Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Síða 11
Sveinn Jónsson, skipstjórí í Þorlákshöfn, er farinn til Noregs ásamt fjöl-
skyldunni. Hann segist hafa gefist upp á kvótakerfinu og öllu því sem því
fyigir
óM
una
„Ég fæ pláss til sjós um leið
ég kem út, en ekki sem skip-
stjóri, þó ég stefni að því,“
sagði Sveinn Jónsson, skip-
stjóri í Þorlákshöfn, þegar rætt
var hið hann. Hann og fjölsyld-
an höfðu þá pakkað búslóðinni
niður og voru tilbúin að yfirgefa
Island og herjar á ókunnar
slóðir í Noregi.
En hvað gerir að skiptsjóri í
góðu plássi tekur stíka ákvörð-
un?
„Ég hef fengið nóg af kvóta-
kerfinu. Kannski er þetta svart-
sýni hjá mér. Ég þekki ekki vel
til kvótakerfsins í Noregi, en veit
að þar í landi er ekki framselj-
anlegur kvóti. Á þeim bát sem
ég hef, ásamt félögum mínum,
verið að horfa til, er ákveðin út-
hlutun í þorski og síld og annað
er frjálst. Eins er kerfið með
þeim hætti, að ef til dæmis
þorkskvótinn klárast er leyfiiegt
að fara á aðrar tegundir, en þá
má þorskurinn ekki fara yfir
tuttugu prósent af afla. Ekkert
af þessu er framseljanlegt.
Hvað varðar síldina er þetta
með þeim hætti, að ef illa
gengur að veiða hana, þá verð-
ur sóknin frjáls.“
Það er á þér að heyra að þú
sért, ásamt fleirum, að huga að
bátakaupum, erþað ekki rétt
skilið?
„Jú, ásamt Norðmönnum.
Þeir verða að eiga sjötíu pró-
sent í sjávarútvegsfyrirtækjum.“
Það er á þér að heyra að þú
sért að gefast upp á kvótakerf-
inu hérá landi?
„Já, en ég er ekki að kvarta
undan þeim sem ég hef verið
að vinna hjá, það er Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum, þá
getur aldrei verið samstaða
meðal sjómanna og útvegs-
manna, þegar við erum að fá
75 til 80 krónur fyrir þorskinn
þegar hægt er að selja hann á
90 krónur. Þetta er bláköld
staðreynd. Ég vill kanna hvort
ekki sé að vinna við þetta undir
öðrum kringumstæðum. Þetta
er alltaf að versna. Afkoman
hefur verið ágæt, en kvótinn
færist sífellt á færri hendur, það
fer hver báturinn á eftir öðrum í
niðursögun."
Voruð þið lengi að taka
þessa ákvörðun?
„Nei. Við ætluðum ekki að
flytja, hvað þá til annarra landa.
Það var í maí sem við fórum að
hugsa um þetta. Ef ég á að
segja eins og er, þá erum við
ekki viss um að hvort við erum
að gera rétt. Þeir Norðmenn
sem ég hef talað við vilja sann-
færa mig um að ég sé að gera
rétt.“
En félagar þínir hér heima,
hvað tónn eríþeim varðandi
þetta, öfunda þeirþig kannski?
„Ég er ekki frá því. Ég er ekki
í neinni upþreisn, ég vil skoða
norska kerfið."
Þú segist ekki vera fupp-
reisn, en það ersamt vegna
kvótakerfisins sem þú ákveður
að fara, er það ekki einhvers-
konar uppreisn?
„Það má kannski segja það.
Sjávarútvegsstefnan kallar á
þetta, hún kallar líka á fækkun
sjómanna. Þetta er nokkur
óvissa, þar sem ekkert er
ákveðið, en ég held að norska
kerfið sé mannlegra en það
sem við búum við.“
Sveinn á fjögur börn, það
yngsta er á fyrsta ári og það
elsta er þrettán ára. Það er því
sex manna sjómannsfjölskylda
sem er farin til Noregs þegar
blaðið kemur út, og það vegna
starsfumhverfisins hér á landi.
BRflUn
mgfiF S S
Mældu fljótt - nákvæmt - þægilega -
mældu með Braun ThermoScan PRO-1
eyrnahitamælinum.
Rannsóknir sýna að PRO-1
hentar mjög vel við mælingu
á ofkælingu þar sem hann
mælir kjarnahita líkamans.
Mælisvið er 20*-42.2* C.
PRO-1 er nú notaður
daglega af fjölda sjúkrahúsa
hérlendis.
n Háihvammur 16 Simi 555 3100
UOfina ehf 220 Hafnarfjörður fax 565 3455
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
11