Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Side 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Side 33
„En þetta eru bara 19 hænur, ég bað um 20“, sagði bóndinn við hænsnakaupmanninn. „Já, ég veit það svaraði hinn, þú færð hana á morgun, ég vildi ekki trufla hænuna, — hún var að verpa“. Kaupa veiðileyfi. 1 fyrsta skipti í sögu fiskveiða, hafa amerísk túnfiskveiðiskip byrjað að greiða Equador gjald fyrir veiðileyfi undan strönd landsins. Frá þessu er skýrt í tímaritinu „National Fisher- man“. Er þetta gert til þess að losna við töku skipanna og sektar- greiðslur. Leyfið gildir fyrir 50 daga að veiðum og er gjaldið tæpar 1700 ísl. kr. fyrir hvert nettó tonn. Equador, sem tekið hefur sér 200 mílna landhelgi, tók árið 1971 58 amerísk túnfiskveiðiskip í landhelgi og sektirnar námu sam- tals um 10 millj. ísl. kr. Þar fengu veiðiskipin ekki her- skipavernd Ameríkumanna. Ekki einu sinni innan 200 mílna! r"i5' I* J 4*» * y 6 $ < ? ff X © !* í B 6 [( Þegar nokkrir brezkir íþrótta- menn heimsóttu fyrir skömmu Indland, komu þeir inn á veit- ingahús í Nýju Delhi. Þeir fengu matseðil, en skildu ekki eitt orð. Loks urðu þeir ásáttir um að panta það sem stóð letrað feitum stöfum neðst á seðilinn og hét Mana Kananda. Þjónninn hristi höfuðið vand- ræðalegur á svipinn og stundi út úr sér, að þetta væri nafnið á yfirmatsveini hótelsins! VÍKINGUR Franski stjórnmálamaðurinn Talleyrand komst eitt sinn þann- ig að orði: „Ég er hræddari við 100 sauði, sem stjórnað er af einu ljóni, en flokk af 100 Ijónum, sem stjómað er af einum sauð“. „Þér eigið augsýnilega við vandamál að stríða“, sagði sál- fræðingurinn við sjúklinginn. „Já, svo sannarlega. Nú hefi ég lagt peninga til hliðar í mörg ár, en ég get með engu móti mun- að til hvorrar hliðar ég hefi lagt þá“. Samvizkan er einasti hluti sál- arinnar sem uppleysanlegur er í vínanda. Hinsvegar má geyma flest í vínanda, nema leyndarmál. Sníkjudýr! Við talningu á föngum til mið- degisverðar í fangelsinu í Jack- sonville í Florida, kom í ljós, að þar var einum fanga ofaukið. Við rannsókn kom í ljós að þarna var kominn fangi, sem ný- lega hafði verið sleppt lausum, en langaði í ódýran málsverð. Manninum var umsvifalaust fleygt út! Nýju Edduhótelin 297

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.