Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Side 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Side 35
ast allra fjarða landsins sökum þess, að þar var fyrst sett mið við Island, er nefnist Kvíarmið og setti það landnámskonan Þuríður sundafyllir, sem fór frá Hálogalandi til íslands, ásamt syni sínum, Völu-Steini, og nam Bolungarvík og bjó í Vatns- nesi. Fyrir staðsetninguna tók hún til á kollótta af hverjum bónda á ísafirði, og mun ekki of goldið, því sjaldan eða aldrei hefur mið þetta brugðist, sem lesa má í Sturlungu, en þar segir, að til land- auðnar hafi horft við ísafjörð árið 1236 ,,áðr fiskr gekk upp á Kvíarmið“. En horfir nú ekki til landauðnar þar, þrátt fyrir „Kvíarmið"? Guðmundur H. Guðmundsson, Engja- veg á Isafirði, svarar spurningum mínum á þessa leið: „Hvað viðvíkur hinni nýju friðunarlínu, gerir hún engan mismun á friðun fiskimiða hér nema á svæðinu í álnum, þar útilokar hún alla dragnóta- veiði. Togbátar gátu áður farið í álnum inn á svo- nefnt Kvíarmið og töluvert innar, en eftir lokun- ina geta þeir ekki farið nema á Kögurtrýni og inn undir Eldingar á vestri kanti. Það munar miklu fyrir smærri línubáta. ÍJt af Patreksfjarðarflóanum verður nokkur rýmkun, og er það von okkar hér vestra, að það hjálpi sunnan- göngum á vorin, ef varðskip væri haft á svæðinu um það leyti, sem fiskur gengur, en misbrestur hefur orðið á því eftirliti hingað til. Ekkert eftir- lit eftir mánaðamót marz—apríl. Togaraágengnin virðist meiri hér síðan Breiði- fjörður og Faxaflói lokuðust". Þá hefur Páll Pálsson i Hnífsdal gefið mér glögg- ar lýsingar á þremur miðum við eða í Djúpinu, auk þess sem hann um „Bolvíkingamið" vísar til bls. 36 í hinni merku bók Jóhanns Bárðarsonar, „Áraskip“. Segir hann um miðið inn með Straum- nesi: „Á þetta svæði gekk fiskur mjög oft upp að landsteinum". Um þriðja miðið, sem hann nefnir „aðal vetrarmið Djúpmanna", segir: „Var þar stundum svo ör fiskur að fyrir kom, að 60—70 fengust á 90 öngla". En svo kemur sorgarsagan í þessum fáu línum um það, hvernig veiðin hafi spillst: „Því enskir togarar voru mjög ágengir á þessum sviðum, einnig mjög tíðir innan landhelgis- línunnar og spilltu veiðarfærum báta mjög oft“. Nú berast hinar hörmulegustu fréttir frá þessu elzta veiðisvæði fslendinga. Aflinn minnkar. Flot- inn rýrnar. Fólkinu fækkar. Allt er þetta að kenna ágangi útlendra togara, sem bókstaflega raða sér á Halamiðin, sem eru fyrir Norðvesturland eins dýrmæt eins og Selvogsbankinn fyrir Suðurland, og loka fyrir mynni ísafjarðar, svo fiskurinn kemst ekki á „Kvíarmið“. Um miðin fyrir Vestfjörðum skrifa þeir mér Þórður Maríasson formaður, f. h. Fiskifélagsdeild- arinnar í Súgandafirði, eftir tilmælum bóksala Hermanns Guðmunssonar og Sigurðar Fr. Einars- sonar á Þingeyri, og farast Þórði þannig orð: VlKINGUR „Fiskimið okkar Súgfirðinga eru að mestu leyti á svæðinu frá Deild við ísafjarðardjúp og vestur að Sléttanesi milli Dýrafjarðar og Amarfjarðar. Á vetrarvertíð róa bátarnir, sem eru nú 18 til 29 smál. að stærð, með lóðir sínar 15—20 mílur undan landi. Á sumrin er nær eingöngu róið smábátum, 1 til 7 tonn að stærð, og taka þeir afla sinn ein- göngu innan nýju landhelgislínunnar. Undanfar- in sumur hefur afli verið ákaflega lítill hjá þess- um smábátum, en sumarið sem leið hefur skorið sig úr hvað þetta snertir. í júní og júlí var góð handfæraveiði, en þorskurinn var nokkuð smár. í ágúst, september og október reru bátar með línu og öfluðu dável. Var það mest ýsa og reyndist aflinn beztur 2—4 mílur undan Deild. Lúðu hefur ekkert orðið vart hér, að heitið geti, í mörg ár, en út af Deild og Skálavík voru áður góð lúðumið. Fer sumarafli okkar oft eftir því, hve landhelgin er vel varin“. — Skýrsla Sigurðar er hvorttveggja í senn, mjög fróðleg og skemmtileg, því hún hermir hvernig til forna var á miðin litið og hvaða dóm þau hlutu. Eftir almennan inngang um staðsetningu fiski- miða segir hann: „Ég ætla því að gera tilraun til að segja eitt- hvað um svæðin (miðin), sem sótt er á héðan á vorin og sumrin og einkum þau, sem eru innan hinnar nýju friðunarlínu, en það eru eingöngu smábátamiðin. Að hausti og vetri til sækja hinir stærri bátar langtum lengra út á hafið, svo að þessi nýja lína kemur þeim ekkert að gagni neinu, sízt á þeim tíma og yfirleitt aldrei, nema einhver stórkostleg breyting á fiskimagninu á grunnmiðunum eigi eftir að verða. Á svæðinu frá Bjargtöngum eða Látraröst að Isafjarðardjúpi (Djúpál) má segja að allsstaðar séu fiskimið, eða allt svæðið sé eitt fiskimið alla leið inn í f jarðarbotna. Svona var þetta í gamla daga, og fyrir aðeins nokkrum árum. Á Víkunum: „Gnægtar afli“. Botn ágætur. „Tapaðist aldrei öng- ull“. Patreksfjarðarflóinn: Hlaðafli vor og haust". Botninn sandbotn, „festist ekki öngull". Patreks- fjörður: „Fjörðurinn fullur af fiski alla leið inn í botn, sem er sandur og leir. Kóparifið: „Á vísan stað að róa. Nægtar fiskur, en fremur smár“. „Egg- rennisléttur sandbotn, guð veit hvað langt niður á haf“. Arnarfjörður: „Gullnáma". Húsmóðirin: „Ohó! Gátuð þið þá ekki tekið meira?" Landgrunn- ið allt virðist vera mjög lárétt og slétt. Þó er lágur hryggur fram af Kópanesi langt 1 haf út, og er dálítið dýpra austan til við hann, en grynnir aftur fram af Sléttanesi (Nesinu) austan Arnarfjarðar. Fram af Nesdal í Barðanum eru ágæt fiskimið og hefur svo verið í ómuna tíð. Þar er sandbotn á mjóu svæði alla leið frá landsteinum og í haf út. Fleiri sandblettir eru þarna í botni, svo og leir- 299

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.