Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1979, Side 41
Suðrænn fiskur við kóralrif. Myndina tók Erlingur í Rauðahafi.
köfun að ég get nýtt hana á þenn-
an hátt.
Ég vildi gjarnan koma því að
hér, að geysimikil verkefni eru
óunnin við könnun á lífríki sjávar,
ekki síður á grunnsævi en djúp-
sævi. Með köfun er unnt að beita
svipuðum aðferðum við slíka
könnun og beitt er á landi. Við
strendur landsins eru uppeldis-
stöðvar ýmissa nytjafiska og ann-
arra lífvera, sem áreiðanlega er
þörf á að rannsaka betur en gert
hefur verið.“
— Hefurðu kafað eitthvað er-
lendis?
„Já, í Noregi, við vesturströnd
Svíþjóðar og svo suður í Rauða-
hafi. Rauðahafið er paradís fyrir
kafara. Það er svo hlýtt og tært, og
stórkostlega falleg kóralrif eru þar
og mikið líf að skoða.“
— Þurfa menn aðstoð eða leið-
beiningar til að byrja að kafa?
„Já, það er nauðsynlegt. Maður
fær líka meira út úr köfun, ef hann
fær góðar leiðbeiningar. Það er
varasamt að kafa einn, það þarf
ekki nema smáóhapp til þess að
illa geti farið ef enginn er nærri.
Það er líka miklu skemmtilegra að
kafa með góðum félaga.
Enginn ætti að byrja köfun,
nema hann sé vel hraustur.
Læknisskoðun er nauðsynleg. Ef
menn viðhafa alla nauðsynlega
varúð, þá geta menn notið þessa
sports ríkulega. Hér við strendur
Islands er víða heillandi náttúra
neðansjávar og gefur alls ekki eftir
grunnsævi við nágrannalönd okk-
ar. Ef til vill væri ástæða til að
friða viss svæði fyrir röskun vegna
mannvirkja eða úrgangs.
41
Kafari neðansjávar. Erlingurtók myndina.
VÍKINGUR