Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Page 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1975, Page 39
í hugarlund geðblæ þessara örhrjáðu manna, er þeir voru komnir heilir á húfi í bátinn og ennþá öruggari, er þeii fundu traustar þiljur „Idaho“ undir fótum. Skipverjar af ,,Evu“ voru tíu daga um borð í ,,Idaho“ og menn mínir lögðu sig fram um að láta þeim líða svo vel sem unnt var. Skipshöfn minni fæ ég aldrei full- þakkað allar þeirra dáðir og þrek, sem þeir sýndu við þessa björgun og þá karlmannlegu ró sem hvergi bif- aðist. Það var vissulega illt í sjó- inn þennan óveðursmorgun. Danska stjórnin sæmdi mig fögr- um minjagrip, með áletrun og hver og einn skipverja minna fékk end- urgjald fyrir þessa miklu dáð sína, sem þeir áttu sannarlega skilið. Ég held ég þurfi ekki að geta þess að á milli mín og skipstjórans af „Evu“ knýttust vináttubönd, sem aldrei munu bresta. Þá er að síðustu að geta eins af þeim, sem á ,,Evu“ var. Það var „matsnáðinn,“ svokallaður, hundur skipstjórans, en hét víst að réttu Bobbie. Veslingsgreyið! Hann virtist í fyrstu hálfdauður, er hann kom úr þessum hrakningum, en hjarnaði brátt við. Við urðum fljótt bestu kunningjar. Ég klakaði upp á hvutta og hann hændist að mér. Þegar skip- stjórinn af „Evu“ sá það, bað hann mig að eiga hundinn. Það var hlýtt vinarbragð og gladdi mig mjög. Mér var farið að þykja vænt um seppa og hét því með sjálfum mér, að farga honum ekki og það hef ég efnt. Hann var svo hjá mér árlangt á ,,Idaho“ og.þegar ég lét af skip- stjórn þar, var hann sendur í ein- angrun í 6 mánuði og kom svo loks heim til mín og nýtur nú hér ell- innar. Ég hef margsinnis getað selt hann, bæði hér heima og erlendis. Glæstur Vesturheimsmaður bauð mér 250 dali fyrir hann. En það kom ekki til mála. Ég hrek hann aldrei frá mér. Þetta er rammíslensk- ur fjárhundur og nú fyrir skömmu — þrátt fyrir aldur sinn — hlaut hann fyrstu verðlaun á hundasýn- ingu í Hull. Það líður nú að lokum frásagnar minnar. Þessar minningar fyrnast ekki. Þetta safn einkennilegra atvika og sérstæðra og sem mér finnst, að hafi ekki verið mér sjálfráð, en urðu til líknar þeim er í nauðum voru stadd- ir. Var þetta aðeins tilviljun? Eða hulin hönd guðlegrar forsjónar, sem öllu réð? — Og þó! — er það svo, að ég þykist fullviss um, að einmitt svo hafi verið. C. E. MöllerC (sign.) Eftir „Vikingen“ 1. tbl. 1936, bls. 10—12. — D. þýddi. 0/11 I [Crikl FJÓRGENGIS LA%LLColllll BÁTA- & SKIPAVÉLAR M.s. Kristján Guðmundsson - IS Tegund: 422 2-4 cyl. 90—280 hö. Tegund: 427 2-6 cyl. 160—690 hö. Kristján Guðmundss. ÍS er búinn CALLESEN vél Teg.: 427 FOT 690 hö. GÆÐI ÖRYGGI ÞJÓNUSTA ÞÆGILEG LÉTT ENDIN G ARMIKIL ÓDÝR HAGKVÆM FYRIRFERÐALÍTIL ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Avnm h i öidugotuio BJ n A XI. X. sími 23956 VÍKINGUR 425

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.