Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Page 24
Fjórtán ár liðu frá því fyrst var rætt um að
STOFNA SAMTÖK ÍSLENSKRA SJÓMANNA OG ÞAR TIL
Farmanna- OG FISKIMANNASAMBAND Íslands varð til.
Vélstjórar voru fyrstir til að hreyfa við hugmyndinni.
Það var Sigurjón Kristjánsson, sem sat í
stjórn Vélstjórafélags íslands, sem bar
upp á fimdi í félaginu tillögu 10. júlí 1922.
Tillagan var á þá leið að Vélstjórafélagið
gengist fyrir að íslenskir sjómenn, skipstjórar,
vélstjórar, sfyrimenn og jafnvel hásetar skip-
uðu tólf manna ráð, Farmannaráði íslands,
sem ætlað var að hafa með höndum málefni
sjómanna og gæta hagsmuna þeirra.
Hallgrímur Jónsson 1936 - 1937
Hallgrímur Jónsson vélstjóri var formaður
undirbúningsstjórnar að stofnun Farmanna-
og fiskimannasambands fslands, frá „stofn-
fundi“ 8. desember 1936 og fram á árið
1937. Hallgrímur sat í stjórn FFSI frá árinu
1940 til 1955.
Ásgeir Sigurðsson 1937-1961
Ásgeir Sigurðsson var kjörinn forseti á fyrsta
þingi Farmanna- og fiskimannasambands ís-
lands 1937 og var hann endurkjörinn forseti
á öllum þingum meðan hann lifði, en þegar
hann féll frá átti hann eftir tvö ár af síðasta
kjörtímabili sínu. Ásgeir var forsteti í nærri 24
ár og gegndi hann embættinu lengur en aðr-
ir.
Egill Hjörvar 1961
Egill Hjörvar vélstjóri tók við þegar Ásgeir
Sigurðsson féll frá. Hann gaf ekki kost á sér
til forsetakjörs á þinginu sem haldið var
tveimur mánuðum eftir að hann tók við. Egill
átti auk þess sæti í stjórn FFSÍ árin 1955 til
1961.
Stjórn Vélstjórafélagsins samþykkti að
leggja tillöguna fyrir aðalfund félagsins þenn-
an sama dag. Aðalfundurinn samþykkti til-
löguna og kosin var þriggja manna nefnd til
að fylgja henni eftir og koma henni tii fram-
kvæmda.
1 framhaldi af samþykkt vélstjóra voru
nokkrir fundir haldnir. Eigi að síður má segja
að hugmyndin hafi nánast dagað uppi.
Stýrimenn næstir
Það munu hafa verið félagar í Sfyrimanna-
félagi Islands sem næst hreyfðu hugmynd-
inni að stofnun Farmnna- og fiskimanna-
24
Sjómannablaðið Víkingur