Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Page 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Page 52
Fiskirækt í sjó eða sjóblönduðu vatni eftir dr. Jónas Bjarnason, efnaverkfrœöing. í fyrri grein minni um sama málefni í síðasta tbl. Víkings, ályktaði ég, að tilraunir til að auka frumframleiðslu hafsins til þess að auka fiskuppskeru, hlytu að vera mjög vafasamar, því að frumframleiðsla hafsins er mjög mikil fyrir. Nægir hún fræðilega til að þrjúhundruðfalda núver- andi fiskuppskeru, ef framleiðsl- an öll kæmist til skila. Til þess að auka uppskeru af ákveðnu hafsvæði eða strandsjó svo einhverju nemi, þarf ná- kvæma stjórnun á öllu lífi þess svæðis. Ef uppskerufiskurinn á að vera „carnivore" eða kjötæta, eins og flestir nytjafiskar Is- lendinga eru, er aðeins unnt að búast við nokkur hundruð kílóum á hektara á ári þegar bezt lætur. Greinilegt er, að slík uppskera stendur ekki undir neinum veru- legum mannvirkjakostnaði, sem þó væri nauðsynlegur til að fá þá nýtni, sem hér um ræðir. Ef stjórnun svæðisins færi úr skorð- um, má búast við mörgum sinn- um lélegri uppskeru. Til þess að fá sem bezta upp- skeru af ákveðnu svæði, þurfa hlekkir fæðukeðjunnar að vera sem allra fæstir. Mönnum hefur jafnvel dottið í hug að hafa að- eins einn hlekk og sigta sifþör- unga eða framleiðsluna úr sjón- um. Þannig myndu fást um 10 tonn af þurru lífefni eða mjölva- ígildi á hektara á ári. Tilraunir hafa þó sýnt, að svifþörungar eru varla nothæfir til manneldis sem stendur, og yrði því að nota þá til dýrafóðurs. Uppskeruverð- mæti væru þá aðeins um 100 þúsund krónur á hektara, og ó- líklegt er, að slík vinnsla borg- aði sig. Ef hlekkir fæðukeðjunnar eru tveir, má búast við um 5 tonnum af uppskerufiski á hektara. Sá fiskur yrði að vera plöntuæta. Nú vill svo til, að allir nytja- fiskar Norður-Atlantshafsins eru ekki plöntuætur heldur kjötætur, þ. e. fiskætur, svo erfitt mun reynast að finna plöntuætufisk fyrir norðlægar slóðir, sem getur lifað beint á svifþörungum á svipaðan hátt, og kindin lifir beint á frumframleiðslu landsins. Jafnvel þótt slíkur fiskurfyndist, yrði að gæta hans mjög vel, því ránfiskar myndu vafalaust gera mikinn usla. Vandamálið er því að finna heppilega tegund svo og að finna aðferðir til algerrar stjórnunar og aflokunar svæði. Þar sem uppskeran væri aðeins um 5 tonn á hektara á ári, þegar bezt lætur, er mjög vafasamt, að sú uppskera standi straum af verul'egum mannvirkjakostnaði. 1 þessu sambandi má geta þess, að allar fisktegundir, sem rækt- aðar eru nú á tímum i stórum stíl í sjóblönduðu vatni, eru plöntuætur, sem lifa að verulegu leyti á botngróðri í grunnum lónum. Filipseyingar rækta t. d. árlega um 21000 tonn af mjólk- urfisk í sjávarlónum og árósum. Hugmyndum hefur oft verið varpað fram hérlendis í seinni tíð um lokun fjarða til fiskrækt- ar. Eina leiðin til að uppskera verði að einhverju gagni, er, að unnt verði að nota plöntuætu- fisk til að nýta frumframleiðslu svæðisins. 10 ferkílómetra fjörð- ur t. d. gæti í mesta lagi gefið af sér nokkur þúsund tonn á ári, en aðeins með því skilyrði, að allt annað dýralíf fyrir utan uppskerufiskinn yrði fjarlægt. Þegar um svo stóra firði er að ræða, má segja, að það sé óvinn- andi verk, jafnvel þótt heppileg- ur fiskur fyndist. Ef ræktunin miðaðist aftur á móti við kjöt- ætufiska eins og laxfiska, má búast við, að uppskeran úr öllum firðinum yrði í mesta lagi nokkur hundruð tonn og þá aðeins, ef fullkomin stjórnun á vistkerfi fjarðarins næðist. Slíkt myndi kosta morð fjár. Ég leyfi mér því að segja, að hugmyndir um lok- un fjarða af þessari stærð eru vægast sagt óraunhæfar. Þróun- in erlendis í sjávarræktun er sú, að stefnt er að ræktun lítilla svæða með fullkominni stjórnun. Ég mun víkja að því betur seinna. Önnur leið er þó til, sem bygg- ir á hagkvæmari notkun frum- framleiðslunnar beint til fram- leiðslu á uppskerufiski. Það er ræktun skelfisks eins og t. d. kræklings og hörpudisks. Slík ræktun hefur verið stunduð í aldaraðir, en Rómverjar t. d. ræktuðu ostrur. Hollendingar rækta nú árlega um 80000 tonn af kræklingi. Skelfiskurinn sigt- ar m. a. svifþörungana úr sjón- um, og þar sem hann lifir milli- liðalaust á frumframleiðslunni, er unnt að fá töluverða uppskeru á hverja flatarmálseiningu af yfirborði. Skelfiskur almennt selst dýru verði, en ræktun hans krefst mikillar vinnu. Þar sem skelfiskurinn er staðbundinn, er ekki nauðsynlegt að l'oka af svæði til ræktunar hans. Að eðli til er kræklingurinn eins og skapaður fyrir ræktun, en hann þrífst mjög víða í Norður-Atlantshafi. Nýlegar tilraunir til ræktunar kræklings með spönsku aðferð- inni eru mjög athyglisverðar, en sú aðferð byggist á því, að kaðl- ar eru hengdir neðan í flotgrind- ur. Kræklingurinn lifir síðan mjög þétt á köðlunum, en þar VlKINGUR 316

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.