Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1997, Page 50
Þýsk borg sem margir þekkja:
Cuxhaven
vill mejri samskipt
við Islendinga
Þeir eru margir íslensku sjómennirnir
sem komnir eru á miðjan aldur sem
þekkja þýsku borgina Cuxhaven við
ósa Elbufljóts, en þangað sigldu íslenskir tog-
arar mjög oft með afla af íslands- og Græn-
landsmiðum og karfa úr Rósagarðinum.
Margir þeirra minnast góðra stunda meðan
staldrað var við í Cuxhaven. Gengi borgar-
innar í hugum íslenskra sjómanna og skip-
stjóra hefur hins vegar verið upp og niður í
áranna rás. Nú vilja borgaryfirvöld í Cux-
haven hins vegar efla viðskipd við íslendinga
verulega og hafa í þeim tilgangi vakið ræki-
lega athygli á sjálfum sér og þeim möguleik-
um sem íslendingum standa þar til boða í
sambandi við fiskinnflutning til Þýskalands
um Cuxhaven.
VlNABÆJARSAMSKIPTI VIÐ HAFNFIRÐINGA
„Það er ekki langt síðan Ingimundur Sig-
fússon sendiherra vakti athygli mína á mikl-
um og vaxandi vinabæjarsamskiptum Hafn-
arfjarðar og Cuxhaven sem komust á í kjölfar
sjávarútvegssýningarinnar á íslandi árið
1987,“ sagði Rudolf Meiboom, forstjóri
fiskmarkaðarins í Cuxhaven í móttöku fyrir
íslenska viðskiptasendinefnd sem þar var fyr-
ir skömmu. „Síðan þetta vinabæjarsamband
komst á hafa samskiptin verið náin og
stöðugt vaxandi, klúbbar hafa verið stofnaðir
og gagnkvæmar heimsóknir eiga sér stað.
Vináttubönd hafa verið og eru að skapast, við
höfum haft þá ánægju að taka á móti íslensk-
um listamönnum og ungu Au Pair fólki sem
dvalið hefur hjá okkur um lengri og skemm-
ri tíma. Hápunktur þessa samstarfs er þó í
mínum huga íslensku menningardagarnir
NSUER F.SCHER6I
50
Sjómannablaðið Víkingur