Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Page 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Page 1
Skólahúsió er hroóalega leikiö aó utan og ekkert er ofsagt um það i greininni. Vel má sjá sprungur í veggjum og hvar brotnað hefur úr þakskegginu og fallió til jaróar. Myndin minnir einna helzt á yfirgefið hús og minjar, fremur en mu'sterj tæknivísinda sjómennafræöinnar. HRIPLEKUR SJÖHANNA- SKÓLI Fæst fjárveitingavaldið til þess að leggja fram fé til lífsnauðsynlegra endur bóta — eða skal „skipið“ ausið hvern rigningardag? Allir skólar á íslandi leka nema Miðbæjarbarnaskólinn í Reykjavík, sagði Aðalsteinn Ingólfsson, nám- stjóri, einu sinni, því svona langt er síðan menn eignuðust seinustu óleku skólahúsin á Islandi. Síðan hafa margir skólar bæst við; hvort þeir leka, veit ég ekki, og vafalaust hefur tekist að stöðva húslekann í öðrum, — en — því miður, önnur skólahús hafa aldrei lekið meira en nú og þau eru sum byrjuð að molna og springa og ef ekki verður að gert, munu þau senn standa eins og garnatómar sdldar- fabrikkur og hrópa eymd sína til himins. Eitt af verst leiknu skólahúsum í byggð á íslandi er líklega Sjó- mannaskólinn á Vatnsholti. Hann hefur ekki haldið vatni eða regni í þrjá áratugi og það er orðið viðsjár- vert að ganga framhjá honum, því múrstykki falla til jarðar með dauf- um dynkjum úr steinrennunum um- hverfis þakið. Talið var að um 30 milljónir króna þyrftu til þess að koma húsinu í viðunandi horf, og er þá aðeins gert ráð fyrir hinu nauðsynlegasta, „þannig að ekki þurfi að fyrirverða sig fyrir aðbúnað nemenda þar“ eins og segir í bænarskjali þriggja skóla- VÍKINGUR 387

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.