Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Qupperneq 54
t
Benóný Friðriksson
Fæddur 7. janúar 1904
Dáinn 12. maí 1972
Þessar minningargreinar
um Binna í Gröf
birtust í
Sjómannadagsblaði
Vestmannaeyja
á síðast iiðnu sumri
ÉLann var fæddur 7. janúar
1904 að Gröf í Vestmannaeyjum
og þar ólst hann upp hjá for-
eldrum sínum.
Við húsnafnið Gröf var hann
kenndur til æviloka og' nefndur
Binni í Gröf.
Binni var ekki g’amall, eða hár
í lofti, þegar hann fór að draga
fisk úr sjó. Bryggjurnar og
Nausthamarinn voru þá hans
veiðistaðir. Þar mátti oft sjá hann
með seglgarnsfærið sitt að veiða
smáufsa.
Innan fermingaraldurs fór
Binni að róa á smáferju hjá Jak-
ob Tranberg. Kom þá fljótt fram
hjá honum framúrskarandi á-
hugi og fiskisæld á handfæra-
krókinn.
Fimmtán ára gamall byrjaði
Binni hér formennsku að sumri
til með árabát, sexæring. Voru
þeir 4 á bátnum. Hásetarnir voru
jafnaldrar Binna. Sóttu þeir sjó-
inn af miklu kappi og fiskuðu oft
mikið. Kom þá strax í ljós hjá
Benóný ótrúlega miklir sjó-
manns- og skipstjórnarhæfileik-
ar, sem fylgdu honum alla ævi og
mætti skrifa um það langt mál.
því eins og flestum er kunnugt,
var Benóný yfirburða sjómaður
og sérstæður aflamaður, og mátti
með sanni segja að hann væri
jafnvígur fiskimaður, hvaða veið-
arfærí sem hann notaði.
Um 1920 fór Binni að róa á
mótorbát, hjá Jóhanni á Brekku,
var það á mb. Nansen VE 102,
sem var 7,47 tonn að stærð. Átti
Friðrik faðir hans Vs hluta í bátn-
um, næstu vertíð var Binni orðinn
mótoristi á Nansen.
Árið 1925 gerðist Benóný út-
gerðarmaður, með því að kaupa
y4 hluta í nýjum bát frá Noregi,
Gúllu VE 267, sem var 15,57 tonn.
Var Jóhann á Brekku formaður
með Gúllu fyrstu vertíðina.
Næstu vetrarvertíð 1926 tekur
svo Binni við formennsku á bátn-
um og þar með hefst hans frægð-
arferill sem skipstjóra. Hann var
síðan í fremstu röð skipstjóra yf-
ir hálfa öld, vetur, sumar, vor og
haust. Má slíkt þrek með eindæm-
um teljast.
Nokkur sumur var Binni for-
maður, með árabát, frá Skálum
á Langanesi og var þar oft afla-
hæstur. Frá vertíðinni 1926, til
vertíðarloka 1953, er Benóný
skipstjóri með eftirtalin skip:
Gúllu, Gottu, Heklu, Gulltopp,
Sævar, Þór og Andvara.
Vertíðina 1954 varð hann skip-
stjóri á Gullborg og það varð
hans mesta happa- og aflaskip,
því á henni varð hann Fiskikóng-
ur Eyjanna, vetrarvertíðarnar
1954 til vertíðarloka 1959, eða
sex vertíðir í röð og sjö urðu þær
vetrarvertíðirnar alls, sem hann
varð hér fiskikóngur, og margar
þeirra hæstur yfir allt landið.
Benóný Friðriksson var dáður
af sínum samtíðarmönnum og
alveg sérstaklega af hans stéttar-
félögum, skipstjórum í Eyjum og
öllum sjómönnum. Hann vildi
aldrei annarra meinsmaður vera
og þrengdi ekki sínum veiðar-
færum að annarra, sem í fiski
voru, en fór sínar eigin leiðir og
hafði sjálfur fyrir að finna fisk-
inn. Binna frá Gröf verður lengi
minnzt í röðum beztu sjómanna,
sem hafa stundað sjó héðan frá
Eyjum.
Benóný var kvæntur Katrínu
Sigurðardóttur og eignuðust þau
átta börn.
Benóný andaðist á sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 12. maí síðast lið-
inn.
Eyjólfur Gíslason
Vtför Binna í Gröf var fjerö
frá Landahirkju laugardaginn 20.
maí að viðstöddu miklu fjölmenni.
Vottuöu bæjarbúar og sjómenn í
V estmannaeyjum hinum látna
margháttaba vir'ðingu sína.
Allir bátar voru í höfn og var
flaggaðlí hálfa stöng á flotanum.
Úr kirkja báru kistuna skipshöfn-
in á Gullborgu, en síðan báru í
kirkjugarð eldri félagar Benónýs
úr röðum skipstjóra. Frá kirkju-
dyrum stóðu félagar úr Verðandi
heiðursvörð.
Sr. Þorsteinn Lúther Jónsson
jarðsöng. ]
1 líkræðu sagði sr. Þorsteinn
Lúther:
318
VlKINGU R