Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Side 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Side 17
Erlendur Jónsson líffræöingur: Hvalveidar Meðan hvalir skipuðu sess í hámenningu þjóða við Miðjarð- arhafið, litu strandbúar V- og N- Evrópu á þá sem mikinn forða kjöts og olíu. Baskar voru sú þjóð sem gerðu hvalveiðar að stóriðn- aði. Þeir stunduðu veiðarnar á árabátum og notuðu handskutla til að drepa fórnardýrin, sem aðallega voru sléttbakar. Veið- arnar höfðu strax á 13. og 14. öld útrýmt sléttbökum úr Biskaya- flóa. Þá hófst sóknin norður með ströndum Evrópu. í lok 16. aldar og í byrjun þeirrar 17. náðu hvalveiðar allt norður til Svalbarða, Jan Mayen og íslands, þar sem landstöðvar voru reistar. Baskar stunduðu þá veiðar við ísland og er talið að fyrsti hvalasérfræðingur íslend- inga, Jón Guðmundsson lærði, hafi kynnst hvalategundum og hvalveiðum af Böskum. Ásóknin í hvali var gífurleg og veiðarnar svo gegndarlausar, að við upphaf 18. aldar hafði sléttbökum verið út- rýmt við Svalbarða (Slijper 1962). Krafa 18. aldar um aukið ljós- meti réði miklu um að leitað var nýrra fanga, og varð búrhvalurinn fyrir valinu. Búrhvalurinn er tannhvalur og lifir mikið á smokkfiskum sem halda sig í djúpum sjó. Aðalútbreiðsla hans er í hlýjum sjó, þar sem hjarðir kúa, kálfa og ókynþroska dýra synda um ásamt einum tarfi. Kynþroska tarfar, sem ekki ná forystu í hjörðum, halda til kald- ari hafsvæða á sumrum. Búr- hvalakjöt hefur þótt óætt alla tíð, en mikil olía sem þeir gefa af sér dró margar siglingaþjóðir út í hvalveiðar á 18. öld. Hámark varð í veiðunum á árunum 1820 — 1850, en þá veiddust um 10.000 hvalir árlega. Ofveiði og slæmt ástand stofna, ásamt fundi og hagnýtingu jarðolíu um miðja 19. öld olli samdrætti í búrhvalaveið- um er leið á öldi 19. öldina. I lok 19. aldar verða veiðar reyðarhvala mögulegar vegna til- komu hraðskreiðra gufuskipa og skutulbyssu. Norðmenn stóðu fremstir þjóða í hvalveiðum á þessum tímum, og er reyðar- hvalastofnar fóru að láta á sjá vegna ofveiði við Noregsstrendur fluttu þeir sig um set. Þeir reistu hvalstöðvar m.a. á Færeyjum, ír- landi og á íslandi. Þeir reistu fyrstu hvalstöð sína hérlendis í Alftafirði árið 1883, en þær risu síðan hver af annarri á Vest- fjarðakjálkanum (Jón Jónsson 1964). Veiðarnar hérlendis jukust allt til ársins 1902, og hvalbátum fjölgaði að sama skapi (mynd). Áhrif ofveiði komu harkalega í ljós 1910 er hvalastofnarnir bók- staflega hrundu. Það var því nokkuð sjálfgert að veiðar legðust af 1915 er alþingi setti lög er bönnuðu hvalveiðar hérlendis. En friðunin stóð ekki lengi. því að á árunum 1929—1934 stunduðu norsk verksmiðju.skip veiðar hér við land og veiddu þá alls 469 hvali. Árið 1935 tók til starfa hvalstöð á Tálknafirði sem starf- aði þar í 5 ár, en lagðist niður vegna síðari heimsstyrjaldarinnar (Jón Jónsson 4964). Árið 1948 var reist hvalstöð í Hvalfirði, og starfar hún enn. Fjórir hvalveiðibátar hafa verið gerðir út árlega frá stöðinni, en veiðigeta þeirra jókst um nær 40 % ( mynd) á árunum 1960— 1966 VÍKINGUR 17

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.