Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Side 24
FUNA
OFNAR
ÍSLENZKIR OFNAR
STERKIR OG
STÍLHREINIR
FUNA
OFNAR
Voru prófaðir hjá Iðntækni-
stofnun íslands samkvæmt
íslenzkum staðli. ÍST 69.1.
Hluti 1. stálofnar, fyrstir ofna
og stóöust þeir prófunina.
GOTT
VERÐ
stuttur afgreiðslufrestur,
góð kjör, leitið tilboða.
Framleiðum einnig:
Duna-forhitara fyrir hitaveit-
ur, sterka og fyrirferðarlitla
og aö auki ódýrar Funa--
hitatúpur fyrir rafmagns-
kyndingu, með eöa án
stjórntækja.
FUNA
OFNAR
HVERAGERÐI
AUSTURMÖRK 9 — SlMI 4454
gefin út af Sjómælingum Íslands
frá stríðslokum og önnur lagfærð
og leiðrétt er ljóst að stofnuninni
er hvergi nærri fullnægjandi að-
staða búin til þess að sinna því er
sinna þarf. Meðal annars virðist
vanta raunverulegt sjómælinga-
skip. Allt frá stríðslokum hafa
Sjómælingar haft yfir mælinga-
bátum að ráða. Stærri verkefni
utan flóa virðast þó hafa verið unn-
in af varðskipum. Sá farkostur er
stofnunin hefur yfir að ráða nú
(Týr: 60 feta mælingabátur) virð-
ist heldur ekki vera til mælinga á
hafi úti nema þá lungað úr sumr-
inu. Eftir blívur illa mælt land-
grunnið, að ekki sé talað um
svæðið er því sleppir út að 200
mílum, er heita má ómælt á nú-
tíma vísu á stórum köflum. Sam-
kvæmt alþjóðasamkomulagi eiga
strandríki að sjá sjálf um mæling-
ar á landgrunni sínu. Að sögn
forstöðumanns Sjómælinganna
eru þær dýptarmælingar sem til
eru af landgrunninu að mestu
leyti frá því eftir síðustu aldamót.
Sami maður segir orðrétt: „Þótt
við íslendingar höfum slegið eign
okkar á allt landgrunnið þá vitum
við varla hve langt út það nær á
mörgum stöðum, hvað þá að við
þekkjum það svo vel, að hægt sé
að gera vísindalega athugun á
notagildi þess“.
Það vekur furðu, að enn þann
dag í dag þegar öll stærri fiskiskip
okkar eru búin nákvæmum sjálf-
virkum staðsetningar- og dýptar-
mælingartækjum, af hverjum má
lesa dýpi og staðsetningu í sömu
andrá, skuli ekki vera til sjókort af
svæðum þeim sem þessi sömu skip
toga á með nýrri mælingu en frá
aldamótum. Hitt er svo einnig
umhugsunarefni að enn skuli ekki
vera til lórankorí í minni skala en
1:750000 þ. e. íslandsmið á
tveimur kortum.
Minnst var á sjómælingarskip
og spurning af hverju Albert var
seldur úr landi eftir að hafa legið
24
VÍKINGUR