Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1975, Page 16
Hér hafa höfðingjar hitst. „Við megum engar undanþágur veita eftir 13. nóvember í haust.“
og síðarnefnda leiðin var valin.
Ef vikið er að rekstrargrund-
vellinum, þá fullyrði ég það að
hann er góður, enda þarf nú
ekki lengur að deila um það, þótt
það hafi verið gert í alllangan
tíma, því nú hefur þjóðhags-
stofnun gefið frá sér tölur, sem
sýna að rekstrargrundvöllur
þessara skipa ber af rekstrar-
grundvelli allra íslenskra fiski-
skipa. Þetta áttu tölur stofnun-
arinnar auðvitað að sýna allan
tímann, en gerðu það ekki. Ég
fullyrði því að rekstrargrundvöll-
ur sé fyrir hendi.
— Þau skip sem keypt voru á
fyrra fallinu af þessari gerð
sanna þetta líka. Afkoma þeirra
hefur allan tímann verið góð á
okkar mælikvarða. Eg tek aðeins
sem dæmi útgerð úr minni heima-
byggð, Neskaupstað (Norðfirði).
Við gerðum út stóra fiskibáta,
sem taldir voru góðir síldarbátar
og síðar togbátar og voru í afla-
hæsta flokki. Þessa báta seldum
við og fengum skuttogara í stað-
inn. Afkoman hjá okkur þennan
tíma (en við höfum gert út skut-
togara í fjögur ár), var betri en
við þekktum nokkurntímann áð-
ur á bátunum, enda hefur það
komið í ljós að þegar þessi skip
afla um 3000 tonn af fiski, eins
og betri skipin gerðu öll — og
sum meira — þá hefur útkoman
orðið sú að þau hafa haft tekjur
á móti öllum gjöldum og álitlega
upphæð upp í afskriftir. Það er
hinsvegar rétt að þau hafa ekki
enn náð upp í fullar afskriftir,
þótt þess séu líka dæmi að þau
hafi haft það.
Hitt er svo annað mál, að þeg-
ar aflinn bregst þeim er stjórna
þeim, og verður kannske ekki
nema helmingur þess sem áður
greinir, þá verður auðvitað um
bullandi hallarekstur að ræða.
Þetta er ekkert nýtt.
Stórir skuttogarar
■ erliðlcikum
— En stærri skuttogararnir.
Nú hefur einum verið lagt, segir
þa'ð elcki aðra sögu?
— Það er rétt. Það er allmik-
ill munur á útgerð stærri togar-
anna, sem eru um 1000 rúmlest-
ii' og hinna sem eru um 500
rúmlestir. Rekstrargrundvöllur
þeirra hefur verið miklu verri.
Skipin eru dýrari, frekari á allt
í rekstri. Þau eru með 25—27
manns, en minni skipin með 15—
16. Þótt að launakjörin séu verri
en á minni skipunum, þá fylgir
þessu margvíslegur aukakostn-
aður, og er dýrara fyrir útgerð-
ina á öllum sviðum.
Þar á ofan höfum við verið
afar óheppnir með þessi stóru
skip, í þeim hafa komið fram
margvíslegir gallar, sem allir
vita og þurft hefur að bæta við
búnað þeirra til þess að auðvelda
veiðarnar. Þau eru þegar komin
með háa viðhaldsreikninga af
þessum sökum. Allt leggst þetta
því á eitt, þau eru rekin með
tapi.
Þessi skip eru líka að sumu
leyti með gamla laginu. Þau eru
hugsuð fyrir ísfiskmarkað á meg-
inlandi Evrópu og í Bretlandi.
VÍKINGUK
136