Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Page 13
Lúðvík Jósepsson
„Rétt stefna að endurnýja
to2araflotanní£
Vandamál sjávarútvegsins á
tímum olíukreppu og versnandi
viðskiptakjara við útlönd eru
mikið á dagskrá um þessar
roundir og menn greinir á um
stöðu sjávarútvegsins og mögu-
leika.
Sjómannablaðið hefur nokkuð
fjallað um þessi mál og hafa að
undanförnu birst viðtöl við ýmsa
forystumenn í sjávarútvegi, þar
á meðal við núverandi sjávarút-
vegsráðherra, Matthías Bjarna-
son og við formann LÍU, Kristj-
án Ragnarsson.
f þessari umræðu hefur útgerð
nýju skuttogaranna meðal ann-
ars borið á góma, en segja má,
að í stjórnartíð Ólafs Jóhannes-
sonar hafi fiskiskipafloti, eða
togarafloti, þjóðarinnar verið
endurnýjaður frá grunni. Þá var
Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs-
ráðherra og því hnútunum kunn-
ugastur. Þótti því tilvalið að
hafa tal af honum og heyra um
viðhorf síðustu ríkisstjórnar og
hans sjálfs sem sjávarútvegs-
ráðherra í þeirri stjórn.
Lúðvík Jósepsson þarf ekki að
kynna nánar, en ekki sakar þó
að geta þess að hann hefur átt
sæti á alþingi síðan árið 1942.
Hann starfaði að útgerð á Nes-
kaupstað á árunum 1944—1952
og var þá m.a. um skeið forstjóri
bæjarútgerðarinnar á Neskaup-
stað. Lúðvík Jósepsson hefur tví-
vegis verið sjávarútvegsráð-
herra, eða á árunum 1956—1958
og síðan í ráðuneyti Ólafs Jó-
hannessonar, eða vinstri stjórn-
Árin líða. Á myndinni til vinstri er
Lúðvík Jósepsson sjávarútvegsráð-
herra að undirrita fiskveiðireglu-
gerðina um 12 sjómílur árið 1958.
Ajö baki Lúðvík stendur Gunnlaug-
ur Briem ráðuneytisstjóri. Og til
hægri er nýleg mynd af Lúðvík.
inni, eins og hún er nefnd.
Auk þess hefur Lúðvík setið 1
allskonar nefndum og átt sæti í
stofnunum sjávarútvegsins og
útgerðarinnar. Má hiklaust telja
bann einn reyndasta stjórnmála-
mann landsins í málefnum út-
gerðar og fiskvinnslu.
Við hittum Lúðvík að máli í
skrifstofu hans í alþingi á dögun-
um og var fyrsta spurningin
þessi:
Rétt stcfna a<$ endurirýja
togaraflutann
— Nú hefur þfóSin nýveriS
keypt um 60 skuttogara. Var þaó
rétt stefna aó kawpa öll þessi
skip á svo skömmum tíma?
— Já, það var tvímælalaust
rétt að kaupa togarana. Til þess
liggja tvær meginforsendur.
VÍKINGUR
133