Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Síða 10
féllu þjóðarbúinu í skaut. Árið
1935 brást síldin hrapallega og var
því af karfabræðslunni góð búbót.
Sódabræðslan var svo tekin upp
við bræðslu á þorskalifrargrút
1937 og hefir verið notuð fram á
þennan dag. Síðar átti svo Þórður
frumkvæðið að því að farið var að
vinna þorskalifur og grút með
nýrri aðferð, svonefndri sogeimun
Gamla góða merkið
TRETORN
Merki stígvélanna sem sjó-
menn þekkja vegna gæð-
anna.
Fáanleg:
Með eða án trésóla.
Með eða án karfahlífar
Stígvélin sem sérstaklega
eru framleidd með þarfir
sjómanna fyrir augum.
EINKAUMBOÐ
JÓN BERGSSON
H/F
LANGHOLTSVEGI 82
REYKJAVÍK
SI'MI 36579
10
og var hún notuð hérlendis í rúm
tuttugu ár.
Rannsóknastofa Fiskifélags ís-
lands og arftaki hennar Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins hafa
haft mjög mikil áhrif á þróun
fiskiðnaðarins í landinu. Auk þess
sem þegar hefir verið getið má
nefna að nýtingu fiskslógs til
mjölframleiðslu var tekin upp
fyrir forgöngu Rannsóknastofn-
unar. Hið sama má einnig segja
um nýtingu loðnunnar til mjöl- og
lýsisframleiðslu, en þá fékk Þórð-
ur í lið með sér nokkra athafna-
menn úr fiskiðnaðinum.
Rannsóknastofan átti einnig
mikinn þátt í því að farið var að
nýta soð sildarverksmiðjanna en
það rann áður í sjóinn. Það var þó
ekki fyrr en síldin fór að veiðast
við Austfirði að skriður komst á
það mál, þó að upplýsingar um þá
framleiðslu hefðu komið fram í
lok stríðsins.
Um 1950 kom upp mikill vandi
í sambandi við saltfiskverkun,
svonefnd saltgula, sem olli mjög
miklu tjóni. Það vandamál var
leyst í Rannsóknastofunni og
reyndist stafa af örlitlu magni af
kopar í saltinu.
Fyrir nokkrum árum voru
gerðar víðtækar tilraunir með
söltun síldar við mismunandi
skilyrði og sýnt fram á, hve mikil-
vægt það er að síldin sé verkuð við
rétt hitastig.
Þá má nefna, að á síðasta áratug
hafa verið gerðar miklar rann-
sóknir á gæðum eggjahvítu í fiski
og fiskmjöli og áhrifum t.d. hita á
gæði eggjahvítunnar við fram-
leiðslu á fiskmjöli. Nú á síðustu
árum hafa rannsóknir mjög beinst
að breytingum á eggjahvítu
þorsks við mismunandi næringar-
skilyrði og áhrif þess á gæði fisks-
ins til vinnslu.
Rannsóknir sem gerðar hafa ver-
ið síðustu árin í Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins hafa leitt til vél-
væðingar við nýtingu grásleppu-
hrogna og loðnuhrogna.
Enn má nefna að miklar rann-
sóknir hafa farið fram síðustu árin
á því hvernig best megi nýta kol-
munna til manneldis bæði með
frystingu og skreiðarverkun. Þeim
rannsóknum er engan veginn lok-
ið þó að mikilsverðar niðurstöður
hafi þegar fengist.
Af öðrum rannsóknum sem enn
standa yfir, má nefna framleiðslu
á humarkrafti úr humarúrgangi
og fiskkrafti úr spærlingi o.fl., en
slíkar vörur eru mjög verðmætar.
Ymiskonar rannsóknir hafa
farið fram á vinnslu humars og
hörpudisks.
Þá hafa og farið fram rann-
sóknir á því, hvernig spara má
vatn í frystihúsum og hvernig nýta
megi betur orku í loðnuverk-
smiðjum en það er mikilvægt at-
riði með sí vaxandi eldsneytis-
kostnaði.
Á síðustu árum hafa og verið
teknar upp rannsóknir á því,
hvernig nýta megi fiskslóg o.fl.
betur en gert er.
Hér hefir einungis verið getið
nokkurra helstu verkefna, sem
unnið hefir verið að. Rannsókna-
stofnunin gefur út ársskýrslu, sem
komið hefir út reglulega frá árinu
1965 og er þar að finna nánari
grein fyrir öðrum verkefnum. Þá
gefur stofnunin og út tímarit sem
nefnist Tæknitíðindi og hefir að
geyma ýtarlegar skýrslur um
margskonar verkefni. Út eru
komin yfir 100 hefti. Bæði árs-
skýrslu og Tæknitíðindum er
dreift endurgjaldslaust til fjölda
aðila.
Náin og góð samvinna hefir
ávallt verið við allar greinar fisk-
iðnaðarins og einkum sölusam-
tökin.
Rannsóknastofnunin hefir og
náið samband við margar erlend-
ar rannsóknastofnanir sem starfa
á svipuðum grundvelli.
Starfsmenn Rannsóknastofn-
unarinnar eru um 40 og skiptist
hún í 3 deildir: gerladeild, efna-
fræðideild og tæknideild.
VÍKINGUR