Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Qupperneq 31
Frá 18. landsþingi S.V.F.Í.
18. Landsþing Slysavarnafélags
íslands var haldið dagana 4.—6.
maí sl. í húsi félagsins á Granda-
garði. Samtals sóttu þingið 180
manns, fulltrúar og umdæmis-
stjórar björgunarsveita félagsins.
Þinginu var slitið á sunnudags-
kvöldið, þar sem lýst vara-
stjórnarkjöri. Gunnar Friðriksson
var einróma kjörinn forseti SVFÍ
til næstu þriggja ára, en hann
hefur gegnt þeim störfum frá
1960. Aðrir í stjórn félagsins eru:
Ingólfur Þórðarson, Reykjavík,
Hulda Viktorsdóttir, Reykjavík,
Haraldur Henrýsson, Reykjavík,
Hörður Friðbertsson, Reykjavík,
Eggert Vigfússon, Selfossi og
Baldur Jónsson, Reykjavík. Full-
trúar landsfjórðunga í aðalstjórn
voru kjörnir Halldór Magnússon,
frá Hnífsdal, Egill Júlíusson frá
Dalvík, Gunnar Hjaltason frá
Reyðarfirði, og Jón Þórisson frá
Reykholti, Borgarfirði.
Hulda Sigurjónsdóttir frá
Hafnarfirði, sem verið hefur í
stjórn samtakanna síðan 1966 gaf
ekki kost á sér til stjórnarkjörs.
Daníel Sigmundsson frá ísafirði,
sem verið hefur fulltrúi Vestur-
landsfjórðungs í vara- og aðal-
stjórn félagsins síðan 1964 lét af
stjórnarstörfum. Þá urðu nokkrar
breytingar í varastjórn.
A þinginu fluttu eftirtaldir að-
ilar framsöguerindi: Hjálmar R.
Bárðarson, siglingamálastjóri, um
aukið öryggi á sjó, Óli H. Þórðar-
son, framkv.stj. Umferðarráðs
greindi frá störfum ráðsins og
ræddi umferðina í dag, Ólafur K.
Björnsson, yfirsímritari Fjar-
skiptastöðvarinnar í Gufunesi
ræddi um fjarskiptamál almennt,
Jóhannes Briem úr björgunarsveit
Ingólfs í Reykjavík greindi frá
VÍKINGUR
störfum milliþinganefndar SVFÍ í
fjarskiptamálum.
Starfsmenn félagsins höfðu
einnig framsögn á hendi, Hannes
Þ. Hafstein framkvæmdastjóri.
sagði frá heimsókn til slysavarna-
og björgunaraðila í Englandi og
sýndi jafnframt skyggnur frá
þeirri ferð auk þess sem hann
sagði frá nýafstaðinni alþjóða sjó-
slysavarna- og björgunarráð-
stefnu í Hollandi, og Oskar Þór
Karlsson, erindreki ræddi málefni
björgunarsveita félagsins og
slysavarnir almennt.
Ýmsar ályktanir þingnefnda
Varðandi slysavarna- og björg-
unarmál voru samþykktar margar
ályktanir og verður nú getið þeirra
helstu:
Skipulags- og laganefnd fjallaði
ítarlega um þær tillögur er lágu
fyrir um breytingar á lögum fé-
lagsins. Var samþykkt að vísa
þeim til stjórnar er var falið að
skipa sérstaka milliþinganefnd til
að vinna úr þeim gögnum og skila
áliti er lagt yrði fram á aðalfundi
félagsins, eigi síðar en einu ári
fyrir næsta landsþing svo að næg-
ur tími væri til stefnu til þess að
kynna framkomnar breytingar hjá
deildum félagsins.
Fjárhagsnefnd hafði til umfjöll-
unar endurskoðaða reikninga fé-
lagsins fyrir árið 1978 og fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1979 og
lagði hvorttveggja til samþykktar
án athugasemda. Framkominni
tillögu um stofnun sérstaks lána-
sjóðs til að standa undir fjár-
mögnun á byggingu björgunar-
stöðva og ýmissa tækjakaupa var
vísað til félagsstjórnar og milli-
þinganefndar til að gera tillögur
um, hvort bæri að stofna slíkan
sjóð og á hvern hátt ætti að fjár-
magna hann. Þá„ mælti nefndin
eindregið með, að deildahapp-
drætti félagsins yrði framhaldið
og hvatti deildir félagsins til stór
átaka í söfnun nýrra félaga til
aukinna félagsgjalda.
Allsherjarnefnd tók til með-
ferðar skýrslu stjórnar félagsins
31