Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Síða 35
Köfun,
erfitt en heillandi starf
Köfun hefur verið stunduð á íslandi um langt árabil sem ómissandi
þáttur í mannvirkjagerð í sjó og vötnum. Um hálf öld er nú liðin
síðan Vita- og hafnarmálaskrifstofan réð fyrsta kafarann til starfa.
Við hafnargerð á íslandi eiga kafarar meira verk að baki en svo að
metið verði í sjónhending, auk þess sem þeir hafa unnið mikilsverð
störf við virkjanir og lagningu sæstrengja og ýmissa annarra leiðsla
neðansjávar.
Tilkoma froskbúningsins um miðjan sjötta áratuginn varð til
mikilla heilla. Þessi tækninýjung varð til að auðvelda og auka mjög
ýmiss konar aðstoð við skip og báta, t.a.m. varð nú í flestum
tilvikum auðvelt að skera veiðarfæri úr skrúfum fiskibáta. Einnig
opnaði froskköfunin nýja leið til rannsókna neðansjávar.
Enn má telja það sem ekki er lítils vert, að froskbúningurinn
opnaði ævintýraþrá mannsins og leikgleði ný svið. Froskköfun fóru
menn að stunda sem sport, náttúruskoðun og skemmtilega útivist.
í viðtölum og greinum hér á eftir verður fjallað um köfun, sem
atvinnu, til rannsókna og sem sport. Þó að þessu yfirgripsmikla efni
séu ekki gerð nein tæmandi skil, væntir Víkingurinn þess, að þetta
lesefni verði mönnum til ánægju og nokkurrar upplýsingar.
Hvað imindirðu kalla þennan? Ha, hjálmfrosk?
Vidtal við Kristbjörn
Þórarinsson, formann
Félags íslenskra kafara-.
Alveg
ódrepandi
baktería
Þegar blaðamaður Víkingsins
hringdi bjöllunni heima hjá
Kristbirni Þórarinssyni klukkan
hálftíu að morgni, kom hann
sjálfur til dyra. „Ég var nú að
koma heim,“ sagði hann, „ég var
kallaður í vinnu í nótt. Maður veit
aldrei fyrirfram hvenær maður
þarf að fara að vinna.“ En þótt
Kristbjörn væri þreyttur og van-
svefta, var hann ekki að telja eftir
stundirnar sem við sátum og
röbbuðum saman.
— Hve lengi hefur þú stundað
köfun, Kristbjörn?
„Frá 1952. Þá byrjaði ég á að
byggja síðustu dráttarbrautina
sem byggð var í Slippnum í
Reykjavík. Það vantaði mann til
að byggja brautina. Það var um
þetta leyti sem fyrstu froskkafara-
búningarnir voru að koma á
markaðinn, og ég keypti mér einn
slíkan. Annars þurfti ég ekkert að
nota hann þarna í Slippnum, þar
notaði ég hjálmbúning."
— Hafðirðu lært að kafa?
„Þá þurfti engin próf, eins og nú
á að vera samkvæmt lögunum frá
1976. Reyndar hafa þau ekki
komið til framkvæmda enn, vegna
VÍKINGUR
35