eins og dæmdur hvað kæmi næst. Maffgra sendi systurnar eftir fatnaði þeirra, en sjálf rölti hún að mér, og var nú að mér virtist úr henni mesti galsinn. En. bið- um við. leggst hún ekki flötum beinum alveg fyrir framan mig, setur báðar hendur undir hnakk- ann. og segir síðan. ofur rólega: „Gutti minn. við stelnurnar er- um ekkert öðruvísi en þið. Sjáðu, ég er með handleggi, herðar og brióst alveg eins og þú. nema mín brjóst eru stærri að því að ég er kvenkvns. Eg er með maga, lendar, læri og fótleggi, alveg eins og þú, það er ekkert sem skilur á milli nema kynfærin, en þau eru ekki nema á tvennan máta, eins og þú veizt.“ Á meðan hún var að útskýra þetta fyrir mér, gát ég horft blygðunarlaust á hana, mér fannst hún allt í einu vera orðin fullorðnari en ég og geta talað um þetta á raunsærri hátt, en svo tekur hún um hönd mína og lætur hana strjúkast um lærið á sér, og segir um leið: „Finndu, okkar húð er aíveg eins viðkomu og ykkar.“ Eg kippti eldsnöggt að mér hendinni, það var eins og ég hefði brennt mig. Magga hló við, stökk á fætur yfir mig, og var þotin burt. Heyrði ég í þeim masið og hláturinn fyrir aftan mig, og vissi að þær voru að koma sér í fötin. Loks fór umrótið í sálu minni að lægja svolítið svo ég gat far- ið að ná fram skýrum hugsunum, og snerust þær mest um það hvernig hægt væri að fela þetta svo það spyrðist ekki út. Eg sá sjálfan mig í anda ef strákarnir heima í kaupstaðnum mínum fréttu það að ég hefði haft alls- nakta stelpu á háhesti, sem sagt eins og Magga sagði, nakin kvenmannslæri um hálsinn. Nei, það varð einhvernveginn að stoppa þetta af. En svo var fólk- ið heima, jú, foreldrar Möggu myndu nú snupra hana eitthvað smávegis fyrir svona uppátæki, en svo yrði það ekki meira. En það kviknaði allt í einu vonarljós hjá mér, og það var hún Anna gamla, sem var komin yfir sjö- tugt. Það var alveg áreiðanlegt að hún myndi fá sl'ag og deyja ef hún frétti að hún Magga, sjálft uppáhaldið hennar hefði hagað sér svona. Þegar ég var búinn að hugsa um þetta dálitla stund, kallaði ég á Möggu og fór að segja henni frá uppgötvun minni. Lét ég í það skína að mér væri alveg sama þótt þetta fréttist, en að það yrði gömlu konunni að að bana mátti ekki henda, og þegar við höfðum rætt um það fram og aftur, bundum við öll það fastmælum að við skyldum engum segja frá þessu. Fór mér nú strax að líða betur, því þrátt fyrir ósigurinn sem mér fannst ég hafa orðið að þola þá gat ég ekki að því gert, að mér fannst ég hafa unnið lokasigurinn. Langt er nú liðið síðan þetta gerðist, og við Magga erum búin að vera gift í mörg ár. En ég get ekki að því gert, að í hvert skipti sem ég sé hana fáklædda, verð ég hálf feiminn, og minnist at- burðarins á sjávarkambinum. Margur maðurinn segir við sjálfan sig og jafnvei aðra: það kemur alðrei neitt fyrir mig Þetta eru staðlausir stafir, því áföllin geta hent hvern sem er.hvar sem er. Það er raunsæi að tryggja. Hikið ekki — Hringið strax ALMENNAR TRYGGINGARf Pósthússtræti 9, sími 17700 288 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.