Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Page 55

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1972, Page 55
,,Bem5ný var þannig af Guði gerður, að hann unni sér aldrei hvíldar, iðaði af fjöri og fram- kvæmdahug, tók sér víst aldrei frí frá störfum til skemmtiferða- laga, hlakkaði af alhug til hverr- ar vetrarvertíðar og nýrra átaka, enda var hann fæddur með köllun veiðimannsins. Sú vöggugjöf fylgdi honum æ síðan, óx og þroskaðist með honum og varð hluti af honum sjálfum". Margir sendu Benóný hinztu kveðju á útfarardegi. TJm hann ritar Ási í bæ: „Það hefur verið og er enn að- eins á valdi hraustustu manna að vera í forystusveit sjósóknara við íslandsstrendur, þeir allra hörð- ustu ná því endrum og eins að verða aflakóngar, og vinna slíkt afrek sjö vertíðir í röð er einung- is á færí afburðamanna, til þess arna þarf ekki bara viljafestu þrekmanna, heldur næstum því ótakmarkaða þekkingu á öllu sem lýtur að aflabrögðum og sjó- mennsku og kunna að beita þessu. En svona var Binni í Gröf: Eftir svaðilfarir fimmtíu ára sjó- mennsku hafði hann borið að landi meiri afla en nokkur báta- formaður landsins og stýrði að lokum fleyi sínu í höfn án þess þar hefði maður fengið skrámu auk heldur meir. Enda vék hann aldrei af verði, ef hann taldi höf- uðskepnurnar viðsj álar um of. Ég hef þekkt Binna í Gröf frá barnæsku er hann sprangaði með með mig í fangi undir Skiphellum og alla tíð haft á honum miklar mætur, ekki bara sem þeim djarfa sjósóknara, sem við dáum öll; það var eiginlega alveg sama hvað hann tók sér fyrir hendur, hann gerði það flestum betur. Á yngri árum var hann með beztu mönn- um í knattspymuliði Týs, og um árabil stundaði hann leikfimis- æfingar að haustinu og var í fremstu röð. Ágæt skytta. Lunda- veiðimaður langt umfram meðal- lag þó sjaldan gæfist tækifæri til að leggja háf. Köttur í fjöllum. Við skál hafði hann yndi af að fara með vísur, kunni urmul af þeim og kvað hvern mann í kút- inn. En mest dálæti hafði ég á Binna eftir að hafa verið með honum á sjónum nokkrar vikur, þá var hann í essinu sínu, lék á alls oddi jafnan, og ljúfur í um- gengni. ... Æ að sjá minn mann í stýrishúsglugga á Gullborginni þegar verið var að háfa hana fulla einn bjartan morgun austur á Síðugrunni, og þegar gonnan seig áfram kallaði hann út á þil- far: Er hún ekki dálítið sigin Sævar? Fær sér í vörina glaður yfir góðum feng eins og þegar hann dró Maríufiskinn forðum tíð. Og þannig vil ég muna hann, í stýrishúsglugga á Gullborginni hressan og kátan með vestangjól- una í fangið og sólskinið glitrar á spriklandi síldarlu’eistrinu. í dag verður mörgum hugsað heim til Eyja þar sem fánar munu blakta í hálfa stöng á hverri siglu bátaflotans því nú er sá genginn sem fremstur stóð í flokki góðra og hraustra drengja. En svo lengi sem sjósókn verður undirstaðan að lífsafkomu lands- manna mun nafn Binna í Gröf lýsa eins og viti. Megi gæfan gefa heimabyggð okkar fleiri slíka“. Við útförina las sr. Þorsteinn Lúther minningar- og kveðjuljóð frá ónefndum, fyrrverandi skips- félaga Benónýs. Ljóóió má skoöa sem kveðju frá sjómönnum öllum og heimabyggð til þessa fræga aflamanns og sjómanns, sem allir, er kynntust, 'virtu og dÁSu vegna drenglyndis og mannkosta. Út siglir fley í aftanskini, eilífSarstefnu velur sér. KveSjurnar sendar kærum vini, klefttarnir, jdrangar, flúS og sker. Regnský frá augum Ægir strýkur, ávarpar stillt hin breiSu höf: Nú fá ekki dætumar leikiS lengur viS litla skipiS hans Binna í Gröf. Benóný Friðriksson. VlKINGUR 319

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.