Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Síða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Síða 48
Er sofið á verðinum? Gils Guömundsson, þáverandi ritstjóri Víkings, skrifaöi þessa grein áriö 1950. Á undanförnum árum hefur oftar verið rætt hér í blaðinu um landhelgismál vor en flest málefni önnur. Kann því að vera, að ýmsum þyki borið í bakka- fullan lækinn, þegar blaðið flyt- ur enn nýjar greinar um þetta efni. En hér er um slíkt stórmál að ræða, eigi aðeins fyrir fiski- mennina og sjávarútveginn, held- ur þjóðina í heild, að aldrei verð- ur of oft við því hreyft. Tómlæti það, sem þjóðin virðist sýna í þessu stórmáli, er vissulega ugg- vænlegt, svo mjög sem það hlýtur að varða afkomu hennarogfram- tíðarmöguleika á ókomnum ár- um. Þarf vissulega að skera upp herör í landhelgismálinu. Þjóð- inni verður að skiljast, og það heldur fyrr en seinna, að farsæl lausn þess er eitthvert brýnasta hagsmunamál hennar. Hún verð- ur einnig að gera sér ljóst, að því aðeins er verulegs árangurs að vænta, að málið sé sótt af fullri einurð og með óbilandi festu. Forystumönnum þjóðar- innar ber skylda til að flytjá málið og túlka með öllum þeim röksemdum, sem það mega styðja, sögulegum, lagalegum og siðferðilegum. Síðan verður þjóð- in öll að standa sem einn maður að baki þeirra, sem stórmál þetta flytja í umboði hennar. Hún verður að sýna skýrt og ótvírætt, að krafan um stækkun íslenzkrar landhelgi er ekki munnfleipur eitt, heldur brennandi áhugamál hvers mannsbarns í landinu. Landhelgismálið er stórmál dagsins. Þar megum vér Islend- ingar því sízt af öllu sofa á verð- inum. Það má vera alþjóð kunnugt, að landhelgi sú, sem vér búum við, nær aðeins þrjár mílur á sæ út, og er skemmri en land- helgi nokkurrar annarrar fisk- veiðiþjóðar. Skýringin er nær- tæk. Þriggja mílna landhelgin er arfur frá þeim tíma, er vér vor- um ófrjáls þjóð og Danir fóru með utanríkismál vor. Samning- inn um landhelgina gerðu Danir sjálfum sér til framdráttar, en á kostnað íslendinga. Ríkisstjórn Islands hefur fyrir nokkru sagt upp samningi þessum, sem gerð- ur var við Breta á sínum tíma. Eru að vísu um það skiptar skoð- anir, hvort rétt og skynsamlega hafi verið að farið, þá er alþingi valdi þá leið, að segja upp samn- ingnum og viðurkenna þar með lagalegt gildi hans, í stað þess að lýsa hann ógildan og íslenzka lýðveldinu með öllu óviðkomandi. En nú hefur uppsagnarleiðin verið valin, og má því gera ráð fyrir að samkomulagsumleitanir hefjist bráðlega, því óðum líður að því, að hinn gamli samningur gengur úr gildi. Er af þeirri or- sök einni full ástæða til að mál- inu sé haldið vakandi, svoaðfyrir liggi skýrt og ótvírætt, hvað ís- Gils Guðmundsson, alþingismaður. lendingar vilja í landhelgismál- inu, hvernig þeir telja hyggileg- ast að vinna að framgangi þess„ og hvei’jar röksemdir þeir ætla fram að færa þegar á hólminn kemur. Frændur vorir, Norðmenn,eiga nú í hörðum átökum við Breta um víkkun norskrar landhelgi, og búa þeir þó við stærri landhelgi en við. Mál þetta er nú komið fyrir alþjóðadómstól, og er sagt, að öll norska þjóðin fylgi for- ustumönnum sínum einhuga, og krefjist þess, að hvergi verði undan látið. Stórþjóðirnar allar hafa ákvarðað landhelgi sína með einhliða lagasetningu, án sér- stakra milliríkjasamninga. Ráð- stjórnarríkin hafa ákveðið tólf mílna landhelgi úti fyrir sínum ströndum, og Bandaríkin til- kynnt fyrir alllöngu, að þau ein hefðu rétt til alls landgrunnsins, sem þar liggur frá landi langt í höf út. Vér Islendinar, sem búum við skemmsta landhelgi allra þjóða, sækjum nálega allar útflutnings- afurðir vorar út á landgrunnið. Þaðan er meginhluti þjóðarauðs vors kominn. Landgrunnið er oss hálfu verðmætara en öðrum þjóð- um, sem búa við fjölþættari at- vinnuvegi og hafa fleiri auðlind- ir, sem þær geta ausið af. Hér er í raun og veru um að tefla eina lamb fátæka mannsins. Eigi nokkurt réttlæti að ríkja í við- skiptum þjóða á milli, virðist auðsætt, að réttur vor til land- grunnsins sé að minnsta kosti fullt eins ríkur og ótvíræður og nokkurrar annarrar þjóðar, sem særéttindi á. Stórveldi þau, sem áskilja sér allan umráða- og af- notarétt af eigin landgrunni, geta ekki með nokkru móti, ef þau vilja sýna snefil af sanngirni, talið sig eða önnur ríki hafa rétt- indi til að reka rányrkju á fjár- lægum miðum smáþjóðar, mið- um, sem eru henni öllu öðru dýr- mætari og hún byggir á tilveru sína. En hversu ótvíræður sem rétturinn er, mega íslendingar sízt gleyma hinu, að hann fæst aldrei viðurkenndur, nema því VÍKINGUR 312

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.